Bændablaðið - 08.07.2021, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 202146
Fyrir töluvert löngu síðan hafði ég
hugsað mér að prófa Benz EQV, 7
manna bíl, sem knúinn er eingöngu
með rafmagni, en það var ekki
fyrr en í síðustu viku að mér gafst
tækifæri á að prófa þennan bíl sem
ég kýs að kalla „lúxusbíl“.
Vinsæll bíll til prófunar
hjá Öskju
Laugardaginn 26. maí fékk ég
loksins tíma og tækifæri til að prófa
þennan bíl eftir laugardagslokun hjá
bílaumboðinu Öskju. Vegna vinsælda
hjá fólki í að prófa þennan bíl þurfti
ég að byrja á að setja hann í hleðslu
fyrir utan bílaumboðið þar sem bíllinn
hafði verið í stöðugum prufuakstri á
opnunartímanum á milli 12 og 16.
Eftir þriggja tíma hleðslu sótti ég
bílinn og var hann þá kominn með
hálfa hleðslu (176 km drægni) sem
ég taldi duga fyrir prufuaksturinn.
Telur hægar niður drægni í
innanbæjarakstri en langkeyrslu
Um kvöldið fórum við hjónin í bíltúr
með tveimur erlendum vinum okkar
um Reykjavík og nágrenni. Alls
var sá bíltúr 63 km og að honum
loknum sagði mælaborðið í bílnum
að drægnin hefði ekki minnkað nema
um 57 km. Daginn eftir ók ég út fyrir
bæinn á um 90 km hraða alls 51 km,
en í þeim bíltúr taldi drægnin niður
75 km. Samkvæmt þessu kemst
maður mun lengra á rafhlöðunni í
innanbæjarakstri en í langkeyrslu, en
ástæðan er að þegar maður bremsar
hleður bíllinn inn á rafhlöðuna með
bremsunum.
Uppgefin drægni 356 km
Benz EQV er hægt að fá sem langan
og millilangan, en bíllinn sem ég
prófaði var lengri gerðin, uppgefin
drægni er 356 km. Í bæklingi um
bílinn segir að raundrægni á Íslandi
á sumrin sé um 300 km og um 250
í vetrarakstri.
Vélin gengur eingöngu fyrir
rafmagni og er 204 hestöfl og á að
skila bílnum úr kyrrstöðu upp í 100
km hraða á 12,1-12,2 sek.
Verðið á EQV er frá 13.990.000 sá
styttri og langi á 14.390.000.
Eins og aðra bíla þá mældi ég
innihávaðann í bílnum á 90 km
hraða með mælinn á hægra lærinu
við aksturinn, en við þá mælingu
gekk mér illa að fá stöðuga mælingu
sökum hávaða frá öðrum ökutækjum
sem ég var að taka fram úr eða þeir
að taka fram úr mér. Mælingin
rokkaði á um 1-1,5 db. hvort sínum
megin við 70db. Ástæðan virtist
vera að utanaðkomandi hljóð væru
að koma inn um hliðarhurðirnar.
Ef ég færði hávaðamælinn í annað
miðjusætið var meira veghljóð frá
vetrarhjólbörðunum. Mér finnst
reyndar ekki sniðugt að vera
með rafmagns prufuakstursbíla á
vetrardekkjum á sumrin.
Kom betur út á malarvegi
en ég hafði búist við
Öll sjö sætin í bílnum eru mjög góð
og fara vel með bæði ökumann og
farþega, fótapláss gott. Fremstu tvö
sætin eru stillanleg á marga vegu
með rafmagni.
Á milli miðjusætanna er stokkur
sem hægt er að hækka og setja út
borð fyrir farþegana. Það vantaði að
vísu kampavínið fyrir erlendu vini
mína sem ég tók með í kvöldrúnt
um Reykjavík á laugardagskvöldi.
Eins og allir vita þá er Reykjavík
yfirfull af hraðahindrunum en þær
eru á annað þúsund talsins. Þegar
keyrt er yfir hraðahindranir þarf að
fara aðeins hægar en á flestum bílum
að mínu mati, enda eru viðkvæmar
rafhlöðurnar lægsti punktur bílsins.
Hins vegar fannst mér bíllinn koma
mun betur út á malarvegi en ég hafði
gert ráð fyrir eftir að ég hafði keyrt
yfir nokkrar hraðahindranir. Bíllinn
tók holurnar vel og heyrðist nánast
ekkert steinahljóð undir bílnum.
Lokaorð
Fínn bíll og hentar eflaust best í
lúxusferðamennsku, skólaakstur
og fyrir leigubílstjóra, en nánari
upplýsingar er hægt að nálgast á
vefsíðunni www.askja.is. Hef samt
smá áhyggjur út af lokun yfir 150
hleðslustaura í Reykjavík til að hlaða
rafmagnsbíla og vona svo innilega
að Benz rafmagnsbílaeigendur
og aðrir freistist ekki til að hlaða
bílana sína með ófullkomnum
búnaði og framlengingarsnúrum
vegna þessarar fækkunar á
hleðslustöðvum.
Benz EQV.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Erfitt reyndist að fá stöðuga mælingu á hávaðann inni í bílnum.
Lengd 5140 mm
Hæð 1907 mm
Breidd 2249 mm
Helstu mál og upplýsingar
Benz EQV. Myndir HLJ
Ágætis farangursrými er í 7 manna bílnum.
Miðsætin tvö eru algjör lúxussæti og fer vel um farþegana sem í þeim sitja.
Bakkmyndavélin sýnir bæði ofan á
bíl og aftur fyrir sem eykur á öryggi.
Myndin í leiðsögutækinu er einstak-
lega góð og skýr.
Hef svolitlar áhyggjur fyrir hönd
rafbílaeigenda vegna lokunar á yfir
150 hleðslustaurum.