Bændablaðið - 08.07.2021, Qupperneq 48

Bændablaðið - 08.07.2021, Qupperneq 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 202148 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Á bænum Efstadal 2 í Bláskóga­ byggð er rekið kúabú með mjólk­ urvinnslu, auk þess sem bænd­ urnir eru með ferðaþjónustu á bænum. Býli: Efstidalur 2. Staðsett í sveit: Laugardal í Bláskóga­ byggð. Ábúendur: Halla Rós, Björgvin, Sölvi, Kristín I. Gunn, Guðrún Karitas, Árni, Linda Dögg, Héðinn og börn þeirra sem eru samtals 10. Svo gömlu bændurnir, Snæbjörn og Björg, sem búa í sínu koti. Svo eru það hundarnir Meyja og Þula. Kötturinn Grettir og nokkrar hænur og nokkrar kanínur. Stærð jarðar? Um 500 ha og einnig land sem er óskipt með Efstadal 1. Gerð bús? Efstidalur 2 er kúabú og ferðaþjónusta. Lítil mjólkurvinnsla er á bænum ásamt veitingastað, kaffihúsi og hót­ eli með 15 herbergjum. Framleitt er skyr, Efsti­ostur og ís. Allt okkar kjöt er notað á veitingastaðnum og græn­ metið verslað frá bændum í upp­ sveitinni. Við leggjum mikla áherslu á það að versla í nærsveitinni og veljum alltaf íslenskt ef möguleiki er á því. Hvernig gengur hefðbundinn vinnu dagur fyrir sig á bænum? Það er alltaf líf og fjör í sveitinni og verkefnin eru mörg dag hvern. Hugsa þarf um dýrin, framleiða mat og halda öllu hreinu. Það má ekki gleyma að nefna hestana sem eru ekki síður stór partur af okkar dag­ lega lífi. Fjölskyldan er dugleg að fara á hestbak og við erum með litla hestaleigu þar sem ferðamenn geta komið og farið í reiðtúr. Hægt er að koma til okkar og fara á hestbak, leika á leiksvæðinu og skoða dýrin, snæða hádegis­ eða kvöldverð og toppa daginn með heimagerðum ís. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bú­ störfin? Skemmtilegast er að ríða út og njóta náttúrunnar en leiðinlegast er að reyta arfa, moka skít og drepa njólann sem Danakonungur færði okkur að gjöf. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Við stefnum á að halda áfram hefðbundnum búskap og ferða­ þjónustu og reyna alltaf að gera pínubetur í dag en í gær. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í framleiðslu íslenskra búvara? Við sjáum fullt af tækifærum í fram­ leiðslu og nýsköpun á okkar vörum og má þá t.d. nefna ostagerð. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Í ísskápnum okkar er alltaf til mjólk. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Efstadalshamborgarinn er alltaf vinsælastur, flestir velja Hverinn en svo er það líka mömmu skyrborgarinn sem skorar hátt hjá fjölskyldunni. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar Árni bóndi var nýbúinn að fjárfesta í glænýjum Samsung snjallsíma og fór mont­ inn í fjósið að mjólka. Hann var lítið kátur þegar einni beljunni tókst að skíta í vasann þar sem nýi síminn var. Við eigum mjög mörg eftirminnilega atvik úr bústörfunum sem erfitt er að velja úr. Efstadalsfjölskyldan biður að heilsa og hlakkar til að taka á móti gestum í sumar þar sem við erum búin að vera frekar einangruð í tvö ár út af dálitlu. Heilsteikt blómkál með tahini sesammauki og tómatsalsa Blómkál er líklega uppáhalds­ grænmeti margra og hægt að borða það á hverjum degi á uppskerutíma í fjölbreyttum útgáfum. Ef þið hafið ekki tíma til að baka blómkálið er bara hægt að sjóða það þar til það er nógu mjúkt að hægt er stinga það auðveldlega með gaffli. Setjið það síðan í ofninn með túrmerik og grillið þar til það er gullið. Heilsteikt blómkál › 1 stór blómkálshaus › 1 tsk. turmeric duft › 1 tsk. malað cumin duft › 1 tsk. malað kóríander › ¼ tsk. chili flögur › 1/3 bolli ólífuolía › 1 tsk. salt › 2 bollar tahini (sesammauk fæst í flestum búðum, oft notað í hummus) › 1/2 bolli ristaðar pistasíuhnetur til skreytingar › 2 msk. granateplafræ til skreytingar Fyrir tómatsalsa Aðferð Hitið ofninn í 175 gráður. Setjið blómkálshausinn á bökunarplötu með bökunarpappír. Blandið saman túrmerik við einn bolla af sjóðandi vatni og setjið til hliðar í 15­20 mínútur. Túrmerikvökvanum er blandað við krydd, olíu og salt. Hellið blöndunni yfir blómkálið og verið viss um að það sé jafnt húðað. Þekið bakkann með filmu og steikið blómkálið í ofni í 2 klukkustundir, hristið á 30 mínútna fresti með túrmerik­vatninu. Bætið við meiri olíu ef þess gerist þörf til að halda blómkálinu röku. Fjarlægið álpappírinn og steikið í aðrar 10 mínútur til að brúna blómkálið aðeins. Á meðan blómkálið brúnast, búið til tómatsalsa. Sameinið öll innihaldsefnin í skál og blandið vel saman. Kryddið eftir smekk með salti. Til að bera fram, dreifið tahini dýfunni á stórt fat og setjið blómkálið ofan á. Skerið út fleyg af blómkáli og fyllið tómatsalsa að innan og um jaðar blómkálsins. Skreytið með rifnum pistasíuhnetum, granateplafræjum og chili­flögum – ef þess er óskað. Grillað ferskju Melba með hindberjum Ekki gleyma hindberjasósunni í þessum klassíska sumareftirrétti. Hægt er að fylla holuna eftir steininn með súkkulaði og raða ferskum hindberjum yfir til skrauts og framreiða með eða án íss. Peach Melba › 2 stórar þroskaðar ferskjur › 2 msk. brætt ósaltað smjör › 2 msk. ljósbrúnn sykur Fyrir hindberjasósuna › 1/2 box hindber › 2 msk. sykur › Rjómaís að eigin vali, má sleppa og nota meira af íslenskum hind- berjum. Aðferð Skref 1 Hitið grillið að miðlungshita. Skerið ferskjurnar í helming og snúið til að taka steininn úr. Stingið skinn með gaffli. Hrærið saman smjöri og ljósbrúnum sykri í skál; penslið smjörblöndunni yfir ferskjuhelmingana og þekið alveg. Skref 2 Lagið hindberjasósuna; hrærið hindber saman við sykur í skál og látið sitja í fimm mínútur. Merjið í gegnum sigti í aðra skál, þrýstið með skeið til að draga eins mikið af vökva og mögulegt er. Fargið hratinu (hægt að nota frosin ber í sósuna). Skref 3 Grillið ferskjur á báðum hliðum þar til ferskjurnar eru mjúkar, 5 til 10 mínútur. Berið fram heitt, toppað með ís og hindberjasósu. Eða skreytið með berjunum. Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari bjarnigk@gmail.com Efstidalur 2 Systkinin í Efstadal 2. Ísinn í Efstadal 2.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.