Bændablaðið - 11.03.2021, Page 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 2021 13
Samkaup hefur í samstarfi
við íslenska smáframleiðend
ur hrundið af stað verkefninu
„Heimabyggð“. Í því felst að
íslenskum smáframleiðendum
býðst nú að selja vörur sínar í
sérstöku rými í völdum verslun
um Samkaupa, undir nafninu
„Heimabyggð“.
Tilgangur verkefnisins er að gera
vörum íslenskra smáframleiðenda
hærra undir höfði og gera þær sýni-
legri í verslunum Samkaupa.
„Við viljum styðja við íslenska
smáframleiðendur og með
Heimabyggð erum við að veita þeim
sérstakt pláss í verslunum okkar. Það
er mikilvægt, sérstaklega á tímum
sem þessum, að styðja við íslenska
framleiðslu og við hjá Samkaupum
erum með skýra stefnu þegar
kemur að stuðningi við nýsköpun
og umhverfisvernd,“ segir Gunnar
Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri
verslunarsviðs Samkaupa.
Verkefnið er unnið í samstarfi
við Samtök smáframleiðenda
matvæla og er stefnt að því að koma
„Heimabyggð“ upp í verslunum
Samkaupa víðs vegar um landið. Nú
þegar hefur „Heimabyggð“ verið sett
upp í verslunum Nettó í Mjódd og á
Glerártorgi. /MHH
Netapótek Lyavers
Frí heimsending um land allt!*
Í Netapóteki Lyavers
getur þú fundið þína
lyfseðla, valið samheitalyf
og séð lyaverðið þitt.
Nýttu þér lágt lya- og
vöruverð á lyaver.is
lyaver.is
Suðurlandsbraut 22
Afhendum
samdægur
s
á höfuðbo
rgarsvæðin
u
mán–lau e
f pantað
er fyrir kl. 1
3:00.
Opna lyagáttina
Apótekið
heim til þín
*Frí heimsending ef pantaðir eru tveir lyfseðlar
eða verslað er fyrir meira en 9.900 krónur.
FRÉTTIR
Starfsstöð bókasafnsins á Steins
stöðum í Skagafirði hefur sam
einast starfsstöð bókasafnsins í
Varmahlíð og Héraðsbókasafni
Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Rósmundur Ingvarsson hefur
sinnt safninu á Steinsstöðum af
einstakri natni og áhuga í marga
áratugi. Sigfús Ingi Sigfússon,
sveitarstjóri í Sveitarfélaginu
Skagafirði, heimsótti Rósmund
ásamt Þórdísi Friðbjörnsdóttur
héraðsbókaverði og færðu honum
þakkir fyrir mikið og gott starf í
þágu lestrar- og menningarstarf-
semi í sveitarfélaginu. /MÞÞ
Bókasafnið á Steinsstöðum:
Rósmundi þakkað
fyrir gott starf
Vörur úr heimabyggð í
verslunum Samkaupa
Í „Heimabyggð“ er sérstakur kælir fyrir vörurnar og sérsmíðaðar innréttingar
og umgjörð, sem og hönnun kynningarefnis um vörurnar og framleiðendur
þeirra. Nú þegar hefur „Heimabyggð“ verið sett upp í verslunum Nettó í
Mjódd og á Glerártorgi.
Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri
í Sveitarfélaginu Skagafirði, og
Rósmundur Ingvarsson.
Bænda
25. mars
Sveitarfélög innheimti umhverfisgjöld:
Skagfirðingar gagnrýna tillögu
um nýja búsetutengda skatta
„Því miður er svo víða á lands
byggðinni að fólk hefur ekki
val um hvort það notar bíl eður
ei og nýtur ekki þeirra val
kosta sem höfuðborgarsvæðið
hefur með fjöl breyttari sam
göngumáta,“ segir í umsögn
Sveitarfélagsins Skaga fjarðar
við þingsályktunar tillögu um
heimild sveitar félaga til að inn
heimta umhverfis gjöld.
Fram kemur í bókun sem sam-
þykkt var á fundi Sveitar félagsins
Skagafjarðar að sumar fjölskyldur
þurfi jafnvel tvo bíla til að geta
sinnt vinnu og sótt þjónustu.
„Þetta er því tillaga um nýja
búsetutengda skatta sem munu
leggjast með mestum þunga á lands-
byggðina. Nær væri að koma með
tillögur um hvernig sé hægt að efla
enn frekar almenningssamgöngur á
landsbyggðinni svo færri séu háðir
því að eiga og nota bíla.“ /MÞÞ
Skagfirðingar telja að innheimta umhverfisgjalda, m.a. á bíla, séu mjög
íþyngjandi fyrir fólk úti um allt land sem getur ekki án bíla verið. Mynd / HKr.