Bændablaðið - 11.03.2021, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 202126
Á fundi Kristjáns Þórs Júlíus
sonar sjávarútvegs og land
búnaðar ráðherra með aðgerða
hópi sauðfjárbænda um heima
slátrun þann 25. febrúar kom
fram að hann hyggst heimila
næsta haust að sauðfjárslátrun
geti farið fram heima á bæjum
til markaðssetningar.
Ákvörðun ráðherra kemur í kjöl-
far útgáfu skýrslunnar Aukin verð-
mætasköpun við slátrun sauðfjár
á Íslandi, um tilraunaverkefni um
heimaslátrun á vegum atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytisins (ANR)
sem skilað var 1. febrúar. Fjallar
skýrslan um verkefni sem stóð yfir
í síðustu sláturtíð. Markmið þess
var meðal annars að leita leiða til að
auðvelda bændum sauðfjárslátrun
heima til markaðssetningar, með
það fyrir augum að auka möguleika
sauðfjárbænda til verðmætasköp-
unar.
Bændur slátruðu og tóku sýni
Í samantekt Hólmfríðar Sveinsdóttur
skýrsluhöfundar kemur fram að 25
býli hafi tekið þátt í verkefninu víðs
vegar á landinu og stóðu bændur
sjálfir að slátrun og sýnatökum
vegna mælinga á örverum og sýru-
stigi. Ávinningur verkefnisins er
að mati skýrsluhöfundar þríþættur;
könnun á áhuga bænda á slíku ver-
kefni og lausnunum sem þar voru
prófaðar, könnun á umfangi opin-
bers eftirlits og tímalengd skoðunar
og könnun á möguleikum rafrænnar
heilbrigðisskoðunar.
Þar kemur fram að magn gerla
hafi aldrei verið óásættanlega mikið
þegar sýni bárust rannsóknarstofu
innan 24 klukkustunda frá slátrun.
Sýrustig var einnig yfirleitt í góðu
lagi, en einungis á fjórum bæjum var
það yfir því sem gott þykir – eftir
12 til 24 klukkustundir frá slátrun.
Tæknileg vandamál
Í núverandi reglum er gert ráð fyrir
heilbrigðisskoðun opinberra dýra-
lækna fyrir og eftir slátrun þegar um
hefðbundið sláturferli er að ræða í
sláturhúsum. Í tilraunaverkefninu
var bændum skipt upp í tvo hópa
með tvenns konar fyrirkomulag heil-
brigðisskoðunar; heilbrigðisskoðun
á staðnum annars vegar og með raf-
rænum hætti í beinni útsendingu
hins vegar. Ellefu bæir fengu heil-
brigðisskoðun á staðnum en á 14
bæjum fór heilbrigðisskoðun fram
með rafrænum hætti. Fjórir dýra-
læknar á vegum Matvælastofnunar
tóku þátt í heilbrigðisskoðuninni á
bæjunum.
Í tilraunaverkefninu virðist hafa
gengið á ýmsu með rafrænu heil-
brigðisskoðunina þegar á heildina er
litið, samkvæmt samantekt skýrslu-
höfundar, Hólmfríðar Sveinsdóttur.
Netsamband var til dæmis í lagi á
fimm af 14 bæjum, í öllum rýmum,
þar sem heilbrigðisskoðun fór fram
með rafrænum hætti. Á helmingi
bæja var netsamband í lagi í sumum
rýmum, en á tveimur bæjum var net-
samband alls ekki í lagi. Myndgæði
fyrir heilbrigðisskoðun í rauntíma
voru að mati dýralæknis ekki í lagi
á neinum af þeim 14 bæjum sem
tóku þátt í heilbrigðisskoðun á raf-
rænan hátt.
Engin rafræn heilbrigðisskoðun
heppnaðist algjörlega
Myndskeiðsupptökur og myndir voru
hins vegar taldar í lagi á 12 bæjum af
14 þar sem rafræn heilbrigðisskoðun
fór fram. Ekki náðist þó að ljúka
heilbrigðisskoðun á fullnægjandi
hátt með rafrænni heilbrigðisskoðun
á neinum af þeim 14 bæjum sem
tóku þátt með þessum hætti. Helstu
ástæður sem dýralæknir nefndi voru
að ekki náðist í gegnum fjarbúnað
að fullvissa sig um að fullnægjandi
skoðun á eitlum hefði náðst en einnig
var erfitt að meta hvort hreinlæti við
meðferð afurða hefði verið gætt þar
sem myndskeið og myndir voru ekki
af þeim gæðum að hægt væri að meta
t.d. hár á skrokk.
Í samtali verkefnastjóra við dýra-
lækninn sem framkvæmdi rafræna
heilbrigðisskoðun kom fram að
myndgæði og netsamband hefðu ekki
verið nógu góð til að framkvæma
heilbrigðisskoðun í rauntíma. Í sam-
antekt skýrsluhöfundar kemur fram
þess beri að geta að ekki hafi verið
gerð krafa um ákveðinn
búnað í sambandi við
upptöku eða móttöku
myndefnis.
Tekið er fram að þar
sem staðið er að fram-
kvæmd rafrænnar heil-
brigðisskoðunar í fyrsta
skiptið í tilraunaverk-
efninu sé líklegt að eitt-
hvað af þeim tæknilegu
vandamálum sem við
var að etja gæti fækk-
að með þeirri vitneskju
sem byggst hefur upp í
verkefninu og aukinni
þróun í stafrænni tækni
i framtíðinni.
Þar sem heilbrigðis-
skoðun var gerð á staðn-
um gekk hún almennt
vel að sögn dýralækna,
sem og samskipti við bændur sem
voru einnig ánægðir með samskiptin.
Samtals var 112 lömbum slátr-
að í verkefninu, 49 á bæjunum þar
sem skoðun fór fram á staðnum og
68 lömbum á bæjum með rafræna
skoðun.
Heilbrigðisskoðunin á staðnum
tók að meðaltali mun skemmri tíma,
80,3 mínútur á hverjum bæ, eða um
18 mínútur á hvert lamb. Fyrir hvert
lamb tók þó 43 mínútur að keyra á
staðinn, skoða og rita skýrslu fyrir
hvert lamb.
Rafræn skoðun tók að meðaltali
120 mínútur á hverjum bæ, eða
24,7 mínútur á hvert lamb. Það tók
dýralækni að meðaltali um 31,7
mínútu á hvert lamb að skoða og
rita skýrslu.
Sýrustig í góðu lagi
Í verkefninu var fylgst með eftir-
farandi gæðaþáttum; sýrustigi í
vöðva 24 klukkustundum eftir
slátrun og örveruvexti á afurðum.
Bændur tóku sjálfir sýnin sem þurftu
sem fyrr segir og mældu sýrustig.
Sýni fyrir örverumælingarnar voru
send á rannsóknarstofu.
Í skýrslunni kemur fram að
vel hafi gengið hjá bændum að
mæla sýrustig og taka sýni fyrir
örverumælingar og koma þeim á
rannsóknastofu innnan tilskilins
tíma. Samtals voru 102 skrokkar
sýrustigsmældir. Viðmiðunarhámark
á sýrustigi í vöðvum í sauðfé er 5,8
við eðlilegar aðstæður þegar 12 til 14
klukkustundir eru liðnar frá slátrun.
Í verkefninu var meðalsýrustig um
5,66. Á fjórum bæjum voru meðal-
talsgildi sýrustigs yfir 5,8.
Gerlamagn aldrei
óásættanlega mikið
Meðaltal gerlafjölda við 30 gráður
var um 2,14 fjölda þyrpinga á
hvern fersentimetra yfirborðs. Gildi
fyrir ofan 4,3 telst óásættanlegt.
Enginn af þeim bæjum þar sem
sýni bárust á rannsóknastofu innan
24 klukkustunda var með gildi fyrir
ofan óásættanlegt gildi og 19 bæir af
23 bæjum voru með meðaltalsgildi
undir 2,8. Meðaltal iðragerla gilda
var um 0,13 á hvern fersentimetra
yfirborðs. Gildi fyrir ofan 1,8 telst
óásættanlegt. Enginn af þeim bæjum
þar sem sýni bárust á rannsóknastofu
innan 24 klukkustunda var fyrir
ofan óásættanlegt gildi. Einungis
einn bær var með gildið 1,8 og á 15
bæjum mældust ekki iðragerlar úr
stroksýnum.
Takmörkuð þekking á reglugerð
um lítil matvælafyrirtæki
Í samantekt á athugasemdum frá
þeim dýralækni sem fór á flesta
bæina til skoðunar kemur fram að
bændur hafi almennt haft takmark-
aða þekkingu á reglugerð um lítil
matvælafyrirtæki og hefðbundin
matvæli. Þeir hafi ekki gert sér
grein fyrir að eftirlitsgjald vegna
eftirlits dýralækna með kjötskoðun
væri bundið við krónutölu á hvert
innvegið kíló og það væri ákveðið
í reglugerð. Því hefðu bændur verið
búnir að ákveða fyrirfram að ef þeir
myndu koma sér upp sláturaðstöðu
yrði eftirlitskostnaðurinn meiri en
raunveruleg efni standa til.
Í athugasemdunum kemur einnig
fram að aðstæður bænda séu mjög
misjafnar og vegasamgöngur sem
og símasamband oft af mjög léleg-
um gæðum. Bæta þurfi þekkingu
bænda almennt varðandi heimaslátr-
un um hættuna af jarðvegsmengun,
til dæmis listeríu. Einnig þurfi að
auka þekkingu bænda á því að skera
óhreinindi í burtu frekar en að skola
af með vatni. Sumir bændur hafi
ekki verið meðvitaðir um það stress
sem getur skapast hjá dýrum þegar
þeim er lógað.
Átak til verðmætasköpunar
kynnt í mars
Samkvæmt heimildum úr ANR
verður átak til að ýta undir mögu-
leika sauðfjárbænda til verðmæta-
sköpunar kynnt í mars, en í því felst
að heimila heimaslátrun sauðfjár og
markaðssetningu afurðanna næsta
haust. Vísar ráðuneytið til frétta-
tilkynningar um aðgerðaáætlun til
eflingar íslensks landbúnaðar frá 17.
febrúar. Þar kom fram að meðal að-
gerða í mars verði að kynna átak til
að ýta undir möguleika bænda til að
framleiða og selja afurðir beint frá
býli til að styrkja verðmætasköpun
og afkomu þeirra fyrir næstu slát-
urtíð.
Með þeirri aðgerð verði stuðlað
að frekari fullvinnslu, vöruþróun,
og varðveislu verkþekkingar og
menningararfs við vinnslu matvæla.
Tilgangurinn sé að auðvelda land-
búnaðinum að nýta betur tækifærin
sem í því geta falist.
Í fréttinni kemur fram að fjár-
magn til að hrinda átakinu í fram-
kvæmd sé tryggt.
Ræturnar liggja í
Örslátrunarverkefni Matís
Rætur þessarar framvindu, að ANR
hafi staðið fyrir tilraunaverkefninu
síðasta haust og að nú hillir undir að
heimaslátrun og markaðssetning af-
urðanna verði heimil næsta haust, ná
til svokallaðs Örslátrunarverkefnis
Matís frá haustdögum 2018. Þá var
nokkrum lömbum slátrað heima á
bænum Birkihlíð í Skagafirði sam-
kvæmt tillögum Matís að reglum um
örslátrun og afurðir úr slátruninni
seldar í kjölfarið á bændamarkaði
á Hofsósi. Mælingar voru gerðar
meðal annars á örverum og sýru-
stigi – og kjötafurðirnar bornar
loks saman við afurðir sem komu
úr hefðbundinni sauðfjárslátrun.
Sveinn Margeirsson, þáver-
andi forstjóri Matís, stóð fyrir
Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is
FRÉTTASKÝRING
Slátrarateymið á Vaðbrekku á Efra-Jökuldal: Brynjólfur Júlíusson, Sigurður Aðalsteinsson, Aðalsteinn Hákonarson
og Aðalsteinn Sigurðsson, bóndi á Vaðbrekku. Mynd / Hjörtur Magnason
Hólmfríður Sveinsdóttir, skýrslu höfundur og verkefnisstjóri. Mynd / Aðsend
Testo 205 mælir notaður til að mæla sýrustig í
vöðva.
Tilraunaverkefni um heimaslátrun
sauðfjár á liðnu hausti gekk vel
– Engin sýni af þeim bæjum sem bárust á rannsóknastofu innan 24 klukkustunda var með óásættanlegt gerlagildi