Bændablaðið - 11.03.2021, Síða 44

Bændablaðið - 11.03.2021, Síða 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 202144 GRÓÐUR&GARÐALÍF Leynimakk kaldastríðsáranna Í trjásafninu í Meltungu í Kópa­ vogi er að finna plöntu sem ekki fer sérlega mikið fyrir. Og þó fögur sé er engin ástæða til að ætla að bakvið hana liggi dular­ full saga sem teygir anga sína víða um Evrópu. Á skiltinu stendur „Kákasusgreni – Picea orientalis“ og hefst sagan þar. Margir hafa eflaust ekki einu sinni heyrt um slíka tegund áður og líta bara á þetta sem „jólatré“. Ekki skrýtið, þar sem einungis er vitað um tvö skilti hér á landi, sem halda þessu nafni að almenningi. Hitt skiltið er við gamalt tré í Grasagarði Reykjavíkur og get ég sparað ykkur sporin: Fyrir utan að vera áberandi stærra og eldra er tréð í Laugardalnum eins og merkt með sama hætti. Það sem gerðist næst mun hneyksla ykkur og hræða! Í sakleysi mínu deildi ég myndinni af þessu fagra tré í Meltungu með erlendum kunnáttumönnum í barrtrjárfræðum. „Sjáiði hvað við eigum nú fínt kákasusgreni hérna í miðju Atlanshafinu“ sagði ég reyndar ekki, en svona því sem næst. Við tók hálfgerður skrípaleikur, þar sem annar þeirra sagði: „Já en, þetta er nú ekki kákasusgreni ...“ og hinn sagði: „Þetta vaxtarform og þessi litur á barrinu útilokar raunar algerlega að þetta geti verið kákasusgreni ...“ Þetta sögðu þeir reyndar á öðru tungumáli, en ég taldi einfaldara að þýða það yfir á íslensku hér. „Jújú, víst er þetta kákasus­ greni, sjáið bara þetta fína skilti. Svo var ég líka búinn að bera það saman við kákasusgreni í okkar fína Grasagarði og þessi tré eru eins. Ég skal bara sýna ykkur fleiri myndir, af báðum trjánum, til að sanna mál mitt og halda uppi heiðri íslenskra trjáskilta!“ Við nánari myndum af yngra trénu sögðu þeir báðir að mynd­ irnar staðfestu grun þeirra og raunar væri þeim núna báðum ljóst að um væri að ræða svokallað purpura­ greni (Picea purpurea). Hvernig gæti það staðist, þessi planta er svo lík kákasusgreninu í Laugardal? Jú – einfalt svar: sú planta er líka purpuragreni! Um alla viðstadda fór augljós hrollur. (Ég var einn við tölvuna.) Sherlock Holmes var upptekinn Þetta krafðist nánari rannsókna og enginn tími til að finna annan mann í verkið. Hér voru menn sem vissu um hvað þeir voru að tala. Lagðist ég því í miklar og djúp­ stæðar langtímarannsóknir, sem fólu ekki síst í sér að senda skilaboð á nokkra aðila úr Garðyrkjufélaginu, Trjáræktarklúbbnum og Skóg rækt­ inni. Auk þess leitaði ég upplýsinga hjá forstöðumanni Grasagarðsins og garðyrkjustjóra Kópavogs. Mörgum árum af gagnavinnslu síðar var komin upp áhugaverð staða í mál­ inu: Eldra tréð kom upprunalega til landsins árið 1965 frá Þýskalandi og var þá merkt sem purpuragreni! Ég legg til að lesendur taki smá pásu hér til að ná aftur blóðþrýstingnum niður. Fölsuð skilríki: Af hverju þurfti að leyna réttu nafni? Enskur sérfræðingur kom til landsins árið 1982, sá tréð og var harður á því að merkingin gæti ekki staðist. Plantan væri í raun kákasusgreni. Það reyndist ekki vera í síðasta sinn sem Englendingur mótmælti Þjóðverjum og sökum þessa Englendings var trjágreyið skyndilega fjarlægt úr sambandi purpuragrenitrjáa. Fræga fólkið í sögunni Þetta leynimakk á kaldastríðs árunum var orðið ansi dular fullt. Hafsteinn Hafliðason, garðyrkju maður Íslands, man eftir því þegar tréð kom til lands­ ins, í strigapoka, ásamt fleiri barr­ trjám. Hann var nefnilega staddur þarna við tvö aðra menn að planta þessum trjám. Þetta eintak var svo sannarlega merkt purpuragreni við komuna. En hvað þá með tréð í Meltungu, sem var plantað löngu eftir brottför Englendingsins dularfulla? Kemur þá til sögunnar annar þjóðþekktur maður í bransanum, Jón Guðmundsson, garðyrkju­ fræðingur og aðal ávaxtaræktandi Akraneskaupstaðar, ef ekki landsins. Upp úr aldamótum starfaði hann við gróðrarstöðina Mörk í Fossvogi og höfðu þau fengið nokkra grenisprota frá Grasagarðinum. Hugmyndin var að reyna fjölgun þeirra. Sjálfur staðfesti hann við mig að hafa grætt þessa sprota á aðra rótarstofna af greniætt. Hann klónaði þar með tréð í Laugardalnum og árið 2011 var eitt slíkt klón gróðursett í nærliggj­ andi trjásafni, undir fölsku nafni móðurplöntunnar. Tréð „unga“ í Meltungu, er því í raun sama tréð og í Laugardalnum! „Og nú á tveimur stöðum á landinu ...“ Skyldi tréð í Laugardal þá vera blendingur, sem hafi ruglað þann enska í ríminu, eða sigldi sá kannski undir fölsku flaggi og var í raun bara pylsusali frá Óðinsvé? Líklega munum við aldrei kom­ ast að hinu sanna í málinu, en hitt virðist þó ljóst að tréð sem var upp­ runalega purpuragreni, er bara enn þá purpuragreni. Purpuragreni sem óttaðist kannski um framtíð sína og laumaði því afleggjara sínum í burtu á öruggari stað. Óstöðugleiki nútímans Öryggistilfinningin hverfur hratt þessa dagana. Stöðugleiki virðist enginn. Svart er í raun hvítt, en svo skyndilega aftur orðið svart áður en maður veit af. Við þessu er bara eitt ráð: drífa sig að skoða trén í Meltungu og Laugardal áður en skiltunum er breytt, svo maður geti haldið áfram í gömlu tímana. Sé fólk hins vegar háð síbreytilegri fjölbreytni nútímans, þá getur það drifið sig á staðinn sem fyrst og svo skroppið aftur ef/þegar skiltin hafa verið uppfærð. Hvílík rússi­ banareið! Hvað með Akureyri? Til að halda í við þessar hröðu breytingar tilverunnar þarf líklega að heimsækja þessa staði sem oftast, svo maður missi nú ekki af neinu í hasarnum. En ekki tak­ marka ykkur við þessa tvo staði, Lystigarður Akureyrar getur boðið ykkur upp á eintak af purpuragreni sem hefur alla tíð verið rétt merkt – eða reynist það kannski að lokum vera kákasusgreni? Gangið, nei hlaupið, í Garð­ yrkjuf élagið og styrkið Skóg­ ræktina, heimsækið skóg ana sem okkur er loks að takast að rækta upp hér á landi og dáist að görðum samlanda ykkar á garða­ skoðunardegi Garðyrkjufélagsins. Án þessara samtaka hefði vantað heilu línurnar í þessa frásögn, svo ekki sé minnst á hinar risastóru eyður sem væru í okkar landslagi og görðum! Kristján Friðbertsson Kristján Friðbertsson. Grenið dularfulla í trjásafninu í Meltungu. Mynd / Kristján Friðbertsson SAMFÉLAGSRÝNI Það er ljóður á ráði manna að halla réttu máli til að upphefja eigin málflutning. Grein Þórarins Lárussonar Mótvægisaðgerðir ... o.s.frv. hér í Bændablaðinu 25.febr. s.l. ber því miður með sér þennan löst. Greinin er barmafull af rang færslum og villandi full­ yrðingum. Votlendissjóður var ekki settur á laggirnar af opi­ berri hálfu. Hann var stofnað­ ur af samfélagslega ábyrgum einstakingum, fyrirtækjum og stofnunum. Hann nýtur hvorki styrkja úr ríkissjóði né er hann hagnaðardrifinn. Stjórn hans er ekki launuð. Sjóðurinn hefur aðeins einn launaðan starfs­ mann. Í kringum hann er ekkert „lið ráðið af ríkinu“. Höfundur vandar ekki verk sitt, þegar hann telur sig vera að veita upplýsingar um Votlendissjóð. Óþarfi er að eyða frekari orðum að dylgjum Þórarins um „svo­ nefndan Votlendissjóð“. Endurheimt votlendis er mikið alvöru mál sem ekki ber að hafa í flimtingum. Í samræmi við útreikn­ inga og rannsóknir okkar eigin vís­ indamanna þá losar hver hektari af framræstri mýri um 20 tonn af koldíoxíðsígildium. Framræst land ber ábyrgð á yfir 60% af allri losun landsins af gróðurhúsaloft­ tegundum – hvorki meira né minna. Aðeins lítill hluti af framræstu landi er notaður til búvöruframleiðslu eða tengdra nota. Það er margyfirlýst stefna sjóðsins að ekki verði leit­ ast eftir neinu landi sem nýtt sé til landbúnaðar. Vandinn sem við ein­ beinum sjónum okkar að, er þessi ógnarmikla losum gróðurhúsaloft­ tegunda af landi sem ekki er nýtt. Þótt reynt verði að binda kolefni með margs konar gróðri, sem er góðra gjalda vert og nauðsyn­ legt, heldur losunin ótrauð áfram. Meðan hún er ekki stöðvuð jafn­ gildir binding kolefnis í jarðvegi og gróðri því „að verið sé að sópa vandanum undir teppið“. Hve öflug er svo binding koldí­ oxíðsígilda af jarðargróðri? Höfum til viðmiðunar þau 20 tonn af kolefnisbindingu sem endurheimt votlendis stöðvar árlega á hektara. Skógrækt er talin binda að meðal­ tali 4,4 tonn árlega af kolefnisein­ ingum (en er þó afar breytileg eftir tegundum), landgræðsla milli 1,5 og 2,1 tonn. Eitt tré bindur um 110 til 310 kg. í heil 90 ár! Skógrækt og landgræðsla eru allra góðra gjalda verðar og nauðsynlegar en jákvæð­ ur árangur þeirra kemur ekki í veg fyrir þá losun sem framræstur jarð­ vegur veldur. Aðalmunurinn er sá að skógrækt og landgræðsla, sem báðar eru mikilvægar, stöðva ekki losunina. Ekkert kemur í stað þess að stöðva losunina annað en endur­ heimt votlendis. Loftslagsváin er alvarlegasta ógnun mannkyns. Glímuna við hana má ekki kæfa í draumórum um óraunhæfa og ósjálfbæra fram­ leiðslu á vöru sem nóg er af í okkar heimshluta, og lítil áhrif hefðu á framgang ofhitunar umhverfisins. Við verðum að stöðva útblástur koldíoxíðs hvar sem það ríkur út í andrúmsloftið. Ef fram heldur sem horfir með hlýnun lofthjúpsins, sjávarins og jarðarinnar munum við Íslendingar þurfa að takast á við mun alvarlegri viðfangsefni sem ekki leysast með ræktun hamps eða repju. Vinnum af skynsamlegu viti gegn þessari vá. Við munum þurfa á öllu okkar hugviti að halda. Þröstur Ólafsson, stjórnarformaður Votlendissjóðs Mótvægisaðgerðir Þórarins Lárussonar Þröstur Ólafsson. Bænda 25. mars

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.