Bændablaðið - 11.03.2021, Síða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 202146
Seint á síðasta ári prófaði ég
Maxus sendibílinn og var ekkert
yfir mig hrifinn og með frekar
litlar væntingar fór ég í Vatt
ehf. og fékk til prufu sjö sæta
rafmagnsfólksbílinn Maxus Euniq
5.
Bíllinn er með 177 hestafla
rafmagnsvél, uppgefið tog er 310
Newtonmetrar (Nm) og uppgefin
drægni á fullhlaðinni rafhlöðu
er sögð vera 356 km við bestu
aðstæður.
Frábært verð ef reiknað er út
frá sætafjölda og aukabúnaði
Bíllinn er mjög vel útbúinn,
sérstaklega ef maður skoðar
öryggisbúnað,öryggisloftpúðar
fyrir framan framsætin ásamt
hliðaröryggispúðum, loft púða
gardínur í hliðum, neyðar
hemlunarvari (sló inn hjá mér í akstri
þegar bíll kom úr hliðarakrein og
stakk sér inn í umferðina óþægilega
nálægt bílnum á um 60 km hraða),
blindhornsvari, akreinalesari og
margt fleira. Það er örugglega erfitt
að finna sjö sæta bíl á sambærilegu
verði og Maxus Euniq 5, sem kostar
ekki nema 6.690.000 (rétt undir
milljón hvert sæti).
Það væri ósanngjarnt
að bera saman Maxus sendibílinn
og þennan fólksbíl
Eins og áður sagði var ég með litlar
væntingar um bílinn áður en ég
settist inn í hann, en það átti heldur
betur eftir að breytast. Þó svo að ég
hafi séð margan fallegri bílinn þá
fór ég fljótlega að hugsa um bílinn
svipað og þegar ég kaupi mér
öryggishjálm til mótorhjólaaksturs.
Hjálmur hefur fyrir mér ekkert með
útlitið að gera, hann á bara að verja
höfuðið þegar ég hendist á hausinn
á mótorhjólinu.
Allar innréttingar eru vandaðar,
sætin góð og leðurklædd. Ég mátaði
þau öll 7, en eina sætið sem ég var
ekki að „fíla“ var miðjusætið í
miðsætaröð.
Hávaðamælingin kom vel út á
90 km hraða, en þar mældist bíllinn
vera í 68,9 db. (allt undir 70 db. er
gott að mínu mati).
Prufuaksturinn var
rétt rúmir 100 km
Þegar ég fékk bílinn var hann ekki
alveg fullhlaðinn, en samkvæmt
mælaborði var eftir 211 km drægni
á rafhlöðunni. Þegar ég var kominn
niður í 111 km drægni hafði ég ekið
64 km og ekkert að spara rafmagnið í
kulda (hiti í kring um +2 til 4), með
miðstöðina í botni, sætishitarann á
og búinn að keyra mest upp í móti og
kominn á bílaplanið á skíðasvæðinu
í Skálafelli. Hef séð rafmagnsbíla
telja hraðar niður drægnina hjá mér
í prufuakstri.
Á malarvegi var fjöðrunin ágæt
og heyrðist nánast ekkert malarhljóð
undir bílnum, en mér fannst flatur
afturendinn sóða sig óþægilega
mikið út þarna á blautum og drullug
um malarveginum. Bíllinn er heldur
ekki mjög hár undir lægsta punkt,
eða 16,4 cm.
Góður og notadrjúgur 12,3
tommu snertiskjárinn
Bakkmyndavélin fannst mér vera
algjör snilld, 360 gráðu myndavél
sem sýnir bæði aftur fyrir bílinn
og nemur það sem er við hliðina á
bílnum þegar bakkað er.
Ég bý í innsta raðhúsinu þar
sem eru 9 húsanúmer og í fyrstu 5
er almennt ekki útiljós og þegar ég
bakkaði þar inn við fyrstu húsin kom
það mér á óvart hvað bakkmynda
vélin sýndi vel aftur fyrir bílinn í
myrkrinu.
Svo þegar ekið er af stað og
maður er undir 20 km hraða sýnir
bíllinn fram fyrir bílinn og nemarnir
sýna það sem er við hlið bílsins.
Svo er í bílnum akreinalesari sem
virkar fínt og þegar maður er stopp á
ljósum við stöðvunarlínu kviknar á
skjánum stöðvunarlínan og nemarnir
sýna hliðar. Samanber á Grensásvegi
er við hlið bíla lína og akrein sem
ætluð er hjólreiðafólki. Bíllinn les
þetta og lætur vita af hjólreiðamanni
við hlið bíls þegar beðið er eftir
grænu ljósi.
Lokaorð, meira
jákvæð en neikvæð
Á bílnum er ljósatakkinn með
„auto“ og þá eru ekki ljós að aftan
þegar úti er bjart. Það er í lagi að
kveikja bara ljósin og hundsa það
að slökkva þau þegar maður stoppar
og yfirgefur bílinn því ljósin slökkva
á sér sjálfkrafa eftir um 3050 sek.
Eins og í öðrum rafmagnsbílum
er ekkert varadekk í bílnum. Þó að
sætin séu 7 þá má ekki hlaða bílinn
nema 525 kg þannig að samkvæmt
því má ekki setja í öll sætin fullvaxna
100 kg Íslendinga (þá er bíllinn
komin yfir hleðslumörk).
Farangursrýmið er nánast ekkert
þegar öll 7 sætin eru uppi, en þegar
þau eru niðri er farangursrýmið að
slaga upp í rými sendibíls.
Það truflaði mig svolítið að hafa
ekki útihitamæli í mælaborðinu
(sem mér finnst bráðnauðsynlegt á
Íslandi).
Þótt útlitið hafi verið að trufla
mig á bílnum þá er svo mikið
spunnið í þennan bíl að hann ætti að
henta mörgum, er umhverfisvænn,
ódýr og vel útbúinn öryggislega séð.
Nánari upplýsingar um bílinn er
hægt að nálgast á vefsíðunni www.
vatt.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Sjö sæta Maxus rafmagnsfólksbíll
Maxus Euniq 5. Myndir / HLJ
Öll sætin 7 eru vönduð og þægilegt að sitja í þeim öllum, en sísta sætið er
miðjusætið í miðröð.
Þegar ekið er af stað sýnir skjárinn fram fyrir og nemur nágrennið á hraða
undir 20.
Þegar bakkað er í myrkri sýnir bakkmyndavélin óvenju skýra mynd og
nemarnir nema hliðarnar.
Mér fannst sárlega vanta útihitamæli í mælaborðið.
Með öll sæti niðri slagar plássið upp í sendibílapláss.
Fólksbíllinn frá Maxus er mun betur
hljóðeinangraður en sendibíllinn
þeirra.
Lengd 4.825 mm
Hæð 1.778 mm
Breidd 1.825 mm
Helstu mál og upplýsingar