Bændablaðið - 15.04.2021, Page 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 7
LÍF&STARF
L ítið gengur mér að afla kveðskapar af Austurlandi. Þó ber ekki að vanmeta þær vísur sem mér bárust úr safni
Braga Björnssonar frá Surtsstöðum, og
munu þær skreyta þáttinn frekar þegar fram
líður. Samt barst þættinum verðmætt bréf
frá Jóhannesi bónda á Gunnarsstöðum,
en þar segir:
„Eitthvað var mér þungt í skapi út í þau
öfl sem hér hafa vaðið yfir samfélagið og
sölsað undir sig hlunnindi og land í ríkum
mæli, líkt og rómuðustu nýlenduherrar
mannkynssögunnar væru endurbornir.
Eins og stundum vill verða féllu hugsanir
í hendingar:“
„Blessuð sértu sveitin mín.“
Sjást nú endalokin,
þegar yfir öllu gín
auðvaldið og hrokinn.
Í síðasta þætti birtust stökur eftir Orm
Ólafsson. Nokkuð gekk af því efni,
og verður þar um bætt hér. Fyrir eitt af
Landsmótum hagyrðinga orti Ormur
gleðisöng sem fluttur var við góðar
undirtektir viðstaddra:
Hér í glaumi glaðværðar
gefum tauminn slakan.
Oft í flaumi fagnaðar
fæðist draumastakan.
Lífsins teyguð lindin er,
lokka veigar glasa,
enda mega ýmsir hér
eiga fleyg í vasa.
Þótt vínið gylli villustig,
vart að snillin flýi.
Lítið illa leggst í mig
að lenda á fylleríi.
Gleymist stress í gleðisöng,
glasi hressir bifa.
Nóttin blessuð nógu löng.
Njótum þess að lifa.
En að öðru og eldra efni. Jón biskup
Vídalín orti um Guðmund Bergþórsson,
fatlaðan gáfumann og skáld:
Heiðarlegur hjörvagrér,
hlaðinn mennt og sóma.
Yfir hann ég ekkert ber
utan hempu tóma.
Guðrún Þórðardóttir var kona vel
hagmælt. Eitt sinn kom til hennar Símon
Dalaskáld og kvað á gluggann:
Svifinn norðan svönnum frá
Símon Bjarna niður.
Guðar svona gluggann á,
gisting húsa biður.
Guðrún svaraði um hæl:
Amafrír og orðheppinn,
æ með frjálsu sinni,
veri Símon velkominn
vor í húsakynni.
Illugi Einarsson, mývetnskur hagyrðingur,
kvað við Gamalíel í Haganesi:
Ég er að tálga horn í högld.
Hagleiks snilld er burtu sigld.
Gamalíel botnaði að bragði:
Illugi felldi tröllið Tögld.
Trúi ég hún væri brúnayggld.
Guðmundur Friðjónsson á Sandi í
Aðaldal orti um Erling bróður sinn ungan:
Elli er mikið upp á heim,
eigi ‘ann Helgu í næði.
Kvensemis af kynjum tveim
komin eru bæði.
Erlingur Friðjónsson sjálfur orti svo á
skömmtunarárunum:
Komin er þjóð í krappa nauð.
Kelur gróðahrókinn.
Nú er orðið náðarbrauð
náttkjóllinn og brókin.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
271MÆLT AF
MUNNI FRAM
Reynir Þór Jónsson og Fanney Ólafsdóttir með verðlaunin sín fyrir að vera með afurðahæsta kúabúið á Suðurlandi árið 2020.
Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Búnaðarsamband Suðurlands:
Hurðarbaksbúið og Birtingarholt verðlaunuð
Nýlega kallaði Sveinn Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri Búnaðarsambands
Suðurlands, kúabændurna á Hurðarbaki
í Flóa, þau Fanneyju Ólafsdóttur og
Reyni Þór Jónsson, ásamt Fjólu Ingveldi
Kjartansdóttur, kúabónda í Birtingarholti
í Hrunamannahreppi, á sinn fund. Ástæðan
var sú að hann var að veita þeim verðlaun.
Annars vegar fékk Hurðarbaksbúið
verðlaun fyrir að vera afurðahæsta búið á
Suðurlandi 2020.
Hins vegar fékk kúabúið í Birtingarholti
verðlaun fyrir afurðahæstu kúna á Suðurlandi
2020, sem var Ösp hjá Fjólu Ingveldi og
Sigurði Ágústssyni. Hún mjólkaði 14.062
kg. Meðalafurðir voru 8.445 kg á árskú á
Hurðarbaki 2020 en búið var líka afurðahæst
árið 2019. Á bænum eru um 50 mjólkandi
kýr. /MHH
Fjóla Ingveldur Kjartansdóttir með verðlauna
gripina sem þau Sigurður Ágústsson fengu fyr
ir Ösp, en hún mjólkaði 14.062 kg á síðasta ári.
Hanzi er eini hundur landsins sem
er með vottun til að leita að myglu
„Hanzi er frábær hundur sem er að reynast
mjög vel. Hann er fjögurra ára, fluttur inn
frá Svíþjóð og þjálfaður frá grunni af mér.
Það er meira en nóg að gera hjá okkur en
við erum í samstarfi við Mannvit þegar
kemur að því að leita að myglu í húsum,“
segir Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir
hundaþjálfari, sem býr á bænum Selási í
Holtum í Rangárþingi ytra.
Hanzi er fyrsti og eini mygluhundurinn á
Íslandi með vottaða úttekt til leitar frá þýsku
umhverfisstofnuninni.
Brjálað að gera um páskana
„Það var brjálað að gera hjá okkur um páskana
en Hanzi var þá að leita á stöðum þar sem
enn var að greinast mygla þrátt fyrir að búið
væri að lagfæra sjáanlegar skemmdir. En þar
nýtist hann einmitt best, þar sem við sjáum
ekki ummerki.
Ég hvet fólk, ef það hefur grun um leynda
myglu í húsum, finnur fyrir óútskýrðum
höfuðverkjum, raddleysi eða öðrum veikindum
sem tengjast ákveðnum rýmum og vilja athuga
hvort mygla gæti verið að hreiðra um sig, hafi
samband við mig í tölvupósti á allirhundar@
gmail.com og fyrir frekari skoðanir, úttektir
og mat á byggingum að hafa samband við
verkfræðistofuna Mannvit,“ segir Jóhanna enn
fremur. /MHH
Hanzi er vinnuhundur og að vinna við leit er
það skemmtilegasta sem hann gerir, ekki síst
þegar um myglu er að ræða. Hann er þjálfaður
upp af Jóhönnu Þorbjörgu.
Hér er Jóhanna Þorbjörg og tíkin Hallbera,
sem hún er að þjálfa upp í efnaleit. Hallbera
er innflutt frá Lettlandi, rúmlega eins árs og
einn efnilegasti vinnuhundur sem Jóhanna
hefur komist í tæri við.