Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 11
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 11
Flutningur Búnaðarstofu frá MAST til ráðuneytis:
Ráðuneytið telur flutninginn hafa verið framfaraskref
– Enn er beðið eftir áliti umboðsmanns Alþingis við fyrirspurn BÍ
Bændasamtökin óskuðu fyrr á
árinu eftir áliti umboðsmanns
Alþingis á flutningi starfsemi
Búnaðarstofu frá MAST til
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytisins. Bent var á að í slíkum
flutningi fælist mögulega brot á
lögum um opinbera stjórnsýslu.
Bændablaðið óskaði því eftir
upplýsingum um fyrirkomulag
á verkefnum sem snúa að fram-
kvæmd búvörusamninga innan
ráðuneytisins.
Bændasamtökin bíða enn eftir
áliti umboðsmanns Alþingis, en í
svari ráðuneytisins við fyrirspurn
Bændablaðsins segir:
„Verkefni sem áður tilheyrðu
búnaðarstofu Matvælastofnunar
voru flutt til ráðuneytisins með
lögum nr. 84/2019 sem samþykkt
voru á Alþingi 13. júní 2019. Með
lögunum voru stjórnsýsluverkefni
við framkvæmd búvörusamninga
og söfnun hagtalna um búvörufram-
leiðslu færð frá Matvælastofnun til
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytisins og heyra þau verkefni nú
undir nýja skrifstofu landbúnaðar-
mála í samræmi við markmið um
að efla stjórnsýslu landbúnaðarmála
innan ráðuneytisins.“
Telur tilfærslu verkefnanna frá
Matvælastofnun til ráðuneytisins
hafa verið framfaraskref
„Nýtt skipurit atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins tók
gildi í október 2020 en með
breytingunum urðu til þrjár nýjar
fagskrifstofur í stað tveggja áður.
Markmið skipulagsbreytinganna
var að efla stjórnsýslu, skilvirkni
og þjónustu ráðuneytisins með
bættum vinnubrögðum, öflugu
skipulagi og skýrri verkaskiptingu
sem styður við fjölbreytt verkefni.
Hlutverk skrifstofu landbún-
aðarmála er að skapa skilvirka
umgjörð um landbúnaðarfram-
leiðsluna. Á skrifstofunni starfa
11 starfsmenn með fjölbreytta
þekkingu sem nýtist vel í þeim
verkefnum sem þar er sinnt.
Verkefni er varða framkvæmd
búvörusamninga og söfnun
hagtalna heyra undir verkefni
skrifstofunnar og eru þannig
afmörkuð með skýrum hætti
innan ráðuneytisins. Starfsmenn
skrifstofunnar vinna saman að því
að tryggja skilvirka framkvæmd
samninganna, framþróun í staf-
rænni þjónustu og upplýsinga-
söfnun og -miðlun.
Ráðuneytið telur tilfærslu verk-
efnanna frá Matvælastofnun til ráðu-
neytisins hafa verið framfaraskref
sem er til þess fallið að efla stjórn-
sýslu og stefnumótun á málefnasviði
landbúnaðar.“ /HKr.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra.
VIÐ HESTAFRÆÐIDEILD HÁSKÓLANS Á HÓLUM er laus staða lektors. Við erum að leita eftir einstaklingi
sem hefur þekkingu og reynslu á sviði hestafræða eða í skyldum greinum, s.s. búvísindum eða dýralækn-
ingum. Þekking á kennslufræði er kostur. Mikilvægt er að búa yfir reynslu og miklum áhuga á hestum.
Í STARFINU FELST:
• Kennsla í grunn-og framhaldsnámi
• Rannsóknir og öflun rannsóknastyrkja
• Virk þátttaka í gæðastarfi og stjórnun deildarinnar og háskólans
• Erlent og innlent samstarf
MENNTUNAR- OG HÆFNIKRÖFUR:
• Meistaragráða eða sambærilegt, doktorspróf er kostur
• Reynsla af rannsóknum og stjórnun
• Hæfni í samskiptum og geta til samstarfs í nútímaháskólaumhverfi
• Ábyrgð, frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
Hestafræðideild Háskólans á Hólum býður upp á BS nám í reiðmennsku og reiðkennslu auk meistaranáms
í hestafræðum. Markmið Hestafræðideildar er að veita fagmenntun á sviði reiðmennsku, reiðkennslu,
tamninga og hestahalds og að vinna að þróun og nýsköpun með rannsóknastarfsemi.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opin-
bera háskóla nr. 85/2008 og reglna um nýráðningar og framgang akademískra starfsmanna við Háskólann
á Hólum. Launakjör eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Um starfskjör,
réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Um 100 % stöðu er að ræða. Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2021 og er æskilegt að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinn Ragnarsson, deildarstjóri, í síma
861 1128, netfang sveinn@holar.is.
Umsóknir skulu berast á netfangið umsoknir@holar.is merktar „lektor hestafræði“. Með umsókn skal
fylgja afrit af prófskírteinum, ferilskrá og samantekt fræðastarfs. Einnig skal fylgja kynningarbréf þar sem
umsækjandi gerir grein fyrir störfum sínum við
kennslu og rannsóknir. Umsækjandi skal
útvega tvenn meðmæli sem meðmælendur
sendi beint á ofangreint netfang.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
HÓLASKÓLI -
HÁSKÓLINN Á HÓLUM
Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 · holaskoli@holar.is · www.holar.is
STAÐA LEKTORS VIÐ
HESTAFRÆÐIDEILD
HÁSKÓLANS Á HÓLUM
Kirkjubæjarklaustur:
Gestastofa
í útboð
Framkvæmdasýsla ríkisins fyrir
hönd umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytisins hefur nú opnað
fyrir útboð á byggingu nýrrar
gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs
við Kirkjubæjarklaustur.
Gestastofan mun rísa á lóð sunn-
an Skaftár á móts við sundlaugina
á Kirkjubæjarklaustri og mun
tengjast við þorpið með göngubrú.
Gestastofan mun þjóna upplýsinga-
gjöf til ferðamanna um þjóðgarðinn
og nágrannasvæði hans, auk þess
sem þar verður vönduð fræðslusýn-
ing um náttúru og mannlíf svæðisins.
Í útboðinu kemur fram að byggingin
er einna hæðar bygging með kjallara
undir hluta hennar og mun hún falla
vel að landinu og verður þakið lagt
með torfi. Nú þegar er búið að grafa
fyrir húsinu en sú framkvæmd var
boðin út sérstaklega. Þetta kemur
fram í tilkynningu á heimasíðu
Vatnajökulsþjóðgarðs. /MHH
Íbúum fjölgar
stöðugt í Ölfusi
Íbúum í Sveitar-
félaginu Ölfuss
hefur fjölgað
mikið á síð-
ustu tveimur
árum og held-
ur enn áfram
að fjölga.
„Já, fjölgunin
hefur verið hröð
því á rúmum tveimur árum hafi
fjölgað um rúmlega 10% og ekki
sé annað að sjá en að áframhaldandi
fjölgun verði. Siðan 1. desember
síðastliðn hefur íbúum t.d. fjölgað
um 47 eða 2%. Til samanburðar
fjölgaði íbúum í Árborg um 0,6%
og Hveragerði um 0,2% á þessum
tíma,“ segir Elliði Vignisson, bæj-
arstjóri. Íbúar sveitarfélagsins eru í
dag um 2.500. /MHH
Elliði Vignisson.