Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 23
STRÚKTÚR ehf | Bæjarflöt 9 | 112 Reykjavík | struktur@struktur.is | Sími: 588 6640
Nú á allt að seljast. Eigum þessar lengdir á lager.
Litað bárujárn
Þykkt: 0,60 mm
Breidd: 1045 mm
Klæðir: 988 mm
3.600 kr m² m/vsk.
40% afsláttur meðan birgðir endast
2.160 kr m² m/vsk
RAL 8012 Dumbrautt
Lengd: 6.700 mm
Lengd: 6.940 mm
RAL 9005 Svart
Lengd: 4.800 mm
Plata = 6,7 * 0,988 = 6,62 m2
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
LÍF&STARF
Ágætu viðskiptavinir
HÁ Verslun ehf. er nýr dreifingaraðili fyrir
Husqvarna á Íslandi.
Fáðu verðtilboð hjá okkur í steinsagir,
kjarnabora, keðjusagir, sláttuvélar og fleira
frá Husqvarna Construction og Husqvarna
Forest and Garden.
HÁ Verslun ehf. • Víkurhvarfi 4 • 203 Kópavogi
Sími: 588-0028 & 897-3650
Netfang: haverslun@haverslun.is
Opið fyrir umsóknir fyrir skóla-
árið 2021–2022. Nánari upplýsingar
er að finna á www.lydflat.is
lýðskólinn
á
flateyri
Áskell Þórisson, fyrrum ritstjóri
Bændablaðsins og upplýsinga-
fulltrúi Land græðslunnar, er
mikill unnandi íslenskrar náttúru
og skoðar hana grannt í gegnum
myndavélaraugað. Myndir hans
þekkja margir og nú hafa þær
fengið alveg nýjan tilgang sem
mynstur á kjólaefni.
Áskell segist hafa fengið Eygló
Gunnarsdóttur, kennara og sauma-
konu á Akranesi, til að sauma fyrir
sig kjóla úr þessu myndarlega
kjólaefni á dóttur sína, Laufeyju
Dóru. Hún hefur einmitt stutt við
bakið á föður sínum í þessu kjóla-
brasi.
„Á þessum myndum má m.a. sjá
jurtir og loftbólur í gegnum ís hjá
Skarðsheiði, klaka hjá Berjadalsá
og mig minnir að kjóllinn með
blómunum eigi rætur á Hellisheiði.
Ég þarf að athuga það betur. Sumsé,
íslensk náttúra á íslenskum kjólum!
Allt er þetta gert á eins umhverfis-
vænan hátt og er mögulegt
Enn um sinn höfum við orðið að
láta prenta þetta á efni í Bretlandi en
ég fann enga prentsmiðju með rétt-
ar græjur og umhverfisvæn kjóla-
efni á Íslandi. Þess skal getið að
Uppbyggingarsjóður Vesturlands
stóð þétt við bakið á okkur við
hönnun og framleiðslu. Án hjálp-
ar sjóðsins hefðum við aldrei lagt
út á hin hálu tískusvell, en það er
ungur fatahönnuður, Sunna Dís
Hjörleifsdóttir, sem á heiðurinn
af sniðunum,“ segir Áskell. /HKr.
Íslensk náttúra á íslenskum kjólum
Áskell Þórisson og Laufey Dóra, dóttir hans, við fyrstu þrjá kjólana. Mynd / Eygló Gunnarsdóttir.