Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 25
að hringrásarhagkerfi og eru aðlöguð
að því magni úrgangs sem er í boði.
Þó að ferlið sjálft á bak við kolefn-
isvatnshitun hafi verið þekkt í 100
ár þá hefur það ekki verið notað í
iðnaðartilgangi nema síðustu 20 árin.
Áburðurinn verður til við vinnsl-
una en hráefnið sem verður
notað breytist annars vegar
í þurrefni, sem inniheldur að
megninu til hreint kolefni,
og hins vegar að vatni sem
inniheldur meðal annars
steinefni, sykrur og lífrænar
sýrur. Þau efni sem eru í hvað
ríkustum mæli í frávatninu
eru nitur, fosfór og kalíum –
og líkt og með annan tilbúinn
áburð verða þau uppistaðan
í áburðinum sem KindaKol
kemur til með að framleiða.
Kindakolin sjálf, það er
þurrefnið sem verður til,
virka einnig vel í landbúnað-
artilgangi en rannsóknir hafa
bent til þess að þau auki bæði
frjósemi og vöxt plantna. Svo
eru að sjálfsögðu miklir kost-
ir fólgnir í því hversu mikið
kolefni binst í jarðveginum
ásamt því að stór yfirborðs-
flötur lífkola gerir það að
verkum að þau geta haldið
miklu vatni sem stuðlar að
rakari jarðvegi. Slíkur jarð-
vegur losar betur næringar-
efni sem hafa safnast upp í
þurrkum.“
Hvað verður um
úrganginn okkar?
„Stöðugt er verið að þróa og
betrumbæta vinnsluferlana og
möguleikar þess eru margir, eins og
til dæmis þróun áburðar fyrir land-
búnað og landgræðslu, nýtist sem
orka fyrir kísilver, lífeldsneyti, snyrti-
vörur og annars konar nýsköpun með
mögulegum útflutningi.
Í lífrænum úrgangi má finna mörg
tækifæri til grænnar atvinnusköpunar.
En líka möguleika til að binda
koltvísýring og draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda.
Það eru kynslóðirnar í dag
sem ákveða með aðgerðum eða
aðgerðarleysi hvað verður gert við
úrganginn okkar – og það mun hafa
áhrif á loftslag og umhverfi komandi
kynslóða,“ segir Ársæll.
Hann bætir við að verkefnið
sé nú statt þannig í þróunarferlinu
að verið sé að þróa frumgerð af
Kindakolunum, með rannsóknum
og söfnun gagna. Hann vonast til
að hægt verði að kynna vöruna að
ári liðnu. /smh
Hjá okkur
færðu allt fyrir
háþrýstiþvottinn
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
BYKO býður nú ýmsar stærðir steinbita
fyrir nautgripi á lager
Hvort sem verið er að endurnýja eldri fjós
eða byggja nýtt bjóðum við steinbita sem
henta fyrir öll verkefni.
Steinbitarnir eru framleiddir í vottuðum
verksmiðjum og uppfylla allar kröfur um
evrópustaðla.
Steinbitana er mögulegt að fá fyrir allt
að 6 tonna öxulþunga.
Við bjóðum einnig sérsniðin velferðagólf
fyrir steinbita.
GÓLF Í GRIPAHÚS
NAUTGRIPIR,
SVÍN OG SAUÐFÉ
Til á lager
bondi@byko.is
Skræður er þurrkað hrossakjöt, byggt
á matarhefð úr Þykkvabænum.
Startarar og Alternatorar
- Vinnuvélar
- Ly�arar
- Drá�arvélar
- Bátar
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
ára
Þarft þú að selja fasteign?
Persónuleg þjónusta
Fagleg vinnubrögð
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
s. 896 9565
loftur@fasteignasalan.is
Fasteignasalan Bær • Austurvegi 26 • 800 Selfoss
Sími: 512 3400 • www.fasteignasalan.is