Bændablaðið - 15.04.2021, Side 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
Samskip Kvitnos, flutningaskip
Samskipa, kom til Íslands 1. apríl
síðastliðinn en skipið gengur fyrir
fljótandi jarðgasi (LNG) og er það
fyrsta sinnar tegundar til að sigla
með vörur til og frá Íslandi.
Í skipaflota Samskipa eru tvö
skip sem ganga fyrir LNG, Samskip
Kvitnos og Samskip Kvitbjørn, en
sumarið 2018 voru þau einnig þau
fyrstu í flota Samskipa til að flytja
vörur frá Rotterdam. Að þessu sinni
er um að ræða tilfallandi flutninga
til og frá Helguvík utan hefðbund-
inna siglinga Samskipa til og frá
landinu. Samskip tóku við rekstri
flutningaskipanna Samskip Kvitnos
og Samskip Kvitbjørn við kaupin á
Nor Lines árið 2017. Skipin eru því
nýleg en þau voru hönnuð af Rolls-
Royce Marine og afhent Nor Lines
árið 2015.
Losar ekkert köfnunarefnisoxíð
Í tilkynningu frá Samskip kemur m.a.
fram að umtalsverður umhverfisá-
vinningur fylgir notkun LNG og
falla skipin því vel að umhverfis-
stefnu Samskipa. Þau losa til dæmis
ekkert köfnunarefnisoxíð (NOx) út
í andrúmsloftið, lágmarka losun á
brennisteinsdíoxíði (SOx) og losa
70 prósent minna af koltvísýringi
en vöruflutningabifreiðar á hvert
flutt tonn. Þá eru þau umtalsvert
hagkvæmari þegar kemur að orku-
nýtingu í samanburði við skip sem
brenna hefðbundinni skipaolíu.
Samskip Kvitnos er svokallað RoRo-
skip en þau flytja bíla og vagna sem
hægt er að aka um borð og frá borði.
„Við höfum það að markmiði
að draga úr umhverfisfótspori
starfseminnar eftir fremsta megni
og LNG-skipin styðja félagið í
því markmiði, og horfa Samskip
mjög til reynslunnar af þeim við
ákvarðanatöku um nýjustu lausnir
þegar kemur að endurnýjun í
skipaflotanum.
Ör þróun er á því sviði, en notkun
raforku á lengri flutningsleiðum
fylgja vandamál því enn er mjög dýrt
að geyma raforku. Mikið magn orku
þarf til að sigla yfir hafið og þar er
engar hleðslustöðvar að finna.
Við horfum til sjálfbærni og
umhverfismarkmiða á öllum sviðum
en félagið hefur um áratugaskeið
unnið með gámaframleiðendum
við að bæta hönnun og efnisval
gáma, sem hefur skilað sér í sem
eru fimmtungi léttari gámum
en fyrir tveimur áratugum. Eins
hefur félagið unnið markvisst að
því að draga úr notkun pappírs og
plasts og unnið gegn matarsóun á
vinnustöðvum sínum,“ segir Þórunn
Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður
markaðs- og samskiptadeildar
Samskipa. /MHH
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
S: 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
MEIRA FÓÐUR, LYSTUGRA FÓÐUR
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
Sími 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
Silostop Max stæðuplast er sterkt, einfalt og þunnt og með einstaka súrefnisheldni.
www.silostop.com/uk/
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
Sími 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
GRÆNU VELFERÐARGÓLFIN
www.comfortslatmat.com
RAFBYLGJUMÆLINGAR
OG VARNIR!
Kem á staðinn og framkvæmi
fyrstu mælingu ókeypis.
Uppl. gefa Garðar Bergendal
í síma 892-3341 og
Rósa Björk Árnadóttir í síma 776-7605.
Leitið upplýsinga á www.gardar.info
Garðar byrjaði að mæla rafbylgjur sem kom úr
tenglum, tölvum, farsímum og ljósum. Allar þessar
bylgjur hafa áhrif á fólk og skepnur og geta valdið
ýmsum kvillum, svo sem:
Lamba- og ærdauði gæti verið út af rafmagni
‒ Mígreni
‒ Höfuðverk
‒ Svefntruflunum
‒ Vöðvabólgu
‒ Exemi
‒ Þurrk í húð vegna
tölvu
‒ Fótverkjum
‒ Júgurbólgu
‒ Myglusvepp
‒ Skepnudauða
‒ Fósturskaða í dýrum
Kristinn Sigurbjörnsson
Löggiltur fasteignasali og byggingafræðingur.
Sími: 560-5502
Netfang: kristinn@allt.is
Sérsniðin þjónusta
að þínum þörfum
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Samskip Kvitnos, flutningaskip Samskipa:
Skip sem gengur fyrir
fljótandi jarðgasi
TÆKNI&VÍSINDI
Samskip Kvitnos, flutningaskip Samskipa, sem kom nýlega til Íslands, en skipið gengur fyrir fljótandi jarðgasi
(LNG) og er það fyrsta sinnar tegundar til að sigla með vörur til og frá Íslandi.