Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 29
upplifun sem púki vestan af Flateyri
að á hverjum vetri fórust bátar með
fjöldann allan af sjómönnum. Árið
1964 fórust bátarnir Mumminn og
Sæfell frá Flateyri með sjö mönn-
um, Freyja frá Súðavík (mágur minn
fórst þar) og svona var þetta ein-
hvern veginn á hverjum vetri. Nóttin
þegar Heiðrúnin frá Bolungarvík
fórst í Ísafjarðardjúpi ásamt bresku
togurunum Ross Cleveland og Notts
County situr í manni,“ segir Siggi.
Stelpurnar utan úr heimi dálítið
ábyrgar fyrir tónlistarferlinum
„Síðan er lagið „Every Moment Has
A Meaning.“ Það er um hvað fólk
sem maður hittir, eða atvik, geta
breytt miklu um hvert maður heldur
í lífinu. Hér geri ég stelpurnar sem
voru að koma frá Nýja-Sjálandi,
Ástralíu, Suður-Afríku, Englandi og
hvaðan þær nú komu, til að vinna í
frystihúsum landsins dálítið ábyrgar
fyrir því að ég er tónlistarmaður og
bý í Berlín í dag.
Þó maður hafi kannski ekki séð
það þannig þegar þetta gekk á, þá
komu þær með nýja strauma, hug-
myndir og siði, opnuðu dyr í annan
heim og breyttu lífi margra. Tóku
með sér stráka út um allan heim,
aðrir lögðust í flakk o.s.frv. Þannig
byrjaði þetta allavega hjá mér, ég
fór í heimsókn til Nýja-Sjálands og
Ástralíu ... tók gítarinn með.
Þetta voru skemmtilegir tímar,
þegar þorpin fylltust af ungum stelp-
um á hverju hausti,“ segir Siggi og
hlær.
Hann segir að á umslaginu utan
um nýja diskinn sé mynd af fígúru
sem vinur hans, Matthias Masswig,
gerði.
„Hann er með vinnustofu og
gallerí hér í Berlín, svo veggfóðrið
heima ... Kórónastemning,“ segir
þessi glaðbeitti Flateyringur sem
Þjóðverjar og Danir elska alveg
hreint út af lífinu.
Siggi Björns með félögum sínum í hljómsveitinni Æfingu frá Flateyri á sviðinu í Bæjarbíói þann 11. maí 2019. Talið
frá vinstri: Halldór Gunnar Pálsson, Árni Benediktsson, Jón Ingiberg Guðmundsson, Siggi Björns og Ásbjörn Þ.
Björgvinsson. Mynd / HKr.
Miðvikudagur, 12. maí kl. 20:00 - Café Rosenberg, Reykjavík
- Siggi Björns, Franziska Günther og Svavar Knútur
Laugardagur, 15. maí kl. 20:00 - Skyrgerðin, Hveragerði
- Siggi Björns & Franziska Günther
Sunnudagur 16. maí kl. 20:00 - Fish House, Grindavík
- Siggi Björns & Franziska Günther
Þriðjudagur, 18. maí kl. 20:00 - Beituskúrinn, Neskaupstað
- Siggi Björns & Franziska Günther
Miðvikudagur 19. maí kl. 20:00 - Vogafjós, Mývatni
- Siggi Björns & Franziska Günther
Fimmtudag 20. maí kl. 20:00 - Kaffi Klara, Ólafsfirði
- Siggi Björns & Franziska Günther
Laugardagur 22. maí kl. 20:00 - Frystihúsið, Flatey
- Siggi Björns & Franziska Günther
Þriðjudagur 25. maí kl. 20:00 - FLAK, Patreksfirði
- Siggi Björns & Franziska Günther
Miðvikudagur 26. maí kl. 20:00 - Vegamót, Bíldudal
- Siggi Björns &Franziska Günther
Fimmtudagur 27. maí kl. 20:00 - Vagninn, Flateyri
- Siggi Björns & Franziska Günther
Sunnudagur 30. maí kl. 20:00 - Einarshúsið, Bolungarvík
- Siggi Björns & Franziska Günther
Þriðjudagur, 1. júní kl. 20:00 - Kómedíuleikhúsið, Haukadal
- Siggi Björns & Franziska Günther
Föstudagur 4. Júní kl. 20:00 - Félagsheimilið, Súðavík
- Siggi Björns & Franziska Günther
Laugardagur 5. júní - Kalksalt, 425 Flateyri
- Siggi Björns & Franziska Günther
Fyrirhuguð tónleikaferð Sigga Björns á Íslandi
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
HAGKVÆM DEKK FYRIR
ALVÖRU KRÖFUR
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðardekk skipta gæði,
ending og áreiðanleiki höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur og
hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur - hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 590 5280 og kynntu þér kosti Maxam dekkjanna.
Bænda
29. apríl