Bændablaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202130
Vegagerðin heldur áfram að fækka einbreiðum brúm:
Alls eru 32 einbreiðar brýr eftir á Hringvegi 1
– Búið að bjóða út nokkur verkefni svo frekari fækkun er fyrirsjáanleg
Áfram verður haldið við að fækka
einbreiðum brúm á Hringvegi
1 nú í ár, en skipulega hefur
verið unnið að því markmiði,
bæði hvað varðar Hringveginn
og eins landið allt á liðnum
árum. Nokkurt hlé varð þó á
verkefninu á árunum eftir 2011.
Áform eru nú um töluverðar
framkvæmdir í þessum efnum
næstunni, að því er fram kemur
í Framkvæmdafréttum sem
Vegagerðin gefur út.
Fyrir um 30 árum, árið 1990
voru hátt í 140 einbreiðar brýr á
Hringvegi, þeim fækkaði hratt,
voru orðnar um 60 talsins kringum
árið 2006 og árið 2011 voru þær
ríflega 40. Síðan þá hægðist mjög á
slíkum framkvæmdum, undanfarin
átta ár hafa aðeins verið breikkað
ar eða byggðar nýjar brýr í stað 6
einbreiðra brúa.
Árið 2019 voru byggðar sjö brýr
í stað einbreiðra brúa á landinu öllu.
Þetta voru brýr í Berufjarðarbotni,
yfir Hófsá í Arnarfirði, yfir Mjólká
í Arnarfirði, brú á Eldvatn og yfir
Loftsstaðaá í Flóa, einnig brú yfir
Breiðdalsá og stokkur fyrir Tjarnará
á Vatnsnesi.
Lokið við fjórar nýjar
brýr á Hrinvegi
Í lok árs 2019 voru boðnar út fjórar
brýr á Hringvegi; brú yfir Steinavötn
í Suðursveit sem er 100 metra löng,
brú á Fellsá í Suðursveit sem er 47
metrar, brú á Kvíá í Öræfum sem
er 32 metra löng og
brú á Brunná aust an
Kirkjubæjar klausturs
sem er 24 metrar. Fram
kvæmdir við þessar
brýr hófust vorið 2020
og er þeim nú lokið eða við það að
ljúka. Þar með hefur einbreiðum
brúm á Hringvegi 1 fækkað í 32
auk bráðabirgðabrúar yfir Fellsá
sem enn er uppistandandi og þjónar
vegfarendum en verður rifin þegar
umferð verður hleypt á nýju brúna
í vor.
Nú í ár mun einbreiðum brúm
enn fækka, en búið er að bjóða
út nokkur verkefni. Þar má nefna
byggingu brúar yfir Jökulsá á
Sólheimasandi en einnig stendur
til að fara í framkvæmdir við brýr
yfir Hverfisfljót, Súlu (Núpsvötn)
og Skjálfandafljót. Þá er fyrirhug
að að bjóða út fyrsta samvinnu
verkefnið um vegaframkvæmdir
en það er nýr vegur og brú yfir
Hornafjarðarfljót.
663 einbreiðar brýr á landinu
Einbreiðar brýr eru þó víðar en
á Hringvegi en alls eru 663 ein
breiðar brýr á landinu. Árið 2020
voru breikkaðar brýr á Hattardalsá,
Hvítsteinslæk, Álftárbakkaá,
Kálfalæk á Mýrum og Hrútá. Þá
eru núna í framkvæmd nokkrar
brýr utan Hringvegar eins og
Botnsá í Tálknafirði, Bjarnadalsá
í Önundarfirði, Vesturhópshólaá,
Laxá í Laxárdal og Köldukvíslargil.
Önnur verkefni sem stendur til að
fara í eru: Bakkaá hjá Keisbakka,
Þverá, Hólkotsá, Otradalsá, Þverá
á Langadalsá, Ólafsdalsá, Efri
Skarðsá, Sandalækur í Miðfirði,
Fossá í Jökulsárhlíð og Helgustaðaá.
/MÞÞ
Nýja brúin yfir Kvíá. Mynd / Ísak
Bráðabirgðabrú og ný brú yfir Brunná. Mynd / Ísak
Steypuvinna við Steinavötn. Mynd / Ísak
Kort sem sýnir framkvæmdasvæðin.
Steinavötn, nýja brúin í byggingu, bráðabirgðabrú í baksýn. Mynd/Ístak
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR
gerðir dráttarvéla
H
eim
ild: Prentm
iðlakönnun G
allup. K
önnunartím
i okt. - des. 2020.
BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
36,2% fólks á
landsbyggðinni
les Bændablaðið
Hvar auglýsir þú?
36,2%
Lestur Bændablaðsins
á landsbyggðinni
Lestur Bændablaðsins
á höfuðborgarsvæðinu
17,8% 24,3%
Lestur landsmanna á
Bændablaðinu
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
Lestur Bændablaðsins
Hafðu samband