Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 31
Stígagerð í fólkvanginum í
Glerárdal verður framhaldið á
komandi sumri, en verkið hófst
síðastliðið sumar við stíg sem
lggur fram dalinn að austanverðu,
frá bifreiðastæði að Lamba, skála
Ferðafélags Akureyrar.
Verkefninu er skipt upp í þrjá
áfanga, þeim fyrsta er lokið og hafist
verður handa við þann næsta í sumar.
Akureyrarbær fékk 24 milljónir
króna í styrk úr Framkvæmdasjóði
ferðamannastaða vegna þess áfanga
en sá fyrsti hlaut einnig styrk úr
sjóðnum.
Næsti áfangi hefst þar sem hinum
fyrri lauk, um fjóra kílómetra inni
í dalnum. Í verkinu felst að rista
fyrir stíg og setja stalla í hann,
einnig að koma fyrir ræsum og brúm
mýrlendis og lækja á um fjögurra
kílómetra kafla.
Síauknar vinsældir
Stór hluti Glerárdals var friðlýstur
sem fólkvangur árið 2016. Dalurinn
er mótaður af jöklum og einkennist
af stórbrotinni náttúru, fjölbreyttum
berggerðum og gróðri, en mólendi
og votlendi setja svip á dalinn.
Fólkvangurinn nýtur síaukinna vin-
sælda sem útivistarsvæði en hefur
verið erfiður yfirferðar. Markmiðið
er að auka aðgengi að honum og
almenna nýtingu. Eftir að stíga-
gerð hófst hafa fleiri en áður notið
gönguferða um dalinn, segir í frétt
á vefsíðu Akureyrarbæjar.
/MÞÞ
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra við rafræna undirritun samningsins. Mynd / SSNV
Markaðsstofa Norðurlands tekur
að sér hlutverk áfangastaðastofu
Áfangastaðastofa verður opnuð
á Norðurlandi. Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir ferða-
mála-iðnaðar- og nýsköpun-
arráðherra hefur undirritað
samning við Samtök sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra og Samtök
sveitarfélaga og atvinnuþróunar
á Norðurlandi eystra um stofnun
slíkrar stofu.
Með undirritun samningsins eru
orðnar til áfangastaðastofur í öllum
landshlutum að undanskildu höfuð-
borgarsvæðinu en stofnun áfanga-
staðastofu þar er í undirbúningi. Þar
með er leidd til lykta vinna við upp-
byggingu stoðkerfis ferðaþjónustu á
landsbyggðinni sem hófst í raun með
útgáfu áfangastaðaáætlana fyrir alla
landshluta árið 2018.
Áfangastaðastofur hafa það
að meginmarkmiði að stuðla að
jákvæðum framgangi svæðisbund-
innar ferðaþjónustu með fram-
kvæmd áfangastaðaáætlunar fyrir
viðkomandi landsvæði og tryggja
að sú áætlun sé í samræmi við m.a.
aðra lögbundna áætlanagerð og aðal-
og deiliskipulag viðkomandi svæði.
Um árabil hafa landshlutasam-
tökin tvö á Norðurlandi átt far-
sælt samstarf við Markaðsstofu
Norðurlands. Markaðsstofan mun í
framhaldi af fyrrgreindum samningi
taka að sér hlutverk áfangastaðastofu
fyrir Norðurland. /MÞÞ
Stígagerð um Glerárdal verður
haldið áfram í sumar
Glerárdalur er mótaður af jöklum og einkennist af stórbrotinni náttúru.
Sláttutraktorar, sláttuvélar,
slátturóbotar og margt fleira
Allt fyrir
garðsláttinn
MHG Verslun ehf / Víkurhvarfi 8 / 203 Kópavogi / S: 544-4656 / mhg.is
Fatnaður
og aukahlutir
Slátturóbot 315X
Slær allt að 1500m2
545RX
Hestöfl: 3hp
550 XP MKII
Hestöfl: 4,2hp
Traktor TC238T
Hestöfl: 18hp
LC353AWD
Hestöfl: 4,8hp
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 29. apríl