Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202132
„Norðausturhornið er fyrir mörg-
um ókannað land, en býður upp
á ýmsa möguleika til gönguferða
og þar er fjölbreytni mikil,“ segir
Halldóra Gunnarsdóttir, formað-
ur Ferðafélagsins Norðurslóðar.
Félagið hefur boðið upp á göngu-
ferðir um Langanes undanfarin
ár en nú hafa ábúendur á Ytra
Lóni á Langanesi þróað þær ferðir
upp á hærra stig í samvinnu við
Ferðafélagið og bætt við ýmsum
gæðum.
Mirjam Blekkenhorst og Sverrir
Möller hafa rekið ferðaþjónustu á
Ytra Lóni í ríflega tvo áratugi. Hafa
þau alla tíð boðið upp á útivist og
gönguferðir auk þess að kynna
búskapinn fyrir þeim ferðalöngum
sem þess óska. Þá hafa þau lagt
áherslu á kyrrð og frið sem einkenn-
ir Langanesið.
Ytra Lón stendur 14 kílómetra
norðan við Þórshöfn, en þar er fjöl-
breytta þjónustu að finna.
Mirjam segir að á komandi
sumri verði í boði alls 6 skipulagðar
gönguferðir um Langanes, frá byrj-
un júní og fram yfir miðjan ágúst.
Sú fyrsta hefst þann 7. júní og síð-
asta ferðin sem í boði verður í sumar
hefst 15. ágúst. Gönguferðirnar
eru fjögurra daga og gist er í fimm
nætur. Mirjam segir að í ferðunum
sé áhersla lögð á að kynna menn-
ingu og sögu svæðisins. Gestir geta
fylgst með búskapnum, en ábúendur
hafa marga bolta á lofti auk þess að
reka stórt sauðfjárbú með 460 vetr-
arfóðruðum kindum. Þar fer fram
þjálfun smalahunda, trjárækt hefur
verið stunduð um árabil og votlendi
hefur verið endurheimt. Öllu þessu
geta göngugarpar fengið að kynnast
í sumar því farið er í heimsókn í
fjárhúsið þar sem allt er skoðað í
krók og kring og sagt frá ýmsu í
nútímalegum búskap. Jafnvel verð-
ur hægt að sjá smalahundaþjálfun
í gangi.
Ferðaþjónustan á Ytra Lóni
hefur upp á 9 stúdióíbúðir að bjóða
með baðherbergi og litlu eldhúsi
sem vel rúmar 2 til 3 einstaklinga.
Veitingasala er á staðnum og
áhersla lögð á afurðir af býlinu. Þau
Mirjam og Sverrir hafa boðið upp á
fuglaskoðunar- og fræðsluferðir um
Langanes á Land Rover jeppum og
hafa þær notið vinsælda.
Farið um gamlar
kirkjuleiðir, eyðibýlahring
og upp á Heiðarfjall
„Í sumar verða í boði nokkrar
skipulagðar ferðir þar sem við
leggjum ríka áherslu á að göngugarpar
tengist náttúru Langaness, sögu þess
og menningu,“ segir Halldóra, sem
verður aðalgöngustjóri og sögu-
maður í ferðunum.
Í gönguferðunum er komið við
í eyðiþorpinu Skálum, farið er um
lífleg fuglabjörg, litið á rekavið-
arhrannir og farið út á ysta odda
Langaness. Ein stærsta súlubyggð
landsins er svo barin augum í
bakaleiðinni.
„Við göngum yfir grösug svæði
meðfram tærri bergvatnsá og það
er áð í birkilundi við lækjarnið,
en einnig er gengið um fallegar
fjörur sem eru fullar af lífi. Við
þræðum gamlar kirkjuleiðir og
tökum eyðibýlahring. Förum upp
á Heiðarfjallið þar sem ratsjár-
stöð varnarliðsins stóð og skoðum
ummerki um veru þess á svæðinu.
Þá er sungið hástöfum í vitum sem
verða á leið okkar og á kvöldin eru
í boði dásamlegar kvöldvökur með
sögum og fróðleik,“ segir Halldóra.
Meðal þess sem við sögu
kemur á kvöldvökum eru prestar
og prestsmaddömur, baráttu-
konur, sterkir menn og ísbirnir,
tundurdufl, stríðsrekstur, skrímsli
og Skálar, þorpið sem einu sinni
var, en sögurnar sem sagðar eru á
kvöldvökunum eru bæði úr nútíð
og fortíð.
Síðdegis suma daga verður hægt
að skjótast í sundlaugina á Þórshöfn,
sem er bæði falleg og góð.
Allt innifalið
Gist er í fimm nætur í fallegum
íbúðum á Ytra Lóni þar sem bæði er
heitur pottur og kaldur. Þátttakendur
greiða eitt verð og er innifalið í því
gisting, morgunmatur, nesti og
kvöldmatur, akstur, leiðsögn, að-
gangseyrir og göngukort af svæðinu.
Mirjam nefnir að í veitingasölu Ytra
Lóns sé lögð áhersla á afurðir beint
frá býli, gæðakjöt, silung úr lóninu,
egg, rabarbara og sitthvað fleira, en
síðasta kvöldið er slegið upp veislu
þar sem þessar afurðir eru í öndvegi
í bland við skemmtun með glensi og
gamni. Þeim sem bóka ferðir fyrir
1. maí býðst 10% afsláttur en allar
upplýsingar um gönguferðirnar má
finna á vefsíðu Ytra Lóns, ytralon.is.
Góð gönguþjálfun
Halldóra segir að gönguferðirnar sem
í boði verða frá Ytra Lóni í sumar
byggi m.a. á þeim ferðum sem
Ferðafélagið Norðurslóð hafi boðið
upp á í nær áratug. „Það er komin
góð reynsla á þessar ferðir sem nýtist
vel við skiplag ferðanna frá Ytra Lóni
og þátttakendur hafa verið ánægðir.
Og við munum einnig eiga í sam-
starfi við fleiri sem stunda ferða-
þjónustu á þessu svæði,“ segir hún.
Erfiðleikastig ferðarinnar er mælt í
tveimur skóm, en dagleiðir eru á bil-
inu frá 9 kílómetrum og upp í 16. Á
köflum er gengið um óslétt land og
þýfða móa, þannig að þátttakendur
þurfa að vera í góðri gönguþjálfun.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Gæði og gönguferð um Langanes í boði í sumar:
Norðausturhornið er fyrir mörgum ókannað land
– Áhersla lögð á að göngugarpar tengist náttúru Langaness, sögu þess og menningu
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Ýmislegt leynist undir björgum Langaness en það er betra að fara varlega. Brim við ysta haf.
Áð í birkihvammi við Stífluá á eyðibýlahring. Séð yfir Kumblavík á austanverðu Langanesi. Þar var búið um aldaraðir.
Rekaviðarhrönn í Skoruvík á Langanesi.
Gengið í fallegri fjöru. Heiðarfjall og Eiðisskarð í baksýn.