Bændablaðið - 15.04.2021, Side 39

Bændablaðið - 15.04.2021, Side 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 39 Ársfundur – stjórnarkjör 2021 Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudaginn 28. maí 2021 kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík. Dagskrá: ▪ Venjuleg ársfundarstörf. ▪ Stjórnarkjör skv. samþykktum. ▪ Önnur mál. Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu. LSB auglýsir eftir framboðum til setu í stjórn sjóðsins: ▪ Eitt sæti í aðalstjórn til fjögurra ára. ▪ Eitt sæti í varastjórn til tveggja ára. Þeir sem gefa kost á sér þurfa að fullnægja kröfum um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. lögum nr. 129/1997, reglum FME og samþykktum sjóðsins og vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME. Framboðsfrestur er til 29. apríl 2021. Upplýsingar um stjórnarkjörið og hvaða gögnum beri að skila vegna framboða til setu í stjórn sjóðsins má sjá á heimasíðu sjóðsins, www.lsb.is. Stjórn Lífeyrissjóðs bænda Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is Nýtt félagskerfi bænda í burðarliðnum Fyrirhugað er að sameina Bænda­ samtök Íslands og búgreinafélög á Aukabúnaðarþingi sem haldið verður 10. júní nk. Áður en að því kemur þurfa þó aðildarfé­ lög að halda sína aðalfundi og taka ákvörðun um sína framtíð. Landssamband kúabænda sam­ þykkti í síðustu viku að samein­ ast BÍ á sínum aðalfundi. Ef allt gengur upp mun nýtt skipulag taka gildi 1. júlí. Þangað til verður í mörg horn að líta við endurskipulagningu, m.a. koma á nýjum félagsgjöldum og ákveða verkefni og verkaskiptingu innan nýrra Bændasamtaka. Bændur þurfa að skrá sína veltu Í grunninn mun nýtt félagskerfi byggja á tvennu, þ.e. fjölda félags- manna í hverri búgrein og á veltu hverrar búgreinar. Fjöldi fulltrúa búgreinafélaganna á Búnaðarþingi mun skiptast í samræmi við það. Til að mæta þessu þurfa allir greið- endur félagsgjalda að fara inn á Bændatorgið og haka við þær bú- greinar sem viðkomandi stundar og skrá jafnframt veltutölur skv. framtali síðasta árs. Í mörgum tilfellum eru bú blönduð og þá er veltunni skipt hlutfallslega á við- komandi greinar. Veltuskráningin ákvarðar einnig það þrep sem viðkomandi aðili greiðir félags- gjaldið eftir. Opnað verður fyrir skráninguna inni á Bændatorginu í byrjum maí og stefnt er á að ljúka henni ekki seinna en um miðjan júní. Félagsgjöld vegna fyrri helmings ársins Félagsmenn í BÍ fengu senda raf- ræna gíróseðla fyrir páska vegna félagsgjalda fyrstu sex mánaða ársins. Upphæðin byggir á samþykkt Búnaðarþings 2021 og er áætluð út frá veltuþrepum fyrra árs. Lögð var til 0,32% veltutenging á hvert þrep fyrir óbreytt félagskerfi. Hins vegar var félagsgjald aukafélaga að BÍ inn- heimt fyrir allt árið, enda er upphæðin óháð veltu og er 20.000 kr. vegna ársins 2021. Eins og undanfarin ár eru auk þess innheimtar 2.000 kr. í Velferðarsjóð BÍ með hverju félags- gjaldi. Eindagi félagsgjaldanna er núna 19. apríl og eru bændur hvattir til þess að gera upp innan þess tíma. Veltuþrepum fjölgað og þak hækkað Þegar uppfærð skráning á veltu liggur fyrir um mitt ár, eiga aðilar von á endanlegu uppgjöri eftirstöðva tímabilsins. Það á sérstaklega við um þá aðila sem falla undir hærri veltu- þrepin. Til að gæta jafnræðis er þrep- unum fjölgað milli ára úr 12 í 45 og þakið á veltuviðmiði hækkað úr 85 m. kr. í 500 m. kr. Þeir sem vilja kynna sér nánar þrepaskiptinguna og félags- gjöld er vinsamlegast bent á að fara inn á vefsíðu samtakanna www.bondi. is undir „félagsmál“. Þar er hægt að nálgast frekari upplýsinga um félags- gjöldin á hverjum tíma, þann ávinning sem félagsaðildin veitir og skrá sig í samtökin. Eitt félagsgjald BÍ og búgreinafélaganna Verði af sameiningu um mitt ár, þá er lagt til að aðilar greiði ekki félagsgjald til sinna búgreinafélaga á sama grunni, heldur verður innheimt eitt félags- gjald. Í því samhengi voru samþykkt á Búnaðarþingi 2021 drög að þrepaskiptu félagsgjaldi fyrir sameinuð samtök, þar sem lagt er til að gjaldið hækki í 0,6% af veltu úr 0,32%. Auk þess er einu þrepi bætt við og er lagt til að lágmarksgjaldið verði 15.000 kr. Þess vegna geta félags- menn átt von á því að þann 1. júlí nk. verði innheimt félagsgjald samkvæmt breyttu veltutengdu, þrepaskiptu gjaldi, fyrir mánuðina júlí-desember. Um er að ræða nokkuð umfangs- miklar breytingar á starfseminni sem áætlað er að taki gildi um mitt ár og munu starfsmenn BÍ góðfúslega svara fyrirspurnum félagsmanna í síma 563- 0300 á skrifstofutíma og í netfangið bondi@bondi.is. Guðbjörg Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá BÍ. Mynd / HKr. AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA Bænda 29. apríl

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.