Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 39
Ársfundur – stjórnarkjör 2021
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudaginn
28. maí 2021 kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
▪ Venjuleg ársfundarstörf.
▪ Stjórnarkjör skv. samþykktum.
▪ Önnur mál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu.
LSB auglýsir eftir framboðum til setu í stjórn sjóðsins:
▪ Eitt sæti í aðalstjórn til fjögurra ára.
▪ Eitt sæti í varastjórn til tveggja ára.
Þeir sem gefa kost á sér þurfa að fullnægja kröfum um hæfi og
hæfni stjórnarmanna skv. lögum nr. 129/1997, reglum FME og
samþykktum sjóðsins og vera tilbúnir til að gangast undir
hæfismat FME. Framboðsfrestur er til 29. apríl 2021.
Upplýsingar um stjórnarkjörið og hvaða gögnum beri að skila
vegna framboða til setu í stjórn sjóðsins má sjá á heimasíðu
sjóðsins, www.lsb.is.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík
Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
Nýtt félagskerfi bænda
í burðarliðnum
Fyrirhugað er að sameina Bænda
samtök Íslands og búgreinafélög
á Aukabúnaðarþingi sem haldið
verður 10. júní nk. Áður en að
því kemur þurfa þó aðildarfé
lög að halda sína aðalfundi og
taka ákvörðun um sína framtíð.
Landssamband kúabænda sam
þykkti í síðustu viku að samein
ast BÍ á sínum aðalfundi. Ef allt
gengur upp mun nýtt skipulag
taka gildi 1. júlí. Þangað til
verður í mörg horn að líta við
endurskipulagningu, m.a. koma
á nýjum félagsgjöldum og ákveða
verkefni og verkaskiptingu innan
nýrra Bændasamtaka.
Bændur þurfa að skrá sína veltu
Í grunninn mun nýtt félagskerfi
byggja á tvennu, þ.e. fjölda félags-
manna í hverri búgrein og á veltu
hverrar búgreinar. Fjöldi fulltrúa
búgreinafélaganna á Búnaðarþingi
mun skiptast í samræmi við það.
Til að mæta þessu þurfa allir greið-
endur félagsgjalda að fara inn á
Bændatorgið og haka við þær bú-
greinar sem viðkomandi stundar
og skrá jafnframt veltutölur skv.
framtali síðasta árs. Í mörgum
tilfellum eru bú blönduð og þá er
veltunni skipt hlutfallslega á við-
komandi greinar. Veltuskráningin
ákvarðar einnig það þrep sem
viðkomandi aðili greiðir félags-
gjaldið eftir. Opnað verður fyrir
skráninguna inni á Bændatorginu í
byrjum maí og stefnt er á að ljúka
henni ekki seinna en um miðjan
júní.
Félagsgjöld vegna
fyrri helmings ársins
Félagsmenn í BÍ fengu senda raf-
ræna gíróseðla fyrir páska vegna
félagsgjalda fyrstu sex mánaða
ársins. Upphæðin byggir á samþykkt
Búnaðarþings 2021 og er áætluð út
frá veltuþrepum fyrra árs. Lögð var
til 0,32% veltutenging á hvert þrep
fyrir óbreytt félagskerfi. Hins vegar
var félagsgjald aukafélaga að BÍ inn-
heimt fyrir allt árið, enda er upphæðin
óháð veltu og er 20.000 kr. vegna
ársins 2021. Eins og undanfarin ár
eru auk þess innheimtar 2.000 kr. í
Velferðarsjóð BÍ með hverju félags-
gjaldi. Eindagi félagsgjaldanna er
núna 19. apríl og eru bændur hvattir
til þess að gera upp innan þess tíma.
Veltuþrepum fjölgað
og þak hækkað
Þegar uppfærð skráning á veltu
liggur fyrir um mitt ár, eiga aðilar
von á endanlegu uppgjöri eftirstöðva
tímabilsins. Það á sérstaklega við um
þá aðila sem falla undir hærri veltu-
þrepin. Til að gæta jafnræðis er þrep-
unum fjölgað milli ára úr 12 í 45 og
þakið á veltuviðmiði hækkað úr 85 m.
kr. í 500 m. kr. Þeir sem vilja kynna
sér nánar þrepaskiptinguna og félags-
gjöld er vinsamlegast bent á að fara
inn á vefsíðu samtakanna www.bondi.
is undir „félagsmál“. Þar er hægt að
nálgast frekari upplýsinga um félags-
gjöldin á hverjum tíma, þann ávinning
sem félagsaðildin veitir og skrá sig í
samtökin.
Eitt félagsgjald BÍ og
búgreinafélaganna
Verði af sameiningu um mitt ár, þá er
lagt til að aðilar greiði ekki félagsgjald
til sinna búgreinafélaga á sama grunni,
heldur verður innheimt eitt félags-
gjald. Í því samhengi voru samþykkt á
Búnaðarþingi 2021 drög að þrepaskiptu
félagsgjaldi fyrir sameinuð samtök, þar
sem lagt er til að gjaldið hækki í 0,6% af
veltu úr 0,32%. Auk þess er einu þrepi
bætt við og er lagt til að lágmarksgjaldið
verði 15.000 kr. Þess vegna geta félags-
menn átt von á því að þann 1. júlí nk.
verði innheimt félagsgjald samkvæmt
breyttu veltutengdu, þrepaskiptu gjaldi,
fyrir mánuðina júlí-desember.
Um er að ræða nokkuð umfangs-
miklar breytingar á starfseminni sem
áætlað er að taki gildi um mitt ár og
munu starfsmenn BÍ góðfúslega svara
fyrirspurnum félagsmanna í síma 563-
0300 á skrifstofutíma og í netfangið
bondi@bondi.is.
Guðbjörg Jónsdóttir, verkefnastjóri
hjá BÍ. Mynd / HKr.
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Bænda
29. apríl