Bændablaðið - 15.04.2021, Síða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202140
Burðarhjálparmyndbönd á YouTube:
Leiðbeiningar núna líka á ensku og þýsku
Fyrir ári síðan var opnuð YouTube-
rásin Leiðbeiningarefni um
burðarhjálp, með myndböndum
um burðarhjálp á sauðburði.
Um verkefni þeirra Karólínu
Elísabetardóttur í Hvammshlíð
og Axels Kárasonar dýralæknis
er að ræða, þar sem leitast var við
að veita ráðgjöf um öll hugsanleg
burðarvandamál og uppákomur
á sauðburði. Nú hefur framhald
orðið á verkefninu og brugðist við
óskum um myndbönd á þýsku og
ensku sem ætlað er aðstoðarfólki
sem kemur erlendis frá.
Karólína segir að nú séu öll þýsku
myndböndin nýkomin inn á rásina, 15
að tölu, og þau ensku séu að tínast inn.
Fleiri séu væntanleg fyrir sauðburð en
auk þess eru 23 myndbönd á íslensku
inni á rásinni. „Myndböndin sem
við Axel dýralæknir gáfum út í fyrra
fengu góðar viðtökur hjá bændunum
og við náðum líka síðar í aukaefni
varðandi sjaldgæf tilvik sem bændur
ættu að geta nýtt sér í sauðburðinum
núna,“ segir hún. Hún telur að
rúmlega tíu prósent sauðfjárbænda
hafi aðstoðarfólk erlendis frá á
sauðburði og byggir það á óformlegri
könnun sem hún sendi út til bænda og
rúmlega 220 svör bárust.
Viðbætur um sjaldgæf tilvik
„Við höfum fengið gott efni frá
bændum um almenn vandamál
og nú síðast um þessi sjaldgæfu
tilvik, meðal annars frá Láru Björg
Björvinsdóttur, Ástu F. Flosadóttur,
Eline Manon Schrijver og Þóreyju
Sigríði Jónsdóttur. Framúrskarandi
í þessu samhengi er skemmtilegt
myndband sem Bjarki Sigurðsson á
Skarðaborg tók þegar hann var einn á
næturvakt og sneri snúnu legi – með
góðum árangri. Þótt um afar krefjandi
verkefni væri að ræða hélt hann
húmor og lýsti á sama tíma aðferðinni
á skýran hátt. Eins er ógleymanlegt
að taka upp burð á Grænumýri þar
sem risastór hrútur með svaka horn
– eins og Guttormur bóndi lýsti þeim
– fæddist afturábak og kom í heiminn
eldsprækur og alveg óbrotinn, þökk
sé afbragðs burðarhjálparhæfileikum
bóndans.
Skref fyrir skref ákvörðunartré
Verkefni þeirra hófst fyrir
tveimur árum við undirbúning
myndbandagerðarinnar og hafa þau
fengið styrki úr Framleiðnisjóði
landbúnaðarins til framleiðslunnar.
„Á þýsku eru 15 myndbönd í boði
þar sem nokkur styttri myndbönd
voru sameinuð þannig að svo gott
sem allt efnið er komið inn, ensku
útgáfurnar eru að fylgja smátt og
smátt á næstunni.
Svokallað ákvarðanatré þar sem
Youtube-rásin (íslenska, enska, þýska – smella á “Vídeóin” til að sjá öll):
www.tinyurl.com/burdarhjalp
Ákvarðanatréð og listi yfir öll myndböndin á íslensku:
www.tinyurl.com/saudburdarhjalp
Ákvarðanatréð og listi yfir öll myndböndin á þýsku:
www.tinyurl.com/schaf-geburtshilfe
Yfirlit yfir allar slóðir
• Burðarvandamál
• Eðlilegur burður
• Eðlilegur burður, aukaefni
• Vantar framfót
• Vantar framfót, aukaefni
• Afturábak
• Afturábak aukaefni
• Tvö lömb (eða fleiri)
• Stórt lamb
• Stór horn
• Kolskakkt
• Lambið á hvolfi
• Legsnúningur
Annað í kringum burð
• Gott að vita og gaman að
horfa á (inngangsorð)
• Góð ráð, tæki og tól
• Fleiri góð ráð
• Handklæði sem hjálpartæki
• Notkun snúru/vírs/lamba-
hjálpar
• Skeiðarsig/legsig
• Að venja undir
• Notkun magaslöngu
• Blæðandi naflastrengur
• Lífgunaraðferðir
Leiðbeiningarmynd-
bönd á íslensku:
Skjámynd úr myndbandinu hans Bjarka á Skarðaborg um snúið leg.
Skjámynd úr þýsku útgáfunni „legsnúningur“ – innra rörið er legið, ytra
rörið er kindin.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Hildur frá Hvammshlíð með Garúnu og Möggu Nikulásdætur.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGSUGU-
DÆLUR
6,500 - 9,500
11,000 - 13,500 lítra
HAUGSUGUHLUTIR
VARAHLUTIR