Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 40

Bændablaðið - 15.04.2021, Qupperneq 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 202140 Burðarhjálparmyndbönd á YouTube: Leiðbeiningar núna líka á ensku og þýsku Fyrir ári síðan var opnuð YouTube- rásin Leiðbeiningarefni um burðarhjálp, með myndböndum um burðarhjálp á sauðburði. Um verkefni þeirra Karólínu Elísabetardóttur í Hvammshlíð og Axels Kárasonar dýralæknis er að ræða, þar sem leitast var við að veita ráðgjöf um öll hugsanleg burðarvandamál og uppákomur á sauðburði. Nú hefur framhald orðið á verkefninu og brugðist við óskum um myndbönd á þýsku og ensku sem ætlað er aðstoðarfólki sem kemur erlendis frá. Karólína segir að nú séu öll þýsku myndböndin nýkomin inn á rásina, 15 að tölu, og þau ensku séu að tínast inn. Fleiri séu væntanleg fyrir sauðburð en auk þess eru 23 myndbönd á íslensku inni á rásinni. „Myndböndin sem við Axel dýralæknir gáfum út í fyrra fengu góðar viðtökur hjá bændunum og við náðum líka síðar í aukaefni varðandi sjaldgæf tilvik sem bændur ættu að geta nýtt sér í sauðburðinum núna,“ segir hún. Hún telur að rúmlega tíu prósent sauðfjárbænda hafi aðstoðarfólk erlendis frá á sauðburði og byggir það á óformlegri könnun sem hún sendi út til bænda og rúmlega 220 svör bárust. Viðbætur um sjaldgæf tilvik „Við höfum fengið gott efni frá bændum um almenn vandamál og nú síðast um þessi sjaldgæfu tilvik, meðal annars frá Láru Björg Björvinsdóttur, Ástu F. Flosadóttur, Eline Manon Schrijver og Þóreyju Sigríði Jónsdóttur. Framúrskarandi í þessu samhengi er skemmtilegt myndband sem Bjarki Sigurðsson á Skarðaborg tók þegar hann var einn á næturvakt og sneri snúnu legi – með góðum árangri. Þótt um afar krefjandi verkefni væri að ræða hélt hann húmor og lýsti á sama tíma aðferðinni á skýran hátt. Eins er ógleymanlegt að taka upp burð á Grænumýri þar sem risastór hrútur með svaka horn – eins og Guttormur bóndi lýsti þeim – fæddist afturábak og kom í heiminn eldsprækur og alveg óbrotinn, þökk sé afbragðs burðarhjálparhæfileikum bóndans. Skref fyrir skref ákvörðunartré Verkefni þeirra hófst fyrir tveimur árum við undirbúning myndbandagerðarinnar og hafa þau fengið styrki úr Framleiðnisjóði landbúnaðarins til framleiðslunnar. „Á þýsku eru 15 myndbönd í boði þar sem nokkur styttri myndbönd voru sameinuð þannig að svo gott sem allt efnið er komið inn, ensku útgáfurnar eru að fylgja smátt og smátt á næstunni. Svokallað ákvarðanatré þar sem Youtube-rásin (íslenska, enska, þýska – smella á “Vídeóin” til að sjá öll): www.tinyurl.com/burdarhjalp Ákvarðanatréð og listi yfir öll myndböndin á íslensku: www.tinyurl.com/saudburdarhjalp Ákvarðanatréð og listi yfir öll myndböndin á þýsku: www.tinyurl.com/schaf-geburtshilfe Yfirlit yfir allar slóðir • Burðarvandamál • Eðlilegur burður • Eðlilegur burður, aukaefni • Vantar framfót • Vantar framfót, aukaefni • Afturábak • Afturábak aukaefni • Tvö lömb (eða fleiri) • Stórt lamb • Stór horn • Kolskakkt • Lambið á hvolfi • Legsnúningur Annað í kringum burð • Gott að vita og gaman að horfa á (inngangsorð) • Góð ráð, tæki og tól • Fleiri góð ráð • Handklæði sem hjálpartæki • Notkun snúru/vírs/lamba- hjálpar • Skeiðarsig/legsig • Að venja undir • Notkun magaslöngu • Blæðandi naflastrengur • Lífgunaraðferðir Leiðbeiningarmynd- bönd á íslensku: Skjámynd úr myndbandinu hans Bjarka á Skarðaborg um snúið leg. Skjámynd úr þýsku útgáfunni „legsnúningur“ – innra rörið er legið, ytra rörið er kindin. Á FAGLEGUM NÓTUM Hildur frá Hvammshlíð með Garúnu og Möggu Nikulásdætur. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 HAUGSUGU- DÆLUR 6,500 - 9,500 11,000 - 13,500 lítra HAUGSUGUHLUTIR VARAHLUTIR

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.