Morgunblaðið - 26.06.2021, Side 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2021
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Leyfðu samböndum þínum að
þróast eðlilega. Það borgar sig ekki að ýta
um of á hinn aðilann. Einhverjar kjaftasögur
eru á kreiki, ekki hlusta á þær.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú ert að fara í gegnum breytinga-
tímabil og minningarnar streyma fram í
hugann. Færðu þig um set innan fyrir-
tækisins ef það gerir þig glaðari.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Reyndu að nýta áhrif þín á yf-
irboðara eða stjórnendur til þess að gera
öðrum gott. Ef þú horfist í augu við óttann
þá minnkar hann og hverfur jafnvel.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Fátt er dýrmætara í lífinu en að eiga
góða vini, svo leggðu þig fram um að halda
þeim. Ekki láta segja þér fyrir verkum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Taktu það ekki nærri þér þótt aðrir
hafi eitthvað við þínar skoðanir að athuga.
Hjálpaðu til við flutninga ef þú getur.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þolinmæði þín við að ná tiltekinni
færni skilar þér árangri að lokum. Sumt er
manni ofviða, sættu þig við það. Góður vin-
ur missir vinnuna, vertu til staðar fyrir
hann.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Hættu að hugsa um hið ómögulega og
einbeittu þér þess í stað að því sem er
framkvæmanlegt. Þú ert potturinn og pann-
an í öllum partíum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þótt verkefni þitt virðist lít-
ilfjörlegt þá mun nú lausn þess samt færa
þér frama. Þú ert glaðlyndið uppmálað og
vilt njóta dagsins eins og unnt er.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Gefðu von byr undir báða
vængi og láttu ekkert aftra þér frá því að
láta draum þinn rætast. Vertu opin/n fyrir
breytingum sem tengjast börnunum.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú ættir að setjast niður og fara
yfir sviðið og athuga hvort þú getur ekki
fært eitthvað til betri vegar. Makinn er við-
skotaillur, reyndu að finna út af hverju.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Stundum getur smá dirfska
borgað sig en sígandi lukka er ekki verri.
Fólk sem eitt sinn forðaðist þig leitar til þín.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Dagurinn í dag er kjörinn til þess að
taka ákvarðanir varðandi fjármál. Skipu-
leggðu tíma þinn betur, þá kemstu yfir fleiri
verkefni með góðu móti.
unnar frá 2001-2007. Þá kenndi hún
á sviðslistadeild Listaháskóla Ís-
lands og var stundakennari við tón-
listardeild. „Ég útskrifaðist árið
2006 með meistaragráðu í mennt-
unarfræðum frá Kennaraháskóla Ís-
lands og doktorsprófi frá sama skóla
í janúar 2019.“
Þegar staða deildarforseta nýrrar
deildar við Listaháskólann var aug-
lýst 2008 ákvað Kristín að sækja um.
„Ég fékk það draumstarf og síðustu
Kristín starfaði í fimm ár við
Vesturbæjarskólann eftir útskrift úr
KHÍ og hélt áfram í píanó- og söng-
námi. Hún var í Austurríki 1990-92 í
framhaldsnámi í tónlistar- og dans-
kennslu við Orff Institut í Salzburg.
Eftir heimkomuna kenndi Kristín
fyrst í Vesturbæjarskóla og var síð-
an aðjunkt við KÍ til 2008. Einnig
starfaði hún við Tónlistarskólann í
Reykjavík og hún stofnaði og stýrði
Barna- og unglingakór Dómkirkj-
K
ristín Valsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 26. júní
1961. „Foreldrar mínir
voru báðir með berkla
þegar ég fæddist og ég
því sett beint í fangið á föðurömmu
minni og nöfnu og hún ól mig á
mjólkurblandi og spínati úr garð-
inum, enda varð ég kröftug og óx
hratt.“ Eftir tvö ár flutti fjölskyldan
í austurbæinn meðan foreldrar
hennar voru að byggja í Breiðholti
og þegar Kristín var níu ára fluttu
þau í nýja raðhúsið. „Þá var Mjóddin
kofabyggingarsvæði fyrir krakkana
úr hverfinu og Seljahverfið ekki til –
bara mýri og frábært skautasvell.“
Kristín hóf píanónám sex ára
gömul í Tónlistarskóla Sigursveins
og hélt því áfram þar til handboltinn
tók við, en hún spilaði með ÍR fram
til 18 ára aldurs. „Ég er mikil félags-
vera og var á kafi í dansi og hand-
bolta og fannst ekki spennandi að
sitja ein við hljóðfærið í marga
klukkutíma á dag. Ég tók mér þess
vegna pásu, en byrjaði aftur að læra
á píanó undir tvítugt.“
Eftir útskrift úr Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti tók Kristín sér árs
frí úr námi og réð sig í kennslu við
grunnskólann á Eskifirði og haustið
eftir fór hún í Kennaraháskólann.
„Mér fannst kennslan gífurlega
skemmtilegt og fjölbreytt starf og
dásamlegt að vinna með börnum. Ég
hafði verið í píanótímum á Eskifirði
og að sjálfsögðu í kirkjukórnum með
Hannesi Þorsteinssyni, sem leiddi
mig svo í Dómkórinn hjá Marteini
H. Friðrikssyni er ég kom í bæinn.
Þar með var framtíð mín sem tón-
menntakennara og kórstjóra ákveð-
in. Í tæp þrjátíu ár var Dómkirkjan
mitt annað heimili og kórinn mín
önnur fjölskylda. Sú vinátta og kór-
fjölskyldutengsl lifa enn þó rúmlega
tíu ár séu liðin frá því að Marteinn
féll frá og ég ákvað að kveðja kórinn.
Kórastarf og söngur eru stór hluti af
lífi mínu og hef ég verið hluti af öðr-
um sönghópum eftir að ég hætti í
Dómkórnum, m.a. í Ljóta kór og
Söngfélaginu. Síðustu fimm árin hef
ég svo verið hluti af dásamlegri
hljómsveit eða bílskúrsbandi sem
kallar sig Kvennabandið.“
tólf árin hef ég leitt uppbyggingu
meistaranáms í kennslufræðum fyr-
ir listamenn. Samhliða uppbyggingu
og kennslu við deildina fór Kristín í
doktorsnám og var lokarannsókn
hennar samofin starfinu því það
snerist um kennslufræði lista.
Árið 2018 gaf Háskólaútgáfan út
bókina Framtíðarmúsík sem Kristín
ritstýrði og innheldur greinar og
nýjar rannsóknir á tónlistarkennslu
á Íslandi. Sama ár ritstýrði hún
ásamt þeim Nönnu Hlíf Ingvadóttur
og Elfu Lilju Gísladóttur og tónlist-
arkennurum frá Finnlandi námsefn-
inu Nordic Sounds, sem er opið vef-
efni fyrir kennara og aðra.
https://www.nordicsounds.info/app/
#/0/start Fyrr í þessum mánuði var
Kristín að ljúka stóru Evrópusam-
starfsverkefni fyrir hönd Listahá-
skólans þar sem áherslan var lögð á
að mennta listamenn til að nýta
þekkingu sína með hópum sem eru í
hættu á að verða jarðarsettir. Hægt
er að kynna sér verkefnið á vefslóð-
inni: https://swaipproject.lhi.is/
„Listkennsla og nám eru líf mitt
og yndi. Það er hluti af minni lífs-
skoðun að hver einstaklingur og
hvert einasta barn eigi rétt á tæki-
færi til þess að prófa sig áfram og tjá
sig á fjölbreyttan hátt í gegnum list-
ir og skapandi starf.“
Kristín Valsdóttir, deildarforseti og fagstjóri tónmenntakennslu – 60 ára
Deildarforsetinn Kristín er hér eldhress á námskeiði í Listasafni Íslands.
Listkennsla er líf mitt og yndi
Fjölskyldan EM í Hollandi 2017, f.v.: Kristín, Hrafnhildur Erla, Bergrós Þyrí í fanginu á Birnu Kristínu, Eiríkur,
Ingibjörg Anna, Benedikt, Valur Páll, Embla í fangi Unu, Orri. Sigrún Hanna var ófædd þegar myndin var tekin.
30 ára Valgeir er
Hafnfirðingur og
byggði sér hús í
Skarðshlíðinni. „Ég er
lykilmaður hjá fyrir-
tækinu Kerfóðrun ehf.
og er kallaður herra
ómissandi.“ Áhuga-
málin eru veiði, kappakstur og heim-
ilislífið.
Maki: Sandra Baldursdóttir, snyrtifræð-
ingur og launafulltrúi hjá Kerfóðrun ehf.,
f. 1988.
Börn: Hrefna Dís, f. 2010; Arnar Elí, f.
2013; Gabríel Máni, f. 2016; Óliver Breki,
f. 2019; og Aþena Rut, f. 2020.
Foreldrar: Páll Sigurðsson múrarameist-
ari, f. 1952, og Helen Gunnarsdóttir,
áhugaleikkona, ljóðskáld og dagmamma,
f. 1953.
Valgeir Pálsson
Til hamingju með daginn
Skagafjörður Kristófer Elmar Sigurð-
arson fæddist 3. mars 2020 kl. 20.10.
Hann vó 4.180 g og var 52 cm langur.
Foreldrar hans eru Sigurður Heiðar
Birgisson og Sigurlína Erla Magn-
úsdóttir.
Nýr borgari
30 ára Elísabet fædd-
ist á Akranesi en ólst
upp í Staðarsveit í
Snæfellsbæ. Hún er
þroskaþjálfi í Grunn-
skólanum í Borgarnesi
og sauðfjárbóndi í
Haukatungu syðri 1 í
Kolbeinsstaðahreppi. Hún hefur mikinn
áhuga á garðyrkju og að spá í innanhúss-
hönnun og svo samveru með börnum og
manni
Maki: Arnar Ásbjörnsson, sauðfjárbóndi
og járningamaður, f. 1990.
Börn: Baldur Rafn, f. 2014 og Íris, f.
2020.
Foreldrar: Bjarni Vigfússon verktaki, f.
1947, og Sigrún Hafdís Guðmundsdóttir,
starfsmaður í Lýsuhólsskóla í Snæ-
fellsbæ, f. 1960.
Elísabet Ýr Bjarnadóttir