Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Efri hluti Laugavegar mun taka miklum breytingum samkvæmt deiliskipulagi fyrir svokallaðan Heklureit, sem Reykjavíkurborg hefur auglýst til kynningar. Á skipu- lagssvæðinu er gert ráð fyrir allt að 463 íbúðum á efri hæðum og verslun og þjónustu á 1. hæð Á Heklureit er í dag fjölbreytt at- vinnustarfsemi. Þar er stærsti að- ilinn Hekla hf., bílaumboð og verk- stæði, en einnig eru þar minni fyrirtæki og skrifstofuhúsnæði, ásamt verslunum og veitingastöðum. Í fundi skipulags- og samgöngu- ráðs hinn 30. júní sl. var lögð fram tillaga Yrkis arkitekta ehf. dags. 16. júní 2021 að deiliskipulagi fyrir Heklureit, nánar tiltekið lóðirnar við Laugaveg 168-174a. Í tillögunni eru settar fram skipulagslegar heimildir fyrir íbúðir, atvinnustarfsemi og gististarfsemi. Gert er ráð fyrir að allar byggingar á lóð Laugavegar 168 til 174a verði fjarlægðar að undanskildu borholuhúsi. Byggðin verður mótuð með tilliti til landslags, sólargangs og veður- fars. Byggðin rís hæst til norðurs við Laugaveg en er lægst til suðurs við Brautarholt. Um er að ræða íbúðar- hús, tveggja til sjö hæða, með mögu- leika á 8. hæð á norðvesturhorni Laugavegar 168 á reit A skv. fyrir- liggjandi skipulagstillögu. Byggingarnar skulu vera stall- aðar með ríku tilliti til sólarátta og byggð skipulögð þannig að miðlæg- ur inngarður sé í góðu skjóli fyrir veðri og vindum við allar byggingar. Gert er ráð fyrir sérafnotaflötum fyrir íbúðir á jarðhæðum og svölum á efri hæðum. Heildarflatarmál ofanjarðar á lóðunum er 46.474 fer- metrar. Þar af eru að hámarki 44.351 m² undir íbúðir og lágmark 2.123 m² undir verslanir og þjón- ustu. Góðar göngu- og hjólateng- ingar skulu vera í gegnum svæðið. Bílastæði innan lóða eru neðan- jarðar í samtengdum bílakjallara. Hjólastæði eru í bílakjallara og á lóð. Hámarksfjöldi bílastæða í bílakjall- ara Laugavegar 168-174 er 375. Fyrir liggur samkomulag milli Reykjavíkurborgar og lóðarhafa við Laugaveg 168-174 um tilfærslu á starfsemi Heklu hf. af lóðunum. Árið 2017 var haldin skipulagssamkeppni fyrir allan götureitinn sem afmark- ast af Laugavegi, Bolholti, Skipholti, Brautarholti og Nóatúni. Niður- stöður samkeppninnar voru kynntar í júlí 2017 þar sem tillaga Yrkis arki- tekta varð hlutskörpust. Eftir sam- keppnistillögunni var unnið ramma- skipulag fyrir reitinn. Að þeirri vinnu lokinni var ákveð- ið að hefja vinnu við deiliskipulags- gerð fyrir lóðirnar við Laugaveg 168-176. Svæðið sem deiliskipulagið nær til afmarkast af Laugavegi til norðurs, lóðarmörkum Laugavegar 178 til austurs, Brautarholti og lóð- armörkum Skipholts 33, 31 og Brautarholti 29. Til vesturs afmark- ast svæðið af Nóatúni. Sjö byggingar á reitnum Í húsakönnun fyrir Heklureit frá árinu 2017 kemur fram að á svæðinu standa í dag sjö byggingar. Elstu húsin voru reist 1943 og það yngsta 2002. Svæðið einkennist af atvinnu- starfsemi; skrifstofum og verslunum ásamt verkstæðum og bílageymslum en eitt borholuhús er á reitnum. Húsin á reitnum eru af mismunandi módernískum og póstmódernískum stílgerðum og öll steinsteypt nema borholuhúsið. Heklureitur er við samgönguás fyrirhugaðrar borgarlínu, nálægð við miðborgina og stór atvinnusvæði ásamt blandaðri, fjölbreyttri land- notkun er líkleg til að draga úr notk- un einkabíla og styðja við notkun al- menningssamgangna og virkra ferðamáta, þ.e. göngu og hjólreiða, segir í deiliskipulagstillögunni. Áhrifin eru talin óveruleg á heild- ina litið hvað varðar aukningu bíla- umferðar. Núverandi umferð um Laugaveg er um 13.000 bílar að meðaltali á dag yfir árið (ÁDU). Laugavegur fær andlitslyftingu - Ný byggð með allt að 463 íbúðum mun rísa á Heklureitnum efst við Laugaveg - Sjö hús verða rif- in til að rýma fyrir nýrri byggð - Hún verður mótuð með tilliti til landslags, sólargangs og veðurfars Tölvuteikning/Yrki arkitektar Framtíðarútlit Horft til bygginganna frá Laugavegi. Efri hluti götunnar mun taka stakkaskiptum í framtíðinni. Morgunblaðið/sisi Reiturinn í dag Öll húsalengjan við Laugaveg, þar á meðal höfuðstöðvar Heklu, mun víkja fyrir nýju byggðinni. Nú þegar Vegagerðin er flutt í Garðabæ eftir að hafa verið með starfsemi í tæp 80 ár við Borgartún í Reykjavík vaknar sú spurning hvað verði gert við þær húseignir. „Það liggur ekki fyrir formleg ákvörðun á þessu stigi. Gert er ráð fyrir að tekin verði heildstæð ákvörðun um eignirnar og reitinn eftir sumarið,“ segir Sólrún Jóna Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri Ríkiseigna, aðspurð. Hún segir að í 6. gr. fjárlaga und- anfarinna ára hafi verið til staðar heimild til að selja Borgartún 5-7. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með hin formlegu eignarráð fyrir hönd ríkissjóðs og tekur ákvarðanir um kaup og sölu á eignum ríkisins á grundvelli fjárlagaheimildarinnar. Húsið Borgartún 5 og verkstæðis- byggingarnar risu 1942 og var þá grófstarfsemin flutt af Klapparstíg 2 (lóðin á móti timburverkstæðinu Völundi). Árið 1964 fluttu skrifstof- urnar af Laugavegi 114 í Borgartún. Borgartún 7 er skráð 7.480 fer- metrar og Borgartún 5 er 2.707 fer- metrar. Þessar eignir eru miðsvæðis í borginni og verða væntanlega eft- irsóttar verði þær settar á almennan markað. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Ófeigur Borgartún 5-7 Húsin munu losna við flutning Vegagerðarinnar í Garðabæ. Heimild til sölu á húsum Vegagerðar Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is Allt til kerrusmíða 2012 2020
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.