Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR Viðskipti | Atvunnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021 Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Úrval aukahluta: Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur, Minniskort, USB lyklar og fleira VIÐ GERUM VIÐ allar tegundir síma, spjaldtölva, tölva og dróna Körfur frá 25.000 kr. Startpakkar frá 5.500 kr. og margt fleira Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is Allt fyrir frisbígolf Töskur frá 3.990 kr. Diskar frá 2.500 kr. Fjarlægðarmælir 24.990 kr. 29. júlí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.16 Sterlingspund 174.22 Kanadadalur 100.35 Dönsk króna 20.035 Norsk króna 14.266 Sænsk króna 14.657 Svissn. franki 137.91 Japanskt jen 1.1463 SDR 179.46 Evra 149.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.3811 BAKSVIÐ Logi Sigurðarson logis@mbl.is Verslunarmannahelgin er á næsta leiti og líklega verður mikið um grill- veislur, enda vill landinn gera vel við sig um þessa löngu helgi. Fátt er betra en að sitja úti í sólinni, um- kringdur góðu fólki með dýrindis- mat við hönd. Sól er í kortunum, og þá aðallega á Norður- og Austur- landi eins og verið hefur. Eigendur sælkeraverslana bíða spenntir eftir helginni og búast við aukinni sölu þar sem útihátíðum á landinu hefur verið frestað vegna innanlands- takmarkana. Stærsta helgi sumarsins Jón Örn Stefánsson, eigandi Kjöt- kompanís, segir að innanlands- takmarkanir sem tóku gildi í síðustu viku breyti aðeins vikunni, en búist var við því að aðsóknin yrði mest á fimmtudag og á föstudag. Nú verði hún líklega dreifðari um helgina þar sem fólk er minna á faraldsfæti út fyrir höfuðborgina. „Við reiknum með að þetta verði svipað og um verslunarmannahelg- ina í fyrra, en við sjáum 30-50% aukningu á veltunni og magni, miðað við venjulega helgi. Verslunar- mannahelgin er án efa ein sú stærsta, en auðvitað eru jólin stærri,“ segir hann. Lambakonfekt, nautalund í trufflusveppakryddlegi, hamborg- ararnir og nýja steikin þeirra „rib- eye cap“ eru vinsælustu vörur búð- arinnar að sögn Jóns og segir hann söluna á „ribeye cap“ líkasta „sprengju“, og segir að fyrir Covid hafi fólk verið fyrr á ferðinni að kaupa inn fyrir verslunarmanna- helgina. „Þá var traffíkin fyrr á ferðinni, núna er fólk rólegra og þeir sem ætl- uðu sér á útihátíðir eða út á land eru kannski aðeins rólegri. Það er meiri ró yfir þessu núna.“ Viktor Örn Andrésson, eigandi Sælkerabúðarinnar, segir útlit fyrir að verslunarmannahelgin verði nokkuð lík því sem var í fyrra. Að hans sögn finnur hann fyrir því að fleira fólk stefni út á land en í fyrra. „Verslunarmannahelgin er ekki stærsta helgi árs- ins en hún er klárlega há- punktur sumars- ins. Jólin og pásk- arnir eru stærri. Síðan er Euro- vision líka mjög stórt. Um verslunarmanna- helgina er 30-40% meiri velta en við sjáum á venju- legri helgi.“ Sælkerabúðin verður opin alla helgina og Viktor segir steikar- pakkana, trufflunautið og nauta- ribeye vinsælustu afurðir búð- arinnar. „Þetta fer mikið eftir veðri. Fólk er mestmegnis að kaupa sér steikur á grillið og hafa það gott.“ Geir Rúnar Birgisson, eigandi Kjötbúðarinnar, tekur í sama streng og segir allt stefna í nokkuð svipaða verslunarmannahelgi og í fyrra. Árið verið annasamt „Verslunarmannahelgin fyrir Co- vid og í fyrra var að öllu leyti nokk- uð svipuð, nema laugardagurinn var stærri en verið hefur, mun fleiri kúnnar þá. Ég reikna með í ár að þetta verði svipað og í fyrra. Sér- staklega vegna þess hvernig veður- spáin lítur út hjá okkur reiknum við með því að fleiri verði hérna í bæn- um og erum að gera áætlanir sam- kvæmt því. Ef við horfum líka á pantanir sem eru komnar, þá lítur þetta vel út.“ Geir segir veltuna aukast að jafn- aði um 50% um verslunarmanna- helgina miðað við aðrar helgar. Árið hefur verið annasamara en áður að sögn Geirs og fólk rólegra en um verslunarmannahelgar fyrir Covid. Veður hefur áhrif „Fólk er líka koma kannski tvisv- ar. Áður fyrr kom það á fimmtudegi eða föstudegi og keypti fyrir alla helgina en núna þegar það er í bæn- um kemur það bara aftur.“ Geir segir verslunarmannahelg- ina stærstu sumarhelgina, en jól og páskar séu þó stærri. Nautaribeye, T-bone og „dry-age“ eru vinsælustu steikurnar að sögn hans. Geir bætir við að veður geti haft mikil áhrif á kauphegðun viðskiptavina búð- arinnar. „Þegar það er betra veður sækir fólk meira í lambakjötið og salan eykst þar. Það er ekki sama aukn- ingin í nautakjötinu á móti, því fólk eðlilega grillar kannski aðeins meira lambakjöt nú en oft áður.“ Búast við meiri umsvifum um helgina Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sumar Landsmenn eru sólgnir í sælkerakjöt. Margir bíða spenntir eftir því að fara grilla í blíðviðri. - Veltan eykst um 30-50% hjá kjötbúðunum - Trufflunaut, nauta-„ribeye“, hamborgarar og lamba- konfekt vinsælast hjá fólki - Laugardagurinn stærri en fyrir faraldur - Sól í kortunum víðast hvar Jón Örn Stefánsson Geir Rúnar Birgisson Viktor Örn Andrésson Hagnaður Arion banka nam 7.816 milljónum króna á öðrum ársfjórð- ungi og jókst um 59,1% frá öðrum ársfjórðungi á síðasta ári. Rekstrar- tekjur bankans námu 15 milljörðum á öðrum árfjórðungi og hækka um tæpan milljarð á milli ára. Arðsemi eiginfjár í fjórðungnum nam 16,3% en var 10,5% fyrir sama tímabil í fyrra. Ef horft er til fyrstu sex mánaða ársins nemur hagnaður bankans um 13,9 milljörðum króna og arðsemi eiginfjár 14,3% á tímabilinu. Arð- greiðsla og endurkaup á hlutabréf- um bankans námu 17,8 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og stefnir bankinn að því að hefja endurkaup á eigin bréfum á ný í dag fyrir um fjóra milljarða. Heildareignir bankans námu 1.218 milljörðum króna í lok júní en voru 1.173 milljarðar í árslok 2020. Lausa- fjárstaða bankans jókst um 7,3% þrátt fyrir endurkaup á hlutabréfum hans og arðgreiðslur. Heildarskuldir bankans eru 1.024 milljarðar króna í lok annars ársfjórðungs en voru 975 milljarðar króna í árslok 2020. Eig- infjárhlutfall bankans var 27,2% í lok júní. „Starfsemi Arion banka á öðrum ársfjórðungi gekk mjög vel. Arðsemi ársfjórðungsins upp á 16,3% er vel yfir 10% arðsemismarkmiði bankans og er þetta þriðji ársfjórðungurinn í röð þar sem arðsemin er umfram markmið. Það má því segja að vel hafi tekist að aðlaga starfsemina þeim áskorunum sem eru í umhverf- inu,“ segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, í tilkynn- ingu frá bankanum. Bankastjóri Benedikt Gíslason seg- ir bankann yfir arðsemismarkmiði þriðja fjórðunginn í röð. Arion hagnast um 7,8 milljarða - Hagnaður bank- ans 13,9 milljarðar það sem af er ári
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.