Morgunblaðið - 29.07.2021, Page 35
35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021
Við
VESTMANNEYJUM
EINSTAKT ÚTSÝNI
LJÚFFENGURMATUR
KÍKTU Á OKKUR Á FACEBOOK
-tanginn.is
Flug fjórum
sinnum í viku
Við tökum flugið til Vestmannaeyja
með Icelandair og skoðum einstaka
náttúrufegurð og fjölbreytta
afþreyingu með frábæru fólki
í beinni útsendingu um helgina.
Hægt er að fylgjast með í
Sjónvarpi Símans og á K100.is
Vestmannaeyjar
hotelvestmannaeyjar.is
Í HJARTA HEIMAEYJAR
– HEIMILI AÐ HEIMAN.
eitthvað er hafi það verið þyngra högg að
fella viðburðinn niður í ár en í fyrra enda
var fyrirsjáanlegt í hvað stefndi árið 2020 á
meðan leit út fyrir að þetta sumar gæti allt
verið opið og í eðlilegum skorðum. Var und-
irúningur vel á veg kominn og nánast allt
klárt í dalnum og t.d. búið að leggja raf-
magn að hátíðarsvæðinu í Herjólfsdal.
„Sú staða sem komin er upp er líka áfall
fyrir ÍBV enda Þjóðhátíð þeirra mikilvæg-
asta tekjulind og segir sig sjálft að það er
ekki auðvelt fyrir íþróttafélagið að viðburð-
urinn falli niður tvö ár í röð. Einnig fara
fyrirtækin í bænum á mis við mikilvægar
tekjur enda uppgrip vikuna í kringum
Þjóðhátíð hjá t.d. gististöðum, veit-
ingastöðum og verslunum. Var allt tilbúið
og búið að bæta í hillurnar þegar nýjar
samkomutakmarkanir voru kynntar,“ segir
Íris. „En umfram allt er fólkið í Eyjum
dapurt yfir frestun Þjóðhátíðar enda er
þessi viðburður menningarperlan okkar og
frábær hátíð sem á engan sinn líka. Það er
þó auðvitað þannig að þótt vonbrigðin séu
mikil verðum við öll að sýna þessu skilning
og halda áfram saman í baráttunni við veir-
una.“
Ekki er þó öll von úti enn og hefur
þjóðhátíðarnefnd gefið það út að staðan
verði skoðuð að nýju 14. ágúst næstkomandi
en þá er reiknað með að stjórnvöld ákveði
hvort draga megi úr sóttvarnaaðgerðum.
„En um leið er ekki hægt að hundsa þá
staðreynd að það að undirbúa 15-17.000
manna hátíð er ekki eitthvað sem hægt er
að gera á nokkrum dögum.“
Ánægðastir allra
Að sögn Írisar er eftir sem áður mikill
kraftur og jákvæðni í samfélaginu, upp-
bygging íbúðarhúsnæðis gengur vel og
margir sem hafa komið auga á kosti þess
að flytja með fjölskyldur sínar til Vest-
mannaeyja. „Nýleg könnun sem gerð var
á vegum Landshlutasamtaka sveitarfé-
laga leiddi í ljós að Vestmannaeyingar
eru ánægðastir allra með búsetuskilyrði
sín og sérstaklega ánægðir með þá þjón-
ustu sem þeim stendur til boða. Sam-
félagið er mjög fjölskylduvænt með leik-,
grunn- og framhaldsskóla og gott aðgengi
að háskólanámi. Íþróttastarfið er líka
fjölbreytt og við erum stolt af góðri þjón-
ustu við fatlaða. Þjónustustigið er hátt og
mikil fjölbreytni í afþreyingu. Loks má
ekki gleyma þeim lífsgæðum sem fylgja
því að þurfa ekki að vera í umferðinni í
klukkutíma á dag eða meira heldur geta
farið allra sinna ferða á nokkrum mín-
útum.“
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Í sambandi Eftir smá byrjunarörðugleika ganga siglingar rafvædds Herjólfs eins og í sögu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sátt Í könnun Landshlutasamtaka sveitarfélaga reyndust Vestmannaeyingar ánægðastir.
Eitt af baráttumálum Vestmanna-
eyinga er að sjúkraþyrla verði til taks
á Suðurlandi og helst staðsett í Eyjum.
Íris segir að vöntun á skurðstofuvakt
geri það brýnt að geta komið Eyja-
mönnum hratt á spítala í Reykjavík ef
þess þarf. „Aukinn straumur ferða-
manna um Suðurland skapar líka þörf
fyrir þessa þjónustu og myndi stytta
viðbragðstíma mikið að hafa sjúkra-
þyrlu á svæðinu.“
Sjúkraþyrlan er vonandi á leiðinni
en til stóð að ráðast í tilraunaverkefni.
„En kórónuveirufaraldurinn setti þau
plön í uppnám og við bíðum núna
átekta,“ segir Íris.
Bíða eftir sjúkraþyrlu