Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 36
Hér er á ferðinni ein sú ljúffengasta grillmáltíð sem sögur fara af. Við erum að tala um grillað lamba- ribeye eins og það gerist best og meðlæti sem fær fullorðna menn til að falla í yfirlið. 4 lamba-ribeyesteikur AMB-krydd sérvalin hvítlaukssósa sérvaldar trufflukartöflur Lillie’s GOLD Barbeque Sauce rótargrænmeti SPG-krydd Olio Nitti-olía Kryddið kjötið eftir kúnstarinnar reglum með AMB-kryddinu. Hellið ólífu- olíu yfir. Kryddið rótargræmetið með SPG- kryddinu og hellið ólífuolíu yfir. Setjið kjötið á grillið ásamt trufflu- kartöflum og rótargrænmeti. Penslið kjötið með grillsósu og munið að ribeye þarf töluvert lengri eldun enda mikill og góður biti. Berið fram með hvítlaukssósu, grilluðu rótargræmeti og trufflukartöflunum. Framhryggur er skorinn af efsta hluta framparts. Bitinn er bragð- mikill, heldur stífari en hryggvöðvi. Úrbeinaður og fullsnyrtur án yfirborðsfitu er hann kallaður ribeye en prime ef yfirborðsfitan er höfð á. Vöðvinn er hentugur í eldunaraðferðir sem eru ætlaðar fyrir stíft kjöt en hann er líka vinsæl grillsteik. Fremsti hluti hryggjarins er oft skorinn í sneiðar sem eru svo pönnusteiktar, ofnsteiktar eða grillaðar. Fremur bragðmikið kjöt og tiltölulega meyrt en inniheldur þó meira af bindivef en t.d. kótilettur, svo að það þarf ívið lengri eldun. Það kemur hins vegar ekki að sök þar sem það er oftast vel fitusprengt. Trufflufylltu kartöflurnar þóttu algjört sælgæti Sælkerabiti Lamba-rib-eye er í miklu uppáhaldi hjá matgæðingum. Uppskriftin kemur frá Berglindi Hreið- arsdóttur á Gotteri.is en hún hefur gengið kvenna á milli í vinahópi hennar. Upphaflega útgáfan er frá sjálfum Gordon Ramsay en hef- ur tekið smá breytingum í meðförum vin- kvennanna og þykir nú betri ef eitthvað er. Hægeldað nautakjöt í naan Uppskrift dugar í um 10-12 lítil naanbrauð eða fyrir 5-6 manns Kjöt og marinering 700-800 g ungnautakjöt 200 ml Kikkoman-sojasósa 200 ml ólífuolía 2 x límónur (safinn) 150 g púðursykur 2 x ferskt chili (saxað) 1 búnt af ferskum kóríander (saxað) Útbúið sojamarineringuna með því að blanda öllum ofangreindum hráefnum saman í skál (fyrir utan kjötið auðvitað). Takið rúmlega fjórðung til hliðar og setjið í skál inn í ísskáp til að bera fram með réttinum þegar hann er tilbúinn. Steikið kjötið örstutt við háan hita til að loka því, hellið afganginum af marineringunni yfir, leyfið suðunni að koma upp og lækkið þá hit- ann vel, setjið lok á pönnuna/pottinn og leyfið að hægeldast þannig í 5-6 klst. Gott er að snúa kjötinu 2-3 sinnum á meðan til að allar hliðar liggi jafn lengi í marineringunni þar sem hún hylur kjötið ekki að fullu. Chilimajónes 200 g Hellmann’s-majónes 40 g sambal oelek 1 tsk. límónusafi Allt hrært vel saman í skál og geymt í kæli fram að notkun. Einnig er hægt að nota tilbúið chilimajónes frá Hellmann. Betrumbættu götubita Gordons Hér er á ferðinni ekta „street food“-matur og það er leikur einn að útbúa þennan rétt heima hjá sér og koma gestum skemmti- lega á óvart með útkomunni. Um er að ræða hægeldað nautakjöt þar sem sojasósan leikur stórt hlutverk. Kjötið er síðan rifið nið- ur og sett í naanbrauð ásamt chilimajónesi, osti og grænmeti. Annað meðlæti: lítil naanbrauð (10-12 stykki) kínakál (saxað) rauðlaukur (skorinn í sneiðar) ferskur kóríander rifinn cheddarostur Samsetning Setjið chilimajónes í botninn á brauðinu ásamt káli og lauk. Næst kemur rifinn ostur og kjöt. Gott er að setja smá af sojamarineringunni yfir kjötið í lokin ásamt vel af ferskum kórí- ander. Einnig má setja sneiðar af fersku chili. Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Geggjaður götubiti Þetta er ofureinfaldur réttur svo lengi sem þið gefið kjötinu tíma. Allir M E Ð M B L . I S O G H A G K A U Pgrilla MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021 Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 8:00-16:30 Frábært úrval í verslun okkar Kíktu við! Grillkjöt fyrir versló!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.