Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Qupperneq 27
25
reynzt mjög vel, og virðist það mjög lystugt fóður. Efnagreiningar verða
gerðar á nokkrum sýnishornum í vetur, og verður sennilega síðar hægt að
greina frá niðurstöðum þeirra.
d. Reyndur heyblásari.
Fyrir tilmæli Tilraunastöðvarinnar smíðaði Landsmiðjan í Reykjavík
lieyblásara, sem ætlazt var til að gæti blásið inn í hlöður bæði þurru heyi
og nýslegnu grasi. Blásari þessi var reyndur hér í sumar og reyndist ágætur
til þess að blása inn í votheysturna (hálfturna), og afkastaði 6—8 tonnum
á klukkutíma. Við hálfþurrt hey varð að nota meiri aðgæzlu við að láta
í hann, einkum, ef lieyið var stórvaxið, en afkcist reyndust vera 20—30
hestar á klukkutímanum.
Þótt blásari þessi saxi ekki, þá marði hann og sleit í sundur allt safa-
ríkt gras, svo sem hafra og arfa, sem hann tætti mjög vel í sundur.
Blásarinn var drifinn af 11 kw rafmótor. Rörin, sem frá honum liggja,
eru 12 tommur í þvermál.
e. Fjárhagurinn.
Rekstursframlag ríkissjóðs hefur verið sem hér segir þessi ár: Árið
1951 kr. 125 þús., og 1952 kr. 145 þús., og auk þess árið 1952 kr. 75 þús.
til stofnframkvæmda, eða alls árið 1952 kr. 220 þús. Er þetta í fyrsta sinn,
að fé er veitt hingáð beint til stofnframkvæmda úr rikissjóði, þótt upp-
hæðin sé að vísu lág og segi lítið upp í allar þær framkvæmdir, sem gerðar
hafa verið undanfarin ár.
Skuldir í árslok 1951 voru kr. 144.604.68, en í árslok 1952 voru þær
kr. 392.570.31. Þessi mikla skuldaaukning á árinu 1952 stafar fyrst og
fremst af því, að býlið Háteigur var keypt. Auk þess var endurbyggð
hlaða, og kostaði það 65 þús. kr. Þar að auki var keypt 5 ha land, eins og
þegar er getið á kr. 17 þús., svo að stofnframlagið 1952 fór allt í hlöðu-
bygginguna og landkaupin og meira til.
Við áramótin 1951 og 1952 fór fram endurvirðing á lausafé því, sem
Tilraunastöðin tók á leigu frá Ræktunarfélagi Norðurlands 1947, eins og
gert er ráð fyrir í leigusamningi, og var matið hækkað um kr. 93.351.32.
Samkvæmt þessu hækkar leigan til Rf. Nl. á þessu ári úr rúmlega 9000
kr. upp í rúmlega 15000 krónur.
Eignaaukning þessi ár varð samkvæmt bókfærðu verði: Árið 1951 kr.
21.161.16, ogárið 1952 kr. 140.103.93.
Bókfærð eign ríkisins í Tilraunastöðinni er samkvæmt bókum: í árs-
lok 1951 kr. 103.604.68, og í árslok 1952 kr. 243.783.09.