Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Page 27
Ð. Grænfóðurtilraunir.
Allt frá 1928 liafa verið gerðar tilraunir á Sámsstöðum með hafra til
grænfóðurs og með hafra með íblöndun af ertum og flækjum. Tilraunir
þessar eru nokkuð ósamstæðar og ekki gerðar öll árin vegna skorts á út-
sæði; það var þó einkum á stríðsárunum. Með grænfóðurtilraununum
hefur aðallega verið stefnt að því að fá upplýsingar um það, hvort ávinn-
ingur sé að nota einærar belgjurtir með höfrum til framleiðslu á lientugu
síðsumarfóðri handa mjólkurkúm, eða til votheysverkunar til geymslu
sem vetrarfóður. Reyndar hafa verið með höfrum ýmsar ertu- og flækju-
tegundir, svo og sætlúpínur, bæði með og án köfnunarefnisáburði. Til-
raunirnar hafa verið framkvæmdar á móajarðvegi að mestu, en einnig
á framræstri mýrarjörð, og verður þess getið við hverja tilraun.
Fyrsta tilraunin varð gerð 1928 á móajörð og haldið áfram 1929 á
sömu reitum. Var tilrauninni stefnt að því að fá vitneskju um, hvort betra
væri að forrækta land fyrir túnrækt með höfrum einum eða belgjurtum
í tvö surnur á undan grasfræsáningu. Jafnframt var tilgangurinn einnig
að sjá, hve mikið fóður mætti fá af landinu við mismunandi ræktun.
1. Tilraunir með hafra og vaxandi magn af ertum,
í tvö ár á sömu reitum.
Tafla XIV. Grænfóðurtilraun nr. 1.
(Úlsæðismagn kg/ha).
Árið 1928 Árið 1929
Perluh. Ertur Perluh. Ertur
a-liður ....................... 250 .. 250
b-liður ....................... 200 50 130 120
c-liður ....................... 130 120 .. 300
d-liður........................... 300 .. 300