Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Page 31
29
af höfrum og belgjurtum. Gaf b-liður 242 f.e., c-liður 261 f.e., d-liður
110 f.e. umfram a-lið, eða þar sem forræktun var eingöngu hafrar til
grænfóðurs,
Tilraun með belgjurtagrænfóður 1942 var gjörð á móajörð, forrækt
frægras. Áburðurinn var 150 kg þrífosfat og 200 kg kalí.
Tilhögun tilraunarinnar var þessi:
a. 250 kg hafrar
b. 120 - - 200 kg Botnia-gráertur
c. 120 - - 170 — Jamtlands peluser
d. 120 - - 130 — Ludvikke
•urinn kemur fram í töflu XX.
Tafla XX. Grænfóðurtilraun 1942, nr. 6.
(Uppskera hkg/ha).
a. b. c. d.
Grænt.................. 78.8 106.1 127.3 81.8
Þurrt.................. 27.6 43d 39d 26A
Hlutföll grænt ......... 100 134 159 104
Tilraun þessi leiðir það sama í ljós og aðrar hliðstæðar tilraunir, að
ertur og flækjur gefa allverulegan vaxtarauka fram yfir hafra, og auk
þess betra fóður.
3. Samanburður á grænfóðurblöndum með 15—20 kg
af N á ha.
Árið 1948 er svo byrjað aftur á grænfóðurtilraunum með líku sniði
og áður. Er þessum tilraunum stefnt að sömu viðfangsefnum um val
ertu- og flækjutegunda til grænfóðurræktar með íblöndun af höfrum.
Árið 1948 er eftirfarandi tilraun gerð á móajörð. Forrækt bygg til
þroskunar. Áburður var 100 kg 60% kalí, 120 kg þrífosfat og 125 kg
þýzkur saltpétur.
Árangur tilraunarinnar og tilhögun er að finna í töflu XXI:
Tilhögun:
a. b. 250 kg hafrar 125 - - 150 kg sætlúpínur
c. 125 - - 150 — Heroertur