Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Side 52
50
% hráprotein i töðunni Meltanl. protein Hráþrotein kg af ha
1. Háliða- og vallarfoxgras alráðandi . . 8.22 5.10 574.6
2. Túnvingull ráðandi jurt . . 9.85 6.15 578.2
3. Vallarsveifgras ísl. ráðandi . . 10.60 6.70 568.2
4. Vallarsveifgras ameriskt ráðandi . . . . 8.55 5.00 522.4
5. Snarrót ráðandi jurt . . 9.20 4.95 533.6
6. Háliðagras ráðandi jurt . . 8.40 584.6
Nr. 2—5 virtust betri sem beitartún en til slægna. Þar var gróðurinn
smágerðari og líktist meira gömlu túni með alinnlendum gróðri. Protein-
magn af ha er minnst þar sem erlenda sveifgrasið er ráðandi í heyinu,
þar næst er protein af ha minnst í nr. 5 (snarrót). Hinar fræblöndurnar
gefa mjög svipað proteinmagn af ha, en þar með er ekki fengin full skýr-
ing á gæðum heysins, heldur það, hvert procentmagn af proteini er í því
og hve mikið meltanlegt . Eftir þessu má telja, að nr. 2, 3 og 5 hafi gefið
beztu töðuna, þó að heymagnið hafi verið 16—23% minna en í blöndu
nr. 1 og nr. 6, er báðar voru með stórvöxnum grastegundum, eins og
vallarfoxgrasi og háliðagrasi.
í töflu XLII er að finna árangur af fræblöndunartilraun nr. III, er sáð
var í vorið 1933 og uppskera tekin í til 1941, eða í átta ár. Sáð var í til-
raun þessa án skjólsáðs og var uppskeran ekki vegin sáðárið. Utsæðis-
magnið var haft mismunandi mikið vegna þess, að íslenzka fræið spíraði
heldur verr en það erlenda. Útsæðismagn af grasfræi var fyrir nr. 1 45 kg
á ha, nr. 2, 50 kg, nr. 3, 55 kg og nr. 5 og 6, 60 kg á ha. — Þessar fræblöndur
voru notaðar:
1. S. í. S.-blanda: 1% túnvingull, 17.5% amerískt vallarsveifgras, 30%
vallarfoxgras, 4.5% hávingull, 36% háliðagras, 9% língresi, 2% hvítsm.
2. 32.6% túnvingull, 19% mjúkfax, 35% vallarsveifgras, 9.1% vallar-
foxgras, 4.3% háliðagras.
3. 35% túnvingull, 20% mjúkfax, 10% vallarsveifgras, 25% vallar-
foxgras, 10% hávingull.
4. 50% túnvingull, 10% mjúkfax, 20% vallarsveifgras, 15% vallar-
foxgras, 5% snarrót.
5. 20% túnvingull, 20% mjúkfax, 30% háliðagras, 30% hávingull.
6. 35% túnvingull, 10% mjúkfax, 10% vallarsveifgras, 35% íslenzkur
hávingull, 10% háliðagras.