Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Page 65
63
inn frá 14. maí til 19. júní reyndist beztur, en því betra varð túnið á fyrsta
ári, sem fyrr var sáð. Nokkurt ósamræmi virtist vera á sáðtíma 5. júní og
19. júní, en vafalaust stafar það af því, að sáðtíminn 5. júní varð fyrir
þurrkakafla og óhagstæðu veðri eftir sáningu fræsins, en mjög hagstæð
tíð var eftir 19. júní, og varð spírun fræsins þá bæði jafnari og betri.
Tafla LV. SáðtímatUraun A með grasfræ (S.Í.S.-bl. sáð 1934) 1935-1937.
(Uppskera hey hkg/ha).
l.sáðtími 2. sáðtími 3. sáðtími 4. sáðtími 5. sáðtími 6. sáðtími
Ár 14. mai 24. mai 5. júní 19. júni 30. júni 14. júli
1935 ... 129.0 129.5 119.5 132.0 109.0 97.9
1936 ... 102.4 96.5 85.0 91.3 89.3 100.3
1937 .... 81.2 83.3 87.2 81.9 81.7 79.8
Meðalt. 3 ára 104.2 103.1 ' 97.2 101.7 93.3 92.7
Hlutföll ... 100 99 93 98 90 89
Tafla LVI. Sáðtímatilraun B með grasfræ 1935—Í937.
(Uppskera hey hkg/ha).
l.sáðt. 2. sáðt. 3. sáðt. 4. sáðt. 5. sáðt. 6. sáðt. 7. sáðt.
Ar 14.mai 2.ágúst 17.ágúst l.sept. 15.sept. 30.sept. 18.okt.
1935 ... 136.5 72.5
1936 ... 100.5 97.5 93.4 72.8 73.8 78.3 83.7
1937 .... 71.7 65.5 63.4 61.8 71.9 78.2 76.5
Meðalt. 3 ára 102.9 78.5 52.3 44.7 48.6 52.2 53.4
Hlutföll ... . 100 76 51 43 46 51 52
I B-tilraun, töflu LVI voru reyndir sjö sáðtímar. Fyrsti sáðtími gefur
hliðstæðan árangur og 1. liður í A-tilraun, en í lrinum liðunum, nr. 2—7,
eða í sumar- og haust-sáðtímunum, er uppskeran stórum minni. Sáðtíminn
2. ágúst lánast allvel, en gefur þó miklu lakari raun en þegar sáð er 14.
maí. Sáðtímarnir nr. 3—7, eða frá 17. ágúst og til 18. október, gefa allir
það slæman árangur, að ekki er hægt að ráðleggja neinum að sá grasfræi
á því tímabili. Árið eftir sáningu var svo að segja engin grasrót í liðum
nr. 3—7, en arfi hins vegar mjög mikill. Var því engin uppskera vegin fyrr
en á þriðja ári frá sáningu (1936). Voru þá allir reitir sæmilega grónir,
en þó með arfaslæðingi. Við athugun á reitunum í liðum nr. 3—5 sást, að
fræið kom upp samsumars, en ekki í liðum nr. 6 og 7.
í töflum nr. LVII, LVIII og LIX er greint frá þremur samstæðum