Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Qupperneq 92
G. Kartöflurækt.
Frá því árið 1938 haia verið gerðar tilraunir í kartöflurækt með ýmis
atriði varðandi franrkvæmd kartöfluræktar, svo sem áburðartilraunir með
tilbúinn áburð og búfjáráburð, fiskimjöl og síldarmjöl, með sáðdýpi fyrir
kartöflur, ýmsar aðferðir með eyðingu á arfa, moldspírun kartaflna, með
erlent og innlent útsæði, upptökutíma á kartöfluafbrigðum og síðast all-
víðtækar afbrigðatilraunir með kartöflur. Frá þessum tilraunum verður
skýrt hér á eftir, og þá einungis aðalniðurstöðum tilraunanna. Einnig hafa
verið gerðar tilraunir með úðun á kartöflugörðum gegn kartöflumyglu,
en þar sem gerð lrefur verið grein fyrir þeim tilraunum í skýrslu frá At-
vinnudeild Háskóla íslands, verður þeirra ekki getið hér. Tilraunir um
árangur af útsæðisrækt á mýri, móa- og sandjörð, eru enn svo skammt á
veg komnar, að eigi er rétt að birta þær hér. Allar tilraunirnar eru gerð-
ar á 2—3 ára forræktuðu mólendi, og setningartími fyrir flestallar tilraun-
irnar hefur fallið frá 15,—30. maí, eftir árferði og tegund tilrauna. Vaxtar-
rými 30 X 60 cnr, reitastærð frá 18—36 m2, og endurtekningar tilrauna-
liða þrjár til fimm. Upptökutími kartaflna í flestum tilraununum lrefur
verið frá 6.—20 september, því að tilraunirnar hafa ávallt gengið fyrir
með framkvæmd upptöku móts við venjulega kartöfluframleiðslu búsins.
1. Tilraunir með búfjáráburð, fiskimjöl o. fl.
Hér verður greint frá átta tilraunum nreð kartöflnr: Tilraun með mis-
munandi magn af búfjáráburði og tilbúnum áburði, síldarmjöli og fiski-
mjöli, bæði á móa- og sandjörð, tilbúinn áburð, bæði blandaðan og ein-
stakar tegundir, og notkunaraðferðir tilbúins áburðar við kartöflurækt.
í töflu LXXXV greinir frá árangri af þriggja ára tilraun með skammt
af mykju, sem hér er hafður 100 tonn á ha, viðbót af nitrophoska og hálfan
skammt búfjáráburðar með viðbót af nitrophoska, og e-liður með nitro-
phoska eingöngu. Það er ekki samræmi milli þess næringarefnamagns,