Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Síða 101
99
i tröllamjöli nýtist allt að 60%, þegar N í kalkammonsaltpétri er sett sem
100. Gœta ber þess, að bera ekki of mikið af N í kartöflugarðana, þvi að
það getur haft slœm áhrif á bragð og gceði kartaflnanna. í garða hentar
eftirgreint N-magn allvíða: 600 kg kaikammonsaltpétur -|- 300—400 kg
tröllamjöl á ha, auk kalis og fosfóráburðar.
4. Tilraunir með innlent og erlent útæsði.
I töflu XCIV er greint frá árangri af tveggja ára tilraun með erlent
og innlent útsæði af þremur kartöfluafbrigðum.
Tilraunin bendir ekki til þess, að erlent útsæði reynist betur en ís-
lenzkt af afbrigðunum Kerr’s Pink og Jubel, en íslenzkt útsæði af Acker-
segen (Akurblessun) gefur heldur betri raun en útlent útsæði. Reynt var
að hafa sem jafnasta útsæðisstærð, samanb. útsæðismagn á ha, en íslenzka
útsæðið varð þó heldur minna. Ef litið er á margföldun útsæðis í upp-
skeru, þá kemur í ljós, að íslenzkar Jubel og norskar gefa jafna margföld-
un útsæðis í uppskeru, íslenzk Akurblessun rúmlega nífaldast, þegar
norskt útsæði er áttfalt. íslenzk Kerr’s Pink útsæði gefur sexfalda upp-
skeru, en norskt útsæði sjöfalda. Þegar á margföldun útsæðis er litið,
verður íslenzka útsæðið ekki lakara en það útlenda. í tilraununum var
íslenzka útsæðið af Kerr’s Pink og Jubel stöngulveikara en það norska,
en Akurblessun hraust að öllu leyti. Getur hér verið að einhverju leyti
orsakanna að leita að heldur minni uppskeru af íslenzku útsæði en
norsku, livað Kerr’s Pink og Jubel áhrærir.
5. Tilraunir með moldspírun kartaflna.
Tilraun með moldspírun á Gullauga hefur aðeins staðið í þrjú sumur,
og er árangurinn sýndur í töflu XCV. Til samanburðar voru kartöflur
með venjulegum grænum spírum settar niður í garðinn samtímis gróður-
setningu moldspíruðu kartaflnanna. Moldspírunin var framkvæmd á
þann hátt, að um fjórum vikum fyrir niðursetningu voru kartöflurnar
settar í moldarkassa og látnar mynda þar stöngul og blöð. Þegar stöngl-
arnir voru ca. 10 cm háir, var hver planta gróðursett út í garð með dá-
litlum moldarhnaus, og grænspíruðu kartöflumar jafnframt. Gróðursett
var 5.—14. maí þessi þrjú ár, og þær spíruðu og moldspíruðu teknar upp
samtimis.
7*