Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Side 7

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Side 7
Konum hefur fjölgað í röðum höfunda Þegar ég sest við tölvuna í þeim tilgangi að fylgja þessu 41. hefti Múlaþings úr hlaði með fáeinum orðum flýgur margt um hug minn. A komandi hausti er hálf öld liðin síðan nokkrir menn, áhugasamir um sögu Austurlands komu saman og stofnuðu félag í þeim tilgangi að standa að útgáfu byggðasögurits sem skyldi hafa það hlutverk að halda saman og miðla ýmsum fróðleik úr landshlutanum bæði úr fortíð og samtíð. Ari síðar barst fyrsta hefti Múlaþings lesendum og enn er það á ferðinni trútt því hlutverki sem því var ætlað í upphafi. Ytra útlit hefur þó breyst og orðið glanslegra samhliða aukinni tækni í prentun og Ijósmyndun. Margir hafa í árana rás lagt ritinu til efni. Framan af voru það aðallega áhugamenn og grúskarar um austfirsk fræði, en með aukinni menntun þjóðarinnar hefur greinum fræðimanna sem flestir hafa stundað háskólanám í þjóðlegum fræðum eða náttúruvísindum farið íjölgandi. Enn koma þó inn greinar frá leikmönnum og vona ég að þeir haldi áfram að skrifa því þannig vil ég hafa Múlaþing, íjölbreytt að efni, vettvang fyrir jafnt leika sem lærða. Þegar gluggað er í Múlaþing ffá fyrstu áratugum útgáfunnar má segja að það sé undantekning að þar birtist efni eftir konur. Það hefur breyst hin seinni ár, þó í langt sé í land með að þær standi þar jafnfætis körlum. Á seinni árum hefur það aukist að yngra fólk eigi efni í ritinu. Því miður hefur það ekki haft í för með sér fjölgun áskrifenda en kaup á tímariti, af þessari gerð, virðast ekki vera á áhugasviði unga fólksins á öld margmiðlunar og þyrfti það að breytast. Áskrifendur eru þó ritinu tryggir og víða á heimilum er það til frá upphafi og nokkuð algengt að eldri kaupendur hafi að dægradvöl að binda það inn. Undirrituð hefúr frá árinu 2003 verið ritstjóri Múlaþings ásamt Jóhanni G. Gunnarssyni að undanskildum árunum 2010-2012 þegar Rannveig Þórhallsdóttir kom í minn stað að útgáfu þriggja hefta. Þetta hefur verið skemmtileg og gefandi vinna sem sem hefur haft í för með sér ánægjuleg samskipti, bæði við lesendur og þá mörgu sem ljáð hafa okkur efni í ritið. Ég tel þó að tími sé kominn til að draga sig í hlé og hleypa að nýju fólki. Jóhanni þakka ég góða samvinnu og óska Múlaþingi farsældar á komandi árum. Arndís Þorvaldsdóttir Eg vil fyrir hönd útgáfustjórnar Múlaþings þakka Arndísi Þorvaldsdóttur fyrir hennar góðu störf við útgáfu ritsins þann tíma sem hún hefur verið ritstjóri ásamt undirrituðum. Einnig vil ég persónulega þakka henni fyrir prýðisgott samstarf i hvívetna við ritstjómina og síðast en ekki síst útsjónarsemi hennar við að fmna myndir til að birta með greinum. Jóhann G. Gunnarsson 5
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.