Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 19

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 19
„Látið mig segja það sem sagan þarfnast“ og frið til að sinna því sem honum brann í sál og sinni. Hitt er öllu furðulegra að 21.öldin, þegar hver sótraftur er á sjó dreginn, styrktur og undirhlaðinn, skuli enn ekki hafa skapað það skúmaskot á landi hér er sinni fræðum þeim og fróðleik sem Sigfus Sigfússon hefur látið þjóð sinni eftir. En þrátt fyrir þetta voru þó alltaf einhverjir sem skilning höfðu á Sigfusi og fræðum hans; voru reiðubúnir að helja merki hans og ævistarf. Stoltur er ég æ af framlagi nafngjafa míns og afabróður, Benedikts Jónassonar á Vestdalseyri, sem alla ævi var maður fátækur en „gerði þó það sem honum datt í hug“, svo vitnað sé til orða föður míns. Hann stökk þar sem tvö stærstu bókaforlög landsins- og eitt danskt að auki - höfðu hrokkið, og hóf útgáfu á hinu mikla safni Sigfúsar. Annar í þessum kallendakór Sigfúsar var skáldið Guðmundur G. Hagalín sem ungur að aldri - aðeins rúmlega tvítugur - kynntist Sigfúsi og hreifst svo mjög af manninum og starfi hans að hann reisti honum óbrotgjaman minnisvarða í æviminningum sínum. Svo segir í bók Hagalíns, „Stóð ég úti í tunglsljósi“: Eg greip efstu bókina í þeim hlaðanum sem nær mér var. Hún var þunn, en eins og raunar allar hinar í stóru broti. Á titilsíðuna var skrifað skýru, settlegu, en dálítið luralegu letri - annar stafurinn rauður, hinn blár: Sögur um æðstu völdin. Ég fletti, las hér setningu, hér málsgrein, ritaðar með settlegri, nokkuð stirðlegri, en greinilegri hendi, las fyrirsagnir sem allar voru með stærra letri en meginmálið, auðsæilega lögð við þær mikil alúð. Ég tók aðra bók og þá þriðju og fjórðu, fletti, las - þannig áfram. I sumum bókunum var meira en einn aðalflokkur sagna, líka voru ýmsir af flokkunum svo langir að þeir fylltu tvær þykkar bækur. Augljóst var að flokkunin var sérlega rækileg, gerður til dæmis glöggur greinarmunur á hinum ýmsu tegundum jarðbúa, sæbúa og anda, sögur um sérkennilega menn einnig flokkaðar nokkuð eftir því hvað það var sem hafði sérkennt þá. Heiti staða og manna, sem komu við sögu að meira eða minna leyti, skiptu áreiðanlega þúsundum. Sumar sögumar gerðust við sjó eða á sjó, aðrar uppi í dölum eða óbyggðum. En yfirleitt fjallaði þetta feiknamikla safn um Austurland og Austfirðinga, dularverur og menn að fomu og nýju, feiknlegar furður og off harmræn örlög, samleik þess flestum dulda og hins, sem hverjum og einum er skynjanlegt... Hvílík vinna, hvílíkur áhugi, hvílík elja- já, hvílík heilsa að geta þetta auk þess að vinna sér fyrir fötum og fæði! Ég sá hinn hálfsjötuga sagnaritara stika rösklega í blóma lífsins yfir snæviþakin fjöll, með létta hliðartösku sem byrði, sá hann síðar aldurhniginn kafa fönn í sviðringsbyl upp bratta brekku og brekku af brekku - með þykka og þunga tösku á hálflotnu baki. Ég sá hann sitja við hlóðarstein í útieldhúsi og hlýða á mál gamallar konu, augun hvöss af athygli. Ég sá hann sitja á jötubandi í ijárhúsi og leggja eyrun við orðum veðurbitins beitarhúsasmala með lambúshettu á höfði. Ég sá hann ennffemur rölta um afréttir og útilegumannaslóðir, stanza, horfa, hlusta, skoða af sérstakri natni hvers konar missmíði á náttúmnni, sem hugsanlega kynnu að vera af mannavöldum. - Svo var það vinnan við að færa hvaðeina sem hann hafði talið frásagnarvert eða sjónarvert, í letur, og ég sá hann sitja um myrka vetrarnóttu á héluðu dyralofti með blýantspáruð blöð á öðm hnénu og bók - eina af þessum bókum - á hinu, ljósið glæta frá kerti, olíutým, kannski einungis tunglskin...Og loks sá ég hann standa við krambúðarborð og bíða, sjómenn, bændur, strákagalgopar, sá hann líta arnfráum augum snöggt til hliðar þegar 17
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.