Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Blaðsíða 35

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Blaðsíða 35
Ógiftar konur í hópi vesturfara, 1870-1914 vinnukonur alla sína tíð. Langalgengasta atvinnugrein kvenna á þessum tíma var þó vinnukonustarfið en rannsóknir kanadíska sagnfræðingsins Evu St. Jean sýna að samkvæmt kanadísku manntali árið 1931 unnu 58% skandinavískra kvenna við þjónustustörf, einkum sem þjónustustúlkur.7 Þessum konum sem rannsóknin beinist að hefur fremur lítið verið haldið á lofti i íslenskri kvenna- og kynjasögu eða í sögu vesturferða. Hér er að fínna dæmi um konur sem ferðuðust á milli landa eins og Guðný Þorvaldsdóttir (1871-1946) sem starfaðit.d. á gistihúsum í Skotlandi í átta ár áður en hún fluttist til Kanada.8 Ennfremur um konur sem lærðu iðngrein á borð við saumaskap, ýmist áður en þær héldu vestur um haf eða eftir komuna þangað. Sem dæmi má nefna Elínu Sigurðardóttur Hall (1883-1960).9 Hún fluttist 17 ára gömul úr Skagafirði til Kanada og giftist aldrei en lærði saumaskap og sá fyrir sér með því. Auk þess var hún góð söngkona og virk í áhugamannaleikfélagi í Winnipeg.10 Þá má nefna ljósmóður eina, Ingibjörgu Björnsdóttur er fædd var i Húsey í Hróarstungu í Norður-Múlasýslu árið 1873. Ingibjörg lauk ljósmæðranámi árið 1896 og starfaði í Hjaltastaðahreppsumdæmi og Vopnaijarðarhreppsumdæmi áður en hún hélt til Ameríku árið 1903.11 7 Eva St. Jean, „Swedes on the Move. Politics, Culture, and Work among Swedish Immigrants in British Columbia, 1900-1950“. Óprentuð doktorsritgerð frá University ofVictoria, 2004. https:// dspace.library.uvic.ca/bitstream/handle/1828/48 l/stjean_2004. pdf?sequence=l (30-12-14), bls. 115. 8 Sjá Lögberg 30. maí 1946, bls. 7; Hallgrímur Pétursson og Guðríður Símonardóttir. Niðjatal. II. Ritstj. Ari Gíslason (Reykjavík 1989), bls. 305. 9 Vestur-íslenzkar œviskrár I. Benjamín Kristjánsson bjó undir prentun (Akureyri 1961), bls. 153. 10 Heimskringla 4. febrúar 1953, bls. 1. Sjá einnig t.d. Vestur- íslenzkar œviskrár I. Ritstj. Benjamín Kristjánsson (Akureyri 1961), bls. 190. 11 Ljósmœður á íslandi I (Reykjavík 1984), bls. 303. Upplýsingar vantar um dánarár Ingibjargar Bjömsdóttur. Mögulega var lífshlaup þessara kvenna að einhverju leyti dæmigert fyrir ákveðinn hóp kvenna en það verður á hinn bóginn ekki sagt um lífsferil Kristrúnar Sveinungadóttur (1835-1917). Kristrún var fædd í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu. Hún giftist og átti eina dóttur en skildi við mann sinn árið 1862. Síðustu fimm árin áður en hún fór frá Islandi var hún vinnukona hjá séra Arnljóti Ólafssyni á Bægisá og konu hans Hólmfríði Þorsteinsdóttur. Ljóst virðist að Kristrún hafí tengst þessari fjölskyldu nánum böndum. í minningargreininni er sérstaklega greint frá bréfaskiptum hennar við fyrrum húsmóður sína. I bréfi sem ritað er í desember 1901, 25 árum eftir að Kristrún fluttist búferlum til Vesturheims, ritaði Hólmfríður henni bréf og þakkaði „[hjjartanlega ... fyrir elskulegt og gott bréf frá í ágúst í sumar. Þú getur ekki trúað hvað vænt mér þótti um það. Eg fmn í því þína fágætu óslítandi trygð við mig og mína, þá elsku og trúfesti, sem svo fáum er gefm.“12 En vist Kristrúnar á heimilinu á Bægisá gefur tilefni til ákveðinna athugasemda varðandi vinnumennsku. I því sambandi er fróðlegt að skoða skrif finnska sagnfræðingsins Varpu Lindström um fmnskar vinnukonur í Kanada en hún hefur t.d. bent á ákveðið stigveldi eða virðingarröð sem ríkti innan þeirrar starfsgreinar. Vinnukonur sköpuðu sína eigin virðingarröð en meðal þess sem þar skipti máli var efnahagur húsbændanna.13 „Vinnukona“ og „vinnukona“ var sum sé ekki hið sama. Af minningargreininni um Kristrúnu í Almanaki Olafs S. Þorgeirssonar má í það minnsta ráða að vinnumennsku á „betri heimilum“ hafi fylgt einhvers konar virðingarsess. 12 Jón J. Bíldfell, „Kristrún Sveinungadóttir“, Almanak Ólafs S. Þorgeirssonar 49 (1943), bls. 45-46. 13 Varpu Lindström, ,„,I Won't Be a Slave!“ Finnish Domestics in Canada, 1911-30“, í I Won't Be a Slave! Selected Articles on Finnish Canadian Women 's History (Beaverton Ontario 2010), bls. 41. 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.