Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Qupperneq 39
Ógiftar konur í hópi vesturfara, 1870-1914
á Rjúpnafelli“ þangað til hún var 18 ára
gömul. Eftir það var hún „meira og minna
langdvölum að heiman“ og einn vetur stundaði
hún saumanám í Reykjavík.27 Saumakonur
voru stétt iðnlærðra kvenna sem kom fram á
sjónarsviðið á Islandi um 1860. En það að læra
slíka iðn var skref í átt til aukins sjálfstæðis.28
Anna fluttist „til Ameríku“ vorið 1903
ásamt systur sinni Jónu og settust þær að í
Winnipeg. Þá var hún 27 ára gömul. Veturinn
1904-1905 giftist hún Sigbimi Sigbjömssyni
frá Ytra-Núpi í Vopnafírði. Þau bjuggu í
Winnipeg til ársins 1908 er þau námu land
í grennd við Leslie í Saskatchewan þar sem
þau bjuggu upp frá því.29
Hugsanlega fellur Anna Guðmundsdóttir
ekki undir þá skilgreiningu að vera „ættstór“
en engu að síður er ljóst að hún hafði ákveðin
„góð“ íjölskyldutengsl. Minningargreinin
vitnar um nauðsyn þess að gera grein
fyrir slíkum tengslum, en fyrir utan systur
hennar Jónu er gift var Lofti Jörundssyni,
húsameistara í St. Jomes, Manitoba, og
bróður hennar Pál, bónda við Leslie, þá er
einnig nefndur annar bróðir er var Þorsteinn,
„kvæntur Ragnhildi Jónsdóttur, alþingismanns
frá Sleðbrjót."30 Mannkostir Önnu eru að
sjálfsögðu tíundaðir en meðal þeirra var
hæfileiki sem ljóst er að var í miklum metum
meðal íslendinga í Kanada.31 Anna var orðsins
27 Lögberg 18. október 1951, bls. 4.
28 Sjá Anna Sigurðardóttir, Vinna kvenna á íslandi í 1100 ár
(Reykjavík 1985), bls. 308-311.
29 Lögberg 18. október 1951, bls. 4. „Hugmyndin um „landnám“
í kanadískri sögu hefur verið mikið gagnrýnd. Hefur t.d. verið
bent á að hún geri ráð fyrir að enginn hafi búið á landinu áður
og „gleymi“ meðvitað þeirri stefnu við stofnun nýlendna
(icolonization) sem ffamfýlgt var. Sjá C. Lesley Biggs with Stella
Stephanson, „In Search of Gudrun Goodman: Reflections on
Gender, „Doing History“ and Memory“, The Canadian Historical
Review 87:2 (2006), bls. 304.“.
30 Lögberg 18. október 1951, bls. 4 [leturbr. mín].
31 Sjá Daisy L. Neijmann, The Icelandic voice in Canadian Letters.
The Contribution of Icelandic-Canadian writers to Canadian
literature. Nordic Voices 1 (Ottawa 1997), bls. 78, 90; Viðar
Hreinsson, „Vestur-íslenskar bókmenntir“, í Islensk
bókmenntasaga III, Ritstj. Halldór Guðmundsson (Reykjavík
1996), bls. 730.
manneskja og „prýðilega hagmælt". Eins og
segir í minningargreininni þá orti hún „marga
hnyttna bögu og enda bragi“ þegar hún var
ung „um eitt og annað, sem til féllst“.32 Þessu
virðist hún hafa haldið áfram en a.m.k. er til
heimild um að hún hafi flutt frumort kvæði
í gullbrúðkaupi sem haldið var í Leslie árið
1946.33 Þá má sjá að hún tók þátt í samræðum
um íslenskar bókmenntir en það sést á bréfi til
vinafólks hennar þar sem hún lýsti skoðunum
sínum á verki Halldórs Laxness, Sjálfstætt
fólk.34 Raunar virðist hún hafa tengst nokkuð
náið samfélagi bókmenntafólks og skálda sem
varð til í Leslie upp úr aldamótunum 1900
og fjallað er um í ritinu The Saskatchewan
Icelanders eftir W. J. Lindal.35 Ennfremur má
nefna að sonur hennar, Haukur Stefánsson,
varð listmálari og bróðir hennar Björgvin
Guðmundsson var tónskáld, en hann var
einnig höfundur minningargreinarinnar.36
Anna Guðmundsdóttir Sigbjömsson virðist
hafa verið kona með umtalsverð félagsleg og
menningarleg tengsl eða „auðmagn“.
Jóhanna og Anna em tvö dæmi af fjöl-
mörgum um konur sem voru einhleypar
þegar þær héldu frá íslandi til Vesturheims.
Við rannsóknina á þessum konum hef ég
notið góðrar aðstoðar frá Héraðsskjalasafni
Austfírðinga á Egilsstöðum. Hér hefur verið
varpað ljósi á lífsferil þeirra og hvernig þær
sköpuðu sér vettvang, og er markmiðið
að þegar rannsókn þessari lýkur þá verði
orðin til vitneskja um stóran hóp kvenna í
hópi vesturfara sem hingað til hefur verið
ósýnilegur og í rauninni gleymdur.
32 Lögberg 18. október 1951, bls. 4.
33 Lögberg 6. júní 1946, bls. 5.
34 Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. KB, 228 4to, Bréfasafn Önnu
og Lárusar Nordal, Gimli. Bréf frá Önnu Sigbjömsson 18.
desember 1946.
35 Walter J. Lindal, The Saskatchewan Icelanders. A strand of the
Canadian Fabric (Winnipeg 1955), bls. 142-144.
36 Sjá Haukur Stefánsson 1901-1953 (Akureyri 1995); Haukur
Agústsson, Ferill til frama. Ævisaga Björgvins Gudmundssonar
tónskálds (Akureyri 2011).
37