Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Qupperneq 54
Múlaþing
Andrés Kjerúlf á Melum. Ljósmyndari: Nicoline
Weywadt. Eigandi myndar: Þjóðminjasafn Islands.
bókmenntir. Ég sá hann t.d. kenna yngstu
bömum sínum dönsku, en sjálfur stóð hann
og tvinnaði band á snældu. Andrés var sonur
Jörgens Kjerúlfs læknis á Brekku; hann var
læknir þar 1805, en ekki veit ég hvað lengi, en
líklega hefur hann verið lengi læknir þar, því
þar hafa böm hans vaxið upp og staðfestu þau
öll ráð sitt hér eystra.4 Þau vom: 1. Andrés,
giftur Önnu Jónsdóttur frá Melum, 2. Jóhanna,
kona Sigfúsar á Klaustri, 3. Kristján er bjó út
á Héraði, bæði á Gilsárteigi og Fossvöllum,
hann var athafnasamur búmaður, það sagði
Andrés bróðir hans mér, en hann varð víst
ekki gamall.
Þegar ég kynntist Andrési gæti ég trúað
að hann hefði verið nær sjötugur, þá var hann
frískur á fæti og kvikur í hreyfmgum. Hann
var meðalmaður á vöxt, fríður og vel á sig
4 Jörgen var læknir á Brekku frá 1819 til dauðadags 1831.
kominn, með Ijóst hár og skegg; heldur þurr
á manninn og snöggur í tilsvörum, en kæmist
maður að honum, helst í einrúmi, og leitaði
fræðslu, þá var annað uppi á teningnum.
Færðist þá bros yfír andlitið og augun sindmðu
af fjöri, enda fannst mér hann ótæmandi
fróðleiksuppspretta. Hann sagði afar skýrt
og vel frá öllu, hafði þróttmikinn málróm og
talaði vel á mannfundum. Hann lærði ungur
bókband hjá Grími Laxdal á Akureyri, og
tók að mig minnir sveinsbréf í þeirri iðn. Var
hann sýslunefndarmaður Fljótsdælinga og á
þjóðfundinn 1851 var hann kosinn.5
En aðalstarf hans var búskapurinn á
Melum, þar gerði hann garðinn frægan með
kartöflurækt og vatnsveitingum langt á undan
samtíð sinni. A Melum bjó Andrés allan sinn
búskap. Þau hjón áttu tíu böm, er öll komust
til aldurs, en dóu mörg á besta aldri til hins
mesta skaða fýrir þjóðfélagið. Andrés hafði
á sínum yngri árum verið íþróttamaður, besta
skytta, og orðlagður skautamaður. Aldrei át
Andrés svo nokkra máltíð, að hann hefði ekki
opna bók fyrir framan sig, enda var hann lengi
að éta, og skeið og hnífur vildu oft lenda á
skökkum stað.
Húslestra las hann oft í „Mynsters
hugleiðingum“. Einu sinni tók ég eftir því
að Andrés hafði eina bók venju fremur lengi
á matborðinu hjá sér; forvitnin vaknaði þá
hjá mér, svo ég fór að skyggnast eftir því
hvaða bók þetta væri. Hún var um Jóhannesar
guðspjall, eftir Magnús Eiríksson, á dönsku.
Svo bað ég hann síðar að lána mér hana. Hann
varð glaður við og sagði mér margt og mikið
af Magnúsi.
Eins og áður er sagt var Andrés fremur
óþjáll í lund og erfitt að nálgast hann, og
þessa hefur viljað kenna með fleira af því
fólki. Má geta þess að ef böm hans vom með
5 Það er ekki rétt. Þjóðfundarmenn Norðmýlinga voru þeir
Guttormur stúdent, Arnheiðarstöðum og Sigurður Gunnarsson
pr. á Desjarmýri.
52