Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Side 98

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Side 98
Múlaþing hefur komið tengt Framsóknarflokknum í hugum fólks sem rétt var. Þetta setti sitt mark á auglýsingaöflunina og afkomuna. Hins vegar varð ég þess rækilega var þegar blaðið var lagt niður að fólk sá eftir þessum miðli og var það ekki bundið við stjóm- málaskoðanir.46 Utgáfu Austurlands hætt Austurland hélt áfram útgáfu út árið 2000. En þann 25. janúar 2001 birtist tilkynning á forsíðu þar sem boðað er hlé á útgáfu blaðs- ins. Lesendur og auglýsendur voru beðnir velvirðingar á þessu hléi en boðað er að það verði notað „til að skapa forsendur fyrir öflugu framtíðarblaði.“47 Með þessu þriðja tölublaði ársins 2001 lauk útgáfu Austurlands sem vikublaðs, þó þrjú tölublöð ættu eftir að líta dagsins ljós áður en útgáfu blaðsins var endanlega hætt. Henni lauk með 50 ára afmælisútgáfu þann 31. ágúst 2001. Þann 1. maí kom út fjórða tölubla dAustur- lands árið 2001 og var það að mestu helgað baráttudegi verkalýðsins. I því blaði var þó einnig að fmna grein þar sem skýrt var frá undirbúningsvinnu við stofnsetningu væntan- legs íjórðungsblað. Þar er sagt frá því að stofnað hafi verið félag sem nefnist Arblik um eigur Austurlands. Það félag leggi eignir fram sem hlutafé í væntanlegt útgáfufélag, en þar var um að ræða húsnæði, búnað og áskrifendalista. Arblik hafði einnig fengið almannatengsla- og útgáfufélagið Athygli í Reykjavík til liðs við væntanlegt útgáfufélag. Greininni lauk á hvatningu til Austfirðinga um að fylkja sér að baki nýja útgáfufélaginu, m.a. með því að fyrirtæki og einstaklingar leggi fram hlutafé. „Það er afar brýnt íýrir Austfírðinga að eiga málgagn og fréttablað þar sem tekið er á málum út frá austfirskum 46 Spurningakönnun. Svar Jóns Kristjánssonar, 26. september 2013. 47 [Ritstjóm] „Utgáfuhlé“, Austurland, 3. tbl., 51. árg. (25. janúar 2001), s. 1. sjónarmiðum.“48 Á forsíðu sjómannadags- blaðs Austurlands sem kom út 7. júní 2001 er áréttað að undirbúningur nýs fjórðungsblaðs sé í fullum gangi. Sérstaklega er tilgreint að nýja félaginu sé ætlað víðtækara hlutverk í útgáfu en það eitt að gefa út svæðisblað.49 Tengslin milli Austurgluggans og forvera hans, Austra og Austurlands, eru greinileg. Starfsmenn Austurghiggans, sem tjáðu sig um upphaf útgáfu blaðsins í svörum við spuminga- könnuninni, eru samdóma um að megin- hvatinn hafi verið sú skoðun að Ijórðungurinn þyrfti að hafa málgagn og birtingarmynd í samfélaginu. Hálfrar aldar samfelld útgáfa svæðisblaða á Austurlandi hafði rofnað og við það myndaðist tómarúm sem þörf var talin að fylla. Lokaorð Saga Austra og Austurlands síðustu tvo ára- tugi útgáfu blaðanna sýnir að aðgreining blaða í flokksmálgögn og óháð fréttablöð er ekki eins skýr og oft var af látið. Þá breytingu sem gerð var á rekstri blaðanna á 9. áratugnum, þegar þeim var breytt í fyrirtæki í stað þess að byggja að miklu leyti á sjálfboðavinnu, má líta á sem viðbrögð við breytingum sem þá áttu sér stað í íslenskri fjölmiðlun. Sá andróður sem þá var gegn flokksmálgögnum hafði m.a. hugarfarsleg áhrif sem sköpuðu og viðhéldu tortryggni gagnvart flokks- málgögnum almennt, hvort sem þau voru gefín út á landsvísu eða svæðisbundið. Til- bmbix Austra ogAusturlands til að breytast í fjórðungsblöð sem einbeittu sér að hlutlægum og ópólitískum fréttaflutningi báru ákveðinn árangur og áttu sinn þátt í að blöðin lifðu allt 48 [Ritstjóm] „Nýtt blað í burðarliðnum. Unnið að stofnun óháðs austfirsks fréttablaðs“, Austurland, 4. tbl., 51. árg. (1. maí 2001), s. 5. 49 [Ritstjóm] „Nýtt, óháð austfirskt fréttablað“, Austurland, 5. tbl., 51. árg. (7. júní 2001), s. 1. 96
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.