Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 110

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 110
Múlaþing andi víðsýnis og bróðurlegs skilnings á hjörtu og hugð náunga vors samferðamanns. Kominn til Egilsstaða Nú er ég staddur á skógi girtum Egilsstöðum í hjarta hins stórskoma og svipfagra Fljóts- dalshéraðs. Hinn margvísi guð mildur og ríklátur var mikils hugar daginn þann, er hann gjörði hér hinn dýpsta straum, hin stærstu fell, hina fegurstu skaga og feitustu mýrar, hérað hinna stórvöxnu býla, svipúðgu bænda og blíðfaðma freyja. Þótt jafnan sé vitnað í hina dásemdarfögru staði, Hallormsstað, Egilsstaði og Eiða og þeir era vissulega suðræn sýn hér uppi á vora kalda landi, þá verður Fljótsdalshérað þó fyrst og að fullu metið við yfirsýn hinna mörgu myndarbæja og unaðsstaða. Nú get ég ekki eytt tímanum í það til- heyrendur mínir að fara með ykkur bæ frá bæ eða sveit úr sveit svo víða fór ég um svo margt vildi ég sjá en sá þó ekki nema brot að því sem ég vildi. Það hefði ekki veitt af öllu sumrinu í fullnægjandi ferðalag. Og nákvæm ferðalýsing er í þessu tilliti óþörf. Fyrir mig var Austurland eitt heimili, sama hvar ég kom alls staðar mætti ég svo frábærri gestrisni, vinhlýju, hjálpsemi og góðhuga, að mér verður það ætíð ógleymanlegt. Jók mjög á, að auk bræðra minna í Hofteigi, Hrafnabjörgum og Hrappsstöðum, á ég svo mikinn fjölda skyldmenna í öllum sveitum Múlasýslna. En Austfirðingar era frændræknir og skrifaði sr. Einar Jónsson mikið rit um ættir þeirra. Undanfarið hefi ég haft undir höndum safn af ættarfróðleik úr fóram föður míns, en afhenti nú það Gísla í Skógargerði sem er að beita sér fyrir riti um Sandfellsættina, sem Gunnar Gunnarsson hyggst rita. Þess vegna langaði mig einmitt til að heimsækja frænda minn á Skriðuklaustri og sjá hin veglegu húsakynni hans. Ég barst upp Fellin á örmum frábærrar gestrisni í byr frændseminnar við fólk þar á ljölda bæja. Ég hitti svo Fellamenn í einum hópi við Rauðalæk, vora þeir að kjósa í hreppsnefnd. Það var friðarkosning fúllrar eindrægni, sem vera ber. Þama messaði ég við fjölmenni, kom á nokkur myndarheimili og undraðist, sem ég hefði þó ekki átt að gera það er sjálfgefíð, hvílík háttsemi, menning og útbúnaður var á heimilunum og hve ræktun og aðrar framkvæmdir voru augljósar hið ytra. Hún er líka góð aðstaða þess manns er lengi hefúr verið ijarri til að sjá þær miklu breytingar og framfarir sem orðið hafa í sveitum eystra á síðustu áram. I heimsókn að Skriðuklaustri Svo reið ég upp Fljótsdalinn á gæðingi einnar góðrar húsfreyju í Fellunum og heim að Klaustri. Þá sá ég hvemig stóð á hinni einkennilega dröfnóttu málningu húsveggjanna að utan. Þetta vora íslenskir steinhnullungar er stóðu út í veggina eins og gamalíslensk grjóthleðsla. Er nú var komið, flaug mér í hug úr kvæði Guðmundar Friðjónssonar: „Er ég í álfheimum, er ég bergnuminn"? Nú tæki mig langan tíma að lýsa húsum og búnaði þeirra. En eitt er víst, slíkt hefi ég hvergi séð og hugði ekki geta verið til. Hér hefúr skáldið skapað sitt langbesta listaverk, sitt eigið heimili. Þau hjónin bæði og sonur þeirra tóku mér af frábærri alúð og var rætt af ijöri í heilan sólarhring, er ég loks hafði mig á brott. Bræður og vinir heimsóttir Ég mátti til að hafa hraðann á eftir var að heimsækja marga frændur og vini er búa alla leið neðan úr Fjörðum um Fljótsdalshérað og norður í Vopnaijörð. Fyrst skal fínna sjálfa bræður mína og ijölskyldur þeirra. Þótt ég byggist við góðu að sjá nú í fyrsta sinn stóran hóp bræðrabarna átti ég ekki von á svona góðu. Þetta voru svo Ijómandi fríð og fönguleg æskumenni og böm og alveg sama var um hina upprennandi æsku, er ég sá eystra, böm minna gömlu æskuvina félaga og frænda. Sú þjóð er 108
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.