Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 117

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 117
Prestur hverfur á leið til kirkju á nýársdag Venja prests hafði verið að halda á annexíuna í Keldudal á Gamlársdag og syngja þar aftansöng og síðan hátíðarmessu áNýjársdag. ANýársnótt gisti hann þájafnan á Arnarnúpi. Að þessu sinni viðraði illa á Gamlársdag. Prestur hafði lagt af stað en snúið við, ekki talið ferðaveðrið íysilegt enda leiðin ekki auðfarin, jafnvel þótt veður væri stillt. Hann símaði því til Kristjáns bónda Guðmundssonar á Arnamúpi og kvaðst ekki mundu koma til messugjörðar í Keldudal að þessu sinni. En af einhverjum ástæðum breytti sr. Sigurður hins vegar ffá þeirri ákvörðun sinni, án þess að láta Amamúpsfólk af því vita og lagði af stað til Keldudals um kl. 7 að morgni Nýársdags. Hann reið einn og einhesta sem leið lá út að Sveinseyri; mun þó hafa gert stuttan stans í Haukadal, en þar beið hans húskveðja og útför aldraðrar vinnukonu, Jóhönnu Ólafsdóttur, á annan í nýári. Vafalaust hefur leiðin út að Sveinseyri verið presti greið því komin var fyrir nokkm brú á Sandaá, sem áður hafði oft verið slæmur farartámi. Veður var aftur versnandi, svo prestur mun hafa verið í nokkmm vafa um hvort halda skyldi áfram eða ekki, skrifaði Angantýr Amgrímsson; var hann þó „þrekmenni mikið sem setti lítt fyrir sig smámunina“4 og auk þess þaulkunnugur leiðinni eftir margar messuferðir að Hrauni eftir ijórtán ár í embætti þarna. Og Angantýr skrifaði ennfremur: „Hélt hann nú áfram ferðinni, kom við á Sveinseyri, en hafði þar litla eða enga viðdvöl. Þaðan lagði hann ömggur af stað, enda þá ekki svo vont veður, að af því ætti að vera nokkur sýnileg hætta.“5 Þegar heimilisfólk á Sveinseyri leit út á Nýársdagsmorgun fann það hest prestsins bundinn við útidymar. Það hafði gerst áður að sr. Sigurður af tillitsemi sinni vildi ekki 4 Frásögn Elíasar Þórarinssonar. 5 Úr bréfi Angantýs Amgrímssonar, 18. apríl 1943. vekja upp á bænum en lét vita af ferð sinni og fararskjóta með þessum hætti.6 Hélt hann síðan gangandi af stað út í Keldudal. Norðan kaldi var og ofankafald en enginn skafsnjór sagði í dagblaðsfrétt.7 Leiðin frá Sveinseyri út að Amamúpi í Keldudal liggur um snarbratta hlíð undir sjálfum Amarnúpnum, fyrst um svonefnda Hálsa sem telja mátti sæmilega greiðfæra þá en síðan um Eyrarófæru og er nafn hennar næg lýsing á aðstæðum þar. Um tvær leiðir um Ófæmna var að ræða á þessum tíma: Að fara fjöru stæði þannig á sjó eða fylgja mddri götu sem lá yfír Ófæmna. Mun hún hafa verið nýmdd þegar þetta var.8 Er prestur átti þarna leið um var lágsjávað svo leiðin fyrir ffaman Ófæmna hefði átt að vera greið þótt vafalaust hafi hálka verið þar á steinum. Ef til vill var það þess vegna sem hann kaus að fara efri leiðina. Gera mátti ráð fyrir að gangan frá Sveinseyri út að Amamúpi tæki rösklega tvo tíma... Mót venju bjó heimilisfólkið á Keldu- dalsbæjunum sig ekki til Nýársmessu í Hrauni að þessu sinni; vissi ekki annað en að prestur hefði hætt við messuferð sakir veðursins, eins og símtal hans við Kristján á Amamúpi hafði boðað, og var hið rólegasta í því tilliti. Leið svo Nýársdagur. Víkur þá sögunni inn í Haukadal er kominn var annar í nýári. Þar biðu menn hins vegar prestsins utan úr Keldudal til þess að halda húskveðju Jóhönnu gömlu, eins og um hafði verið talað. Sr. Sigurður hafði sagt konu sinni að hann mundi koma heim að kvöldi Nýársdags en þar sem jarðarför gömlu konunnar var ákveðin á annan í nýári þótti Guðrúnu prestskonu líklegast að prestur hefði gist í Haukadal þegar hann skilaði sér ekki heim til Þingeyrar um kvöldið. 6 Frásögn Elísar Kristjánssonar er hann hafði eftir Sigurjóni bónda Andréssyni á Sveinseyri. 7 Mbl. 5. janúar 1943. 8 Úr samtali við Knút Bjamason. 115
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.