Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Side 125
Prestur hverfur á leið til kirkju á nýársdag
Gísli, faðir sr. Sigurðar, sem oft hefur
komið við þessa sögu vegna vinatengsla
sem hann hafði stofnað til við ýmsa í
Þingeyrarhreppi, hafði horfið til heimahaga
sinna í Vopnafirði eftir fráfall konu sinnar árið
1935. Þegar dauðinn kallaði Gísla háaldraðan,
24. nóvember 1953, hafði verið lagt fyrir að
leggja hann til hvílu við hlið konu sinnar
er legstað átti vestur á Þingeyri. Hallgrímur
Helgason, sonarsonur Gísla og bróðursonur sr.
Sigurðar, tókst því ferð á hendur með lík afa
síns með strandferðaskipi austan af Vopnafirði
vestur í Dýrafjörð til þess að annast útförina.
Hún fór fram frá Þingeyrarkirkju þann 11.
desember 1953. Nokkrir vinir og kunningjar
Gísla þar vestra aðstoðuðu við útför hans.
Lauk þannig þætti sr. Sigurðar Z. Gíslasonar
og ættmenna hans í hinu foma Sandaprestakalli.
Og þó. Sumarið 1991 heimsóttu nefnilega
afkomendur hans Dýrafjörð. Sunnudaginn
14. júlí var haldin minningarguðsþjónusta
í Þingeyrarkirkju. Sigurður Rúnar Jónsson,
„Diddi fiðla“, sonarsonur séra Sigurðar Z.,
lék á orgel kirkjunnar, auk þess sem hann
lék tvö verk á fiðlu við undirleik föður síns
Jóns Sigurðssonar, „bassa“, hins þekkta
tónlistarmanns. Hjörtur Þórarinsson flutti
minningarorð um tengdaföður sinn, séra
Sigurð Z., og eftir messu bauð sóknamefndin
upp á kaffiveitingar.35 Við þetta tækifæri var
formlega afhent gjöf bama og tengdabama
sr. Sigurðar til Þingeyrarkirkju: ljóskastarar
til lýsingar kirkjunnar að utan. Þá hafði kirkjan
verið máluð og allt umhverfi hennar gert snyrti-
legt.
Nú er leiðin fyrir Ófæru orðin næsta
fáfarin á vetrum enda ekki lengur embættað
reglulega í Hraunskirkju þótt í ágætu horfi sé.
Keldudalur er ekki lengur í byggð. Ekki er því
lengur þörf aftansöngs á gamlárskvöldi ellegar
Nýársmessu. Á sumardögum eiga þó ýmsir
greiða för um þá erfíðu leið er Sandaprestar
35 Mbl. 25. júlí 1991.
íyrri tíðar máttu fara til embættis á annexíunni
í Hrauni. Vel má því stansa rétt utan við
Ófæmna og minnast þess er sr. Sigurður Z.
Gíslason sóknarprestur mætti þar örlögum
sínum á Nýársdag árið 1943 á leið til þjónustu
við og fyrir Guð sinn.
Heimildir
Magnús S. Magnússon: Landauraverð á Islandi
1817-1962. Rv., Hagstofa íslands, 2003.
Alþýðublaðið 5. janúar 1943.
Morgunblaðið 5. janúar 1943, 25. júlí 1991 og
15. júlí 2000.
Munnlegar heimildir
Samtöl við Elís Kristjánsson frá Arnarnúpi. (EK
er sá sem fann líksr. SZG).
Samtöl við Hallgrím Helgason á Vopnafirði. (HH
er bróðursonur sr. SZG).
Samtöl við Hjört Þórarinsson á Selfossi. (HÞ er
tengdasonur sr. SZG).
Samtöl við Asdísi Bjarnadótturfrá Kirkjubóli. (AB
var sóknarbarn og nágranni sr. SZG).
Samtöl við Knút Bjarnason frá Kirkjubóli. (KB var
sóknarbarn og nágranni sr. SZG).
Óprentaðar heimildir
Frá Hallgrími Helgasyni á Vopnafirði í apríl 2014:
• Elías Þórarinsson frá Sveinseyri: Slys á
Eyrarófœru 1943. Vélrituð greinargerð, 2
bls. (1988).
• Angantýr Arngrímsson frá Þingeyri: Bréf til
Gísla Helgasonar dags. 18. apríl 1943 og
[10]. maí 1943.
• Guðrún Benjamínsdóttir frá Þingeyri: Bréf
til Gísla Helgasonar dags. 16. apríl 1943 og
10. febrúar 1944.
• Ódagsett ágrip af „því sem Ól. Ólafsson
skrifaði Bened.“[líklega Benedikt, bróðir sr.
SZG] Ól.Ól. [Ólafur Ólafsson] var skólastjóri
á Þingeyri.
Upplýsingar úr prestsþjónustubók Sandapresta-
kalls, nú Þingeyrarprestakalls, fengnarfrá sr.
Hildi Ingu Rúnarsdóttur.
Örnefnaskrá Arnarnúps, dags. 22. júní 1979, þá
hjá Órnefnastofnun, nú Stofnun Arna Magnús-
sonar í íslenskum frœðum.
123