Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Blaðsíða 144

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Blaðsíða 144
Múlaþing Ekki hafði verið hýst heimféð, ég sá það til og frá um túnið. Ég fór því inn til Þorvaldar, sem var genginn til rekkju og talfærði við hann hvort ekki væri rétt að hýsa það sem til næðist af heimafénu, mér litist illa á þetta veðurútlit. Þetta samþykkti Þorvaldur og ég hýsti það fé sem ég fann í túninu og kringum það. Þegar vaknað var á páskadagsmorguninn var kominn ofsahvass norðanbylur, frost og dimmveðurs fannkoma. Úr bylnum fór ekki að draga fyrr en á öðrum sólarhring og má þó telja að bylurinn væri í tvo sólarhringa. Allan páskadaginn var bylurinn svo harður að óvíða fóru íjármenn til fjárhirðu á beitarhús á Jökuldal. A áliðnum morgni var farið í ijárhúsin á túninu, til að gefa fénu, sem ég hafði hýst þar og einnig að telja það, kom þá í ljós að vantaði 17 kindur af því fé sem heima átti að vera. Þar af voru þrír hrútar, sem ekki hafði verið hleypt út úr húsi fýrr en á laugardagsmorguninn. Það er vont fyrir þá að fá svona veðráttu til að byrja með sjálfsbjargartímabilið, hugsaði ég þá. Er þessu var lokið fórum við heim, og bjuggum okkur betur að fötum og fórum út á Dísastaði. Þar eru beitarhús önnur ffá Hjarðarhaga. Féð var ekkert hirt á laugardaginn. Er að Dísastöðum kom var flest féð í húsunum og þar voru líka hrútarnir þrír er vantaði að heiman, svo og 8 gemlingar, en af Dísastaðaánum vantaði þá 19 ær. Þá vantaði nú 25 kindur af heima- og Dísastaðafénu. Við vorum þarna allir þrír, hinir sömu karlmenn, er fluttu heyið í veðurblíðunni daginn áður, gáfiim nú auðvitað fénu og röbbuðum um það á meðan hvort hægt mundi að finna féð, það er nú vantaði. Þótti okkur líklegt að það hefði leitað undan hríðinni í árgil Jökulsár, sem rennur þama stutt fyrir neðan. Svo ákváðum við að gera tilraunina þannig: Að einn okkar færi aðeins á undan og þræddi stefnu milli þekktra kennimerkja, en hinir hefðu gát á kennimerki er frá var farið og að sá sem fyrir fór breytti ekki af réttri stefnu. Það var oft að lengra sæist ekki en aðeins niður fyrir fætur manns svo dimm var nú hríðinn. Það fyrsta er við urðum varir við voru tveir gemlingar, stutt fyrir neðan fjárhúsið, þeir lágu þar báðir dauðir, upp í loft. Þeir höfðu fallið fyrir mætti stormsins. Við komust niður að ánni þar sem hugðum þar skást aðgöngu, en sáum þá að þetta var tilgangslaust ferðalag og jafnframt hættulegt, því að ganga meðfram ánni eða eftir klettum þeim er að henni liggja, gat orðið til þess að einhver okkar lenti í ánni eða fram af klettum. Við snemm því aftur upp á melbrúnina neðan við húsin og tókum þar saman ráð okkar hvað gera skyldi. Frekari leit að fénu er vantaði var sjáanlega tilgangslaus í svona dimmum byl. Var það þar ákveðið að við skyldum fara út að Hofteigbeitarhúsunum er Viki kallast, svona til að forvitnast hvernig þar væri ástatt. Við vissum að á laugardaginn hafði ekkert verið hirt um féð á þessum beitarhúsum, þetta mun vera um þriggja kílómetra vegalengd og við fómm þetta með sömu varúð og við höfðum áður ferðast um daginn. Það var auðséð að á þessi beitarhús hafði enginn maður komið þennan dag. Þau stóðu opinn og töluverð fönn var í þeim, en féð sem í þeim var tróð hana undir sig og okkur virtist fátt eða ekkert mundi vanta af því fé sem þar átti að vera, en seinna kom í ljós að þama vantaði 4 eða 5 ær, en þær fúndust aldrei. Hafa óefað hrakið í Jöklu, þ.e. Jökulsá á Dal. Frá Vika fómm við heim að Hofteigi, því að okkur var nú farið að langa til að hitta menn að máli og okkur gekk nú einnig þetta ferðalag að óskum. En í Hofteigi var aðkoman sú að þar var fennt fram af bæjarburst niður á hlaðvarpa og fyrir flesta glugga á bænum. Sjáanlega hefði enginn maður farið þar út úr bæ þann dag. Við höfðum með okkur varrekur, bæði til að hlífa með þeim andlitinu í stormhríðarrokunum og til að moka með snjó við peningshús og víðar ef með þyrfti. Nú komu þær okkur í góðar þarfír til að moka upp bæjardymar í Hofteigi. 142
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.