Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 145

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 145
Stórhríð á Jökuldal Það má nærri geta að heimamenn voru undrandi mjög á því að komnir voru gestir í þessu líka páskaveðrinu. Þeir hafa líklega hugsað eins og Kristján Fjallaskáld lætur föðurinn segja við konu sína er hún var uggandi um son þeirra úti í hríðinni í kvæðinu Heimkoman: „Þegar ungur ég var, hef ég annað eins reynt, þá í óveðrum skemmti ég mér.“ Raunverulega er það skemmtilegt fyrir unga og fullþroska drengi að stríða í ströngu og ná settu marki. Jæja, þetta var nú hugleiðing, ekki raunveruleg ferðasaga hjá skáldinu, en nú höfðum við tal af fólkinu á bænum, eftir að hægt var að opna bæjarhurðina. Þar var presturinn Haraldur Þórarinsson og bóndinn og bústjórinn Sigurður Benediktsson, bróðir Þorvaldar í Hjarðarhaga, svo tveir séu nefndir allra þeirra er til dyra komu og tóku á móti gestunum. Allir höfðu löngun á að sjá fúllhuga sem fóru bæja á milli í slíku veðri. Og nóg um þetta. Okkur voru boðnar góðgerðir í stofú, sem við þökkuðum, svo renndum við af okkur snjóklæðunum og gengum inn til að drekka nú þama páskakaffið. Meðan það var dmkkið talaðist svo til að við fæmm að athuga gripina í húsunum á Hofteigstúninu og gefa þeim heytuggu, og Sigurður húsbóndi herklæddist í skyndi og hafði gaman af því að slást í orustuna með okkur. Við fómm í reiðhestahesthús prestsins og lukum því sem gera þurfti þar. Því næst í lambhúsið sem er þar rétt hjá og svo í lítinn kofa þar sem einu sinni var einn hestur er Oddur Guðmundsson átti, aldraður maður er var vinnumaður Sigurðar. Kofi sá mátti heita bókstaflega fúllur af fönn. Hrossið sást ekki fyrr en búið var að moka snjóinn frá því þar sem það stóð í einu homi kofans aðþrengt af loftleysi. Þetta hross tókum við og fluttum inn í húsið til prestshestanna. Síðast fómm við upp túnið í hesthús Sigurðar bónda. Það var best að rata að því með því að fara heim að bænum og þaðan beint upp að hesthúsinu, mun það vera 500-600 metra vegalengd. Þennan spöl fannst mér veðrið einna hvassast og dimmast, enda eini spölurinn er skeikaði frá réttri stefnu á allri þessari svaðilför. Við lentum í tóft sem er svo sem 10 metra framar en hesthúsið. Þennan spöl fómm við Þorvaldur tveir. Hinir sneru aftur ofan við bæinn og fóru heim. Að ekki var opnaður bærinn á Hofteigi fyrr en við komum var af því að innangegnt var úr bænum í fjós og kúahlöðu. Fólkinu fannst því ekki brýn nauðsyn að hrekja sig út til tjárgæslu í svona líðilegu veðri. Fólkið í Hofteigi vildi umfram allt að við yrðum hjá því til næsta morguns, en eðlilega vildum við fara heim til okkar er hér var komið. Enginn heima gat búist við öðm en að við hirtum féð á Dísastöðum og kæmum heim að því loknu, en vitanlega gat það tekið óákveðinn tíma dagsins, þar sem féð hafði verið hirðulaust daginn áður og við því jafhvel reynt að leita ef af því vantaði. En að það tæki daginn og nóttina líka. Það var óhugsandi og fólkið því orðið mjög undrandi um örlög okkar hefðum við ekki komið heim um kvöldið. Þetta vildum við forðast með því að halda heim en gista ekki að Hofteigi. Það fór því svo að Hannes varð eftir, en við Þorvaldur héldum heim í Hjarðarhaga og höfðum þá lokið útiverunni klukkan 10 um kvöldið. Daginn eftir, annan dag páska, var veðrið litlu betra fyrripart dagsins. Ég fór á Háijallsbeitarhúsin til ijárhirðu í vanalegri innistöðugjöf og svo ef veður færi batnandi að huga að ánum mínum, 6 sem vantaði á laugardagskvöldið og áður er sagt frá. En sú leit varð ekki löng, því þær vom í gömlu heytóftarbroti baka til við húsin. Skjöldólfsstaðasmalinn hafði orðið þeirra var á laugardagskvöldið og stuggað þeim út á leið sem varð til það þær röltu heim að húsi sínu og fundu í veðurofsanum ömggt skjól í þessari heytóft. En af hinu fénu sem vantaði, 19 ám og 6 gemlingum, fannst ekki annað en gemlingamir dauðu er áður var frá sagt, svo og 3 ær er stóðu í klettasyllu við Jökulsána. Hinar kindumar hafði Jökla gamla hirt. Slíkt hefur hún oft áður gert í vondurn veðmm.“ Halldór Pálsson skráði eftir jyrirsögn Agústs Asgrímssonar. Greinin birtist áður í Sunnudagsblaði Tímans. 143
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.