Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 50
48
HEILSUVERND
Waerland ræður yfir óvenjulegri þekkingu á sviði læknavísindanna,
ekki siður en í heimspeki og sögu. . . . Eg hefi lært mikið af Waer-
land, sérstaklega á sviði næringarfræðinnar."
J. Ellis Barker, þekktur enskur gagnrýnandi og rithöf-
undur um heilbrigðismál segir:
„Eg hefi lesið allt það merkasta, sem gefið hefir verið út í Eng-
landi, Ameríku, Frakklandi, Þýzkalandi og fleiri löndum, á sviði
heilbrigðismálanna, og eg hika ekki við að fullyrða, að bók Are
Waerlands, „In the cauldron of disease", hefir haft meiri áhrif á
mig en nokkur önnur, og máske munu komandi kynslóðir telja hana
beztu bók, sem nokkru sinni hefir verið rituð um heilbrigðismál."
Torsten Tegnér, forstjóri helzta íþróttablaðs á Norður-
löndum og einn mesti íþróttafrömuður Norðurlanda segir:
,,Eg tel Are Waerland einn hinna fáu merku rithöfunda, hugsuða og
kennimanna Norðurlanda í síðustu heimsstyrjöld. Starf hans á
sviði heilbrigðismálanna hefir sögulega þýðingu."
Dr. Franklin Bircher, læknir, einn af sonum svissneska
náttúrulæknisins Bircher-Benners, segir:
„Are Waerland er ekki einasta mikill brautryðjandi á sviði jurta-
neyzlu og heilbrigðismála, hann er líka mikill læknir."
Waerland hefir nú lifað eftir kenningum sínum í hálfa
öld. Þeir sem sáu og hlýddu á hann hér síðastliðið sumar,
getur ekki blandazt hugur um, að þar hafi farið óvenju-
lega hraustur og heilbrigður maður. 1 tæpan mánuð var
hann á sífelldu ferðalagi á misjöfnum vegum og flutti á
þessum tíma hálfan þriðja tug fyrirlestra, klukkutíma í
hvert sinn, á erlendu máli, sem hann byrjaði að nema 3
mánuðum áður. Ef til vill hafa menn ekki veitt því eftir-
tekt, sem ástæða var þó til, svo sjaldgæft sem það er hér,
að aldrei þurfti hann að hafa vatnsglas hjá sér, meðan á
fyrirlestri stóð, og aldrei heyrðist hann hósta eða ræskja
sig, nema einu sinni á Akureyri, en það var fyrir þá góðu
og gildu ástæðu, að fluga flaug niður í kok á honum.
Líklega yrði örðugt að finna mann á áttræðis aldri, sem
legði út í það að læra jafnerfitt mál og íslenzkan er, til
þess eins að geta flutt fyrirlestra fyrir nokkrum hundruð-
um eða þúsundum manna á þeirra eigin máli. Þetta ber