Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 63
HEILSUVERND
61
Stjórn félagsins var endurkosin, sömuleiðis stjórn Heilsuhælis-
sjóðs og endurskoðendur, að öðru leyti en því, að í stað Petru Guð-
mundsdóttur var Þórarinn Björnsson, póstfulltrúi, kosinn í stjórn
Heilsuhælissjóðs.
Stjórn félagsins skipa því: Jónas Kristjánsson, læknir, forseti;
Björn L. Jónsson, veðurfræðingur, varaforseti, og er hann jafn-
framt framkvæmdastjóri félagsins og fyrirtækja þess; Hjörtur Hans-
son, stórkaupmaður, gjaldkeri; Hannes Björnsson, póstmaður, ritari,
og Axel Helgason, lögregluþjónn, vararitari. Varastjórn: Sigurjón
Pétursson, og er hann fundarstjóri á fundum félagsins, Halldór
Stefánsson, fyrrv. forstjóri og Jón Oddgeir Jónsson, fulltrúi.
Stjórn Heilsuhælissjóðs skipa: Frú Matthildur Björnsdóttir, kaupk.,
formaður, skipuð af stjórn félagsins; Þórarinn Björnsson, póstfull-
trúi, gjaldkeri; Pétur Jakobsson, fasteignasali, ritari; Björgólfur
Stefánsson, kaupmaður og frú Guðrún Þ. Björnsdóttir. Varastjórn:
Axel Helgason, varaformaður, skipaður af stjórn félagsins; frk.
Anna Guðmundsdóttir og frú Kolfinna Jónsdóttir.
Endurskoðendur eru: Kristmundur Jónsson, stjórnarráðsritari, og
Valgeir Magnússon, og til vara Guðmundur Breiðfjörð.
1 íundarlok urðu nokkrar umræður um félagsmál og létu fundar-
menn í ljós ósk um, að fundir væru oftar en að undanförnu. Fram-
kvæmdastjóri kvaðst hafa litið svo á, að fyrirlestrar Waerlands,
bækur félagsins og tímaritið Heilsuvernd hefðu að nokkru komið i
stað funda; hinsvegar taldi hann þessar óskir gleðilegan vott um
áhuga félagsmanna og sjálfsagt að verða við Þeim, og það þeim
mun fremur, sem hinar væntanlegu kvikmyndir gæfu kærkomna
og nauðsynlega tilbreytingu á fundunum.
SPURNINGAR OG SVÖR.
J. H. spyr;
1. Hversvegna verða menn sköllóttir?
2. Hver er orsök flösu, og hvernig er auðveldast að ná henni úr
höfðinu fyrir fullt og allt?
3. Eru hárvötn óholl?
4. Er kaplamjólk holl til manneldis?
5. Er hollt að eta jurtir eins og þær koma fyrir á jörðinni, t. d.
hundasúru?
6. Hvaða eiturefni inniheldur vatn, sem er mettað af mýrarrauðu?
7. Hvað eiga þeir að gera sem þola illa birtu?
8. Er það óholl atvinna að aka bil?
9. Hvaða áhrif hefir nýmjólk á heilbrigði tannanna?