Luxus - 01.12.1984, Side 28

Luxus - 01.12.1984, Side 28
28 LUXUS SPORT 11 .J ijgiF- i] Kij . áíéáfjkrh ' , ' ' . ■ - y' * * .. Þessi mynd var tekin við Hótel Reynihlíð þegar lagt var app í snjósleðaferðina, sem Z greininni. Vékfeðaíþráttin ýst er síðast í er ímiktum uppgangi LUXUS segir hérfrá því helsta er snertirþetta Jrísklega sport, sem gerði Jyrst vart við sig hérlendis fyrir áratug og á nú sívaxandi vinsældum að fagna. / lok mars, norðarlega á Sprengi- sandi: Sex skíðamenn paufast áfram skáhallt á móti vest- lægum skafrenningi. Oft er illmögu- legt að halda augunum opnum og stundum svíður í andlitið undan hörðum ískristöllum sem vindurinn rífur upp úr hjaminu og feykir á undan sér. Þeir sem em svo forsjálir að hafa gleraugu sjá lítið framundan sér, því móða vill setjast innan á gleraugun og snjór framan á þau. En skíðamennimir halda þó áfram skref fyrir skref, en ljóst er að áfanga- stað verður varla náð fyrir myrkur með þessum gönguhraða. Smám saman lægir vindinn og fyrr en varir birtir upp. Sólin teygir geisla sína niður í gegnum ísnála- móðu sem liggur þama yfir umhverf- inu. Rosabaugur myndast umhverf- is sólu og utan um hann annar enn stærri en óskýrari. Skíðamönnunum miðar nú betur áfram en fyrr um daginn og skapið batnar að mun. Skyndilega heyrist torkennilegt suð þama mitt í auðn- inni, þar sem hundmð kílómetra em í næstu byggð og engrar umferð- ar að vænta fyrr en næsta vor, nema ef telja ætti með flugvélar sem stund- um heyrist til. En nú var hvergi flug- vél að sjá og alltaf hækkaði þessi torkennilegi niður. Skyndilega sjást tveir dökkir dílar skjótast út úr þok- unni og bmna niður í Bleiksmýrar- drögin, skammt þar fyrir norðan er skíðamennirnir stóðu. Á skammri stundu þutu tveir vél- sleðar upp úr drögunum og stað- næmdust hjá skíðamönnunum. Ökumennirnir vom kappdúðaðir með stóra hjálma og var gler framan á þeim sem ekki sást inn um. Engu líkara var en hér væm tveir geimfar- ar á ferð um tunglið í farartækjum sínum. „Góðan daginn," var sagt innan í hjálmunum. Hér vom komin karl og kona á tveimur Polaris vélsleðum, kappklædd með nokkurn farangur aftan á báðum sleðum. Þessi hjón sögðust hafa lagt af stað frá Akureyri á sleðunum rétt fyrir hádegi þennan sama dag og vom komin hingað, þvert yfir vegleysur upp í óbyggðir Islands, á örfáum tímum. Þessa sömu vegalengd höfðu göngumenn- irnir gengið á tveimur dögum. Eftir stutt samtal kvöddu hjónin og héldu áfram ferð sinni. Ætlunin var að fara suður í Nýjadal, þaðan í Jökulheima og þá jafnvel inn í Land- mannalaugar og síðan heim norður Sprengisand. Ef veður ieyfði var ætl- unin að fara einhveija útúrdúra, jafnvel yfir Hofsjökul og á Hveravelli. Vélsleðamir tveir hentust áfram út í kennileitislausa auðnina og hurfu von bráðar. Vélarhljóðið heyrðist þó lengi á eftir, kunnugleg- ar dmnur sem dóu út í ijarska. Vélsleðaíþróttin er í miklum upp- gangi hér á landi og sama má segja með gönguskíðaíþróttina. Báðar þessar íþróttir má stunda samhliða. Til em þeir vélsleðamenn sem aldrei fara í ferðir án þess að hafa með sér gönguskíði. Ef vélsleðinn bilar langt frá mannabústöðum getur verið gott að hafa gönguskíði til að koma sér til byggða. Fótgangandi maður í miklum snjó án skíða á erfitt. Einnig nota margir vélsleðana til að koma sér á tiltekinn áfangastað, þar sem gönguskíðin eru tekin fram og nýtt til að ferðast um nágrennið. Það em ekki nema rúm tíu ár síðan vélsleðar urðu vinsælir hér á landi þó svo að mönnum hafi fyrr verið ljóst notagildi þeirra sem at- vinnutæki, t.d. fyrir bændur, og til hjálparstarfs að vetrarlagi. Gildi þeirra til skemmtana, þ.e. útiveru og ferðsdaga, komu menn ekki auga á fyrr en síðar og er nú svo komið að stofnað hefur verið Landssam- band íslenskra vélsleðamanna. Er það félagsskapur á annað hundrað manna sem eiga það sameiginlegt að vilja stuðla að uppgangi vélsleða- íþróttarinnar og hvetja til skynsam- legra ferðalaga á vélsleðum. Formað- ur sambandsins er Vilhelm Ágústs- son, framkvæmdastjóri á Bílaleigu Akureyriar. Vilhelm er mikill áhugamaður um ferðalög hér á landi og er reyndur í vetrarferðum á snjósleðum. Ganga margar sögur af áhuga Vilhelms á þessum farartækjum, margar sann- TBXTI: SIGURÐUR SIGURÐARSON ar en einnig margar ósannar. Við heyrðum eina fyrir nokkrum árum, sem talin var ósönn, svo ótrúleg sem hún nú var. Vilhelm staðfesti það að í meginatriðum væri hún nú sönn, og fer hún því hér á eftir: Dag einn sem oftar skein sól í heiði á Akureyri. Var þetta seinni hluta vetrar. Snemma morguns hitti Vilhelm kunningja sinn einn og taka þeir tal saman. Verður það úr að þeir hlaupa hvor um sig heim til sín og sækja vélsleða sína og klæða sig eftir öllum kúnstarinnar reglum, sækja nesti og þeysa síðan inn eftir snjóbreiðum Eyjafjarðar, inn Eyja- fjarðardal og upp úr honum og upp á Sprengisand. Á Sprengisandi taka þeir stefnuna upp á Bárðarbungu og eru komnir þangað rétt um hádegisbil á efstu bungu. Þar virtu þeir fyrir sér land feðra sinna í hvítum búningi. Sól skein í heiði og hvergi skýhnoðra að sjá, ekkert útlit fyrir veðrabreytingu. Nú var ákveðið að fara í kvöldmat á Hveravelli. Frá Bárðarbungu var sjónfæri í Hofsjökul en Tungnafells- jökull á milli og Sprengisandur. Aftur var þeyst af stað. Vélsieðarn- ir voru sprækir, rétt eins og þeir fyndu fyrir veðursældinni. Færið var stórkostlegt enda miðaði tvímenn- ingunum vel áfram. Brunað var þvert yfir Sprengisand, upp á nyrðri enda Hofsjökuls fyrir öll vötn og rennt var í hlað hjá veðurathugunar- fólkinu á Hveravöllum talsvert fyrir kvöldmat. Eftir nokkurt stopp var ekki til setunnar boðið og haldið heimleiðis. í Eyjafjarðardal var náð stuttu eftir að myrkur skall á og var nauðsynlegt að aka eftir áttavita síðasta spölinn að dalnum. Þaðan var svo eftirleikur- inn auðveldur. Til Akureyrar var komið 12 tímum eftir að lagt var af stað. Þykir mönnum þeir félagar hafi farið hratt og vítt yfir. Sjálfur segir Vilhelm þessa ferð mjög ógáfulega, en þó þess virði að hafa farið hana. Vélsleðar eru skráningarskyldir rétt eins og önnur vélknúin farar- tæki. Hins vegar er ekki krafist ár- legrar opinberrar skoðunar á þeim. í Reykjavík eru ekki nema um 220 vélsleðar á skrá og má það vera furðulega lítið miðað við hversu margir sjást í nágrenni borgarinnar á góðviðrisdögum að vetrarlagi. Ekk- ert er gengið eftir því að sleðar séu á skrá og líklegast engin viðurlög við því ef svo er ekki. Að lokum er hér lítil ferðasaga af vélsleðaferð um Kröflu- svæðið eftir Þorstein Péturs- son og Vilhelm Ágústsson. „Ferðir á vélsleðum um óbyggðir landsins eru að verða mjög vinsælar og fleiri og fleiri þjóta nú um breiður öræfanna. Víðáttan gerir mann frjálsan og þær stórkostlegu and- stæður í náttúru landsins, þar sem mætast ís og eldur, gott veður og slæmt, heillar þá sem sækjast eftir þessum ferðum. Að kvíða vetri er því ekki til hjá sleðaáhugamönnum. Hjá okkur félögunum hafði lengi verið horft til Mývatns og Kröflu- svæðisins. Föstudag einn í mars var veðurútlit með allra besta móti og veðurfræðingar spáðu góðu veðri fram yfir helgi. Okkur var því ekki til setunnar boðið og fljótt eftir kaffi lagði fyrsti bíllinn af stað með nokkra fararskjóta á pallinum. Allir voru síðan mættir í Hótel Reynihlíð í glæsilegan kvöldverð, ilmandi hreindýrasteik og glæsilegur ábætir. Nutum við síðan gestrisni þeirra Mývetninga um kvöldið, en að lokum var endað með bridgekeppni. Kom sér þá vel fyrir okkur að með í ferðinni var þjóðkunnur bridgespil- ari. Þá flaut með ein og ein afreks- saga úr liðnum ferðum. Ljóst má vera að sögur þessar verða orðnar frambærilegar um næstu aldamót. Fæðst hafa nokkrir í þennan heim með þeim ósköpum að vakna fyrr en aðrir, og telja það köllun sína að vekja þá sem gjarnan vildu dvelja lengur í landi draumanna. Auðvitað þurftum við að hafa slik fyrirbrigði með okkur, ekki einn heldur að minnsta kosti þrjá. Sáu þeir um að vekja fyrir allar aldir og það sem meira var, þeir höfðu ákveðið að allir færu í sund, þar sem við gætum ekki verið þekktir fyrir annað en að vera vel hreinir í þessari ferð. Að loknum árbít var síðan þeyst af stað. Með okkur í fyrsta hluta ferðarinnar var þaulkunnugur heimamaður og sleðagarpur. Ekið var frá hótelinu um fallega ása og gil í Gæsadal. Dalur þessi er sunnan Gæsafjalla og eiga starfsmenn Kísiliðjunnar þar fallegt sumarhús. Þarna hittum vlð fyrir þrjá Mývetninga sem höfðu far- ið árla og verið að dorga. Höfðu þeir fengið einn vænan silung. Ókum við nú vestur fyrir Gæsafjöll og um Skessugil og upp á Gæsafjöll og alla leið á Jónstind. Fagurt útsýni er af tindinum. Dvalið var nokkra stund þar og nutu menn útsýnisins og rifjuðu upp örnefni. Mývetningurinn okkar fylgdi okkur nú austur af Gæsafjöllum og var það mjög bratt að fara og varla nema fyrir kunnuga að fara þá leið. Ágætt er hins vegar að aka upp á fjöllin um nefnt Skessugil. Austan við Gæsafjöll skildu leiðir og kvöddum við þar hinn ágæta leiðsögumann. Ókum við nú norður með fjallinu. Nægur snjór var uppi við fjallið en minni í nýja hrauninu. Dálítið rauk úr Ét- hólunum, sem minnti okkur á að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Luxus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Luxus
https://timarit.is/publication/1644

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.