Luxus - 01.12.1984, Page 39
Svenni og Jana
Þau eru hjón og eru við stjomvölinn á
tveim af vinsælustu skemmtistöðum landsins
— hvort í sínu lagi.
Og bæði eru þau í sýningarsamtökum.
LUXUS: Mér finnst liggja beinast við
að spyrja ykkur hvort þið getið nokk-
urn tíma farið út að skemmta ykkur
saman.
SVEINN: Það er lítið, nema ef við
tökum okkur frí á sunnudögum eða
■ miðri viku. Þá fáum við okkur að
borða eða tökum það rólega því að
• við fáum yfirleitt nóg af skemmtana-
bransanum þessi 5 kvöld í viku sem
ég er í þessu allan ársins hring. Ég
er búinn að vera í þessu í 12 ár;
lærði á Sögu í 3 ár, var síðan í
Klúbbnum í 9 ár og héma síðan 1.
maí. Svo er Jana búin að vera 2 ár
uppi í Broadway.
JANA: Rúmlega 2 ár, hveija einustu
helgi eiginlega.
SVEINN: Við skemmtum okkur eig-
" inlega með vinnunni.
JANA: Við fömm yfirleitt ekkert á
böll, nema eitthvað sérstakt komi
upp á.
SVEINN: Við hittum kunningjana
heima - fólkið sem er að vinna með
okkur, því að við emm næstum
búin að missa alla okkar gömlu fé-
laga. Þó kemur fyrir að okkur er
boðið í veislur éða eitthvað, en þetta
er ekkert mál. Ég segi bara að ég sé
að fara að vinna, og fólk skilur það
yfirleitt. Maður venst þessu.
JANA: En þetta er nú leiðinlegt
stundum. Fólk er hætt að hringja í
okkur og bjóða okkur í partí (hlær).
En það er góður mórall upp frá. Við
höfum haft mikið samband við fólk-
ið sem vinnur í Broadway. Þar er
• mikið af hjónafólki og við höfum
farið saman í leikhús og borðað á
eftir. Svo fömm við mikið heim til
pabba og mömmu til að grilla og
hafa það gott. Svo bjóðum við fólki
heim í mat eða förum í heimboð.
SVEINN: Við reynum að taka það
rólega.
JANA: Við fáum nefnilega svo mikið
út úr því að vinna (hlær). Það er svo
gaman.
LUXUS: Farið þið nokkurn tíma yfir
á vinnustað hins? Sveinn í Broad-
way eða Jana í Hollywood?
JANA: Jájá.
SVEINN: Eg hef farið upp í Broadway
að skemmta mér og skemmti mér
nijög vel.
JANA: Og ég hef farið í Hollywood.
En þá höfum við verið að vinna. Mér
finnst ekkert sniðugt að fara á ball
upp í Broadway þar sem ég hef
Þau fæddust bæði í Reykjavík, hafa verið saman í 9 ár og gengu í hjónaband
fyrir rúmu ári. Hún heitir Krístjana Geirsdóttir, venjulega kölluð Jana, og er
veitingastjóri í Broadway. Það þýðir að hún sér um starfsmannahald, föt á
starfsfólkið, tekur við kvörtunum, vísar til sætis og annast ýmisleg sem viðkemur
skemmtikröftunum á staðnum. Hann heitir Sveinn Erlendur Hjörleifsson, yfirþjónn
í Hollywood með öllu sem því fylgir.
Við ákváðum að hittast síðdegis 17. október sl. í Hollywood til að spjalla saman.
Þegar ég kom þangað sátu þau úti á tröppum í góða veðrinu en innan úr húsinu
heyrðust hamarshögg því að nokkrir smiðir voru þar að störfum. Jana bauð mér
kaffisopa. Ég þáði hann svo að við fórum inn og tylltum okkur.
Þau eru svolítið sérstök hjón þegar maður fer að ræða við þau. Jana er tápmikil
og lífleg til augnanna, Sveinn er rólegur í fasi, fastur fyrir og svolítill húmoristi í
sér. Ég tók eftir því að þau sögðu stundum nákvæmlega sömu orðin samtímis. Það
fór vel á með okkur og ég vatt mér beint í viðtalið.
TEXTI:
ÞORSTEINN EGGERTSSON
kannski verið að vinna kvöldið áður.
Mér finnst það einhvern veginn ekki
passa. Þó hefur það gerst.
SVEINN: Það hefur líka komið fyrir
að hún hefur brugðið sér með vin-
konu sinni hingað í Hollywood til að
hitta mig.
LUXUS: Hver er helsti munurinn á
Broadway og Hollywood?
JANA: Ahaaa . . . (hlær sigri hrós-
andi).
SVEINN: Hollywood er miklu betri
staður.
JANA: Öhöhö (hlær). Ekkert svona.
En það er náttúrlega yngra fólk
héma í Hollywood.
SVEINN: Og uppfrá (í Broadway) er
byggt upp á matargestum og vönd-
uðum skemmtiatriðum. Hér er
diskó og svona fyrir yngra fólkið.
JANA: Það er meiri fjölbreytni upp
frá náttúrlega. Show og þess háttar.
SVEINN: Ja, það er nú á báðum
stöðunum. En það em stærri sýn-
ingar upp frá. Hérna em reyndar
tískusýningar og þekktir einstakl-
ingar troða stundum upp. Við
höfum fengið erlenda gesti hingað
til að spila og syngja. Svo er opið
hérna alla daga vikunnar, en það er
misjafnt uppi í Broadway.
JANA: Yfirleitt er opið þar 4 ogjafn-
vel 5 daga í viku á veturna og um
næstu áramót verður opið heila viku
samfleytt.
SVEINN: Einu sinni var opið í Broad-
way í hálfan mánuð samfleytt í fyrra-
vetur. Það er alltaf eitthvað um að
vera. Þetta em tveir langvinsælustu
staðirnir í bænum. Það er afveg
margsannað.
JANA: Enda góð show sem hafa ver-
ið í gangi báðum megin.
LUXUS: Hvernig er aðsóknin í verk-
fallinu?
JANA: Góð. Mjög góð.
SVEINN: Það er búið að vera óvenju
margt hjá okkur, einmitt í verkfall-
inu.
JANA: Afveg rosalegt. Fólk virðist
ekkert hafa minnkað við sig. Til
dæmis upp frá - í mat og svona . . .
Ég á ekki til orð. Fólk virðist eiga
peninga til að geta borðað og fengið
sér í glas — og mætir klukkan 7. Það
þarf nú aldeilis eitthvað að fara ofan
í það til klukkan 3!
SVEINN: Ja, það er nú líka af því að
Ríkið er búið að vera lokað í hálfan
mánuð. Einhvers staðar verður fólk-
ið að ná í vín. Og það fær ekki orðið
tóbak í sjoppum eða verslunum.
LUXUS: Hvað er skemmtilegast við
svona starf?
SVEINN: Það er fjölbreytilegt. Maður
kynnist mörgu fólki.
JANA: Mér finnst bara gaman að
vera innan um bæði starfsfólkið og
gestina. Maður hittir alltaf gott fólk,
gamla kunningja og fleiri.
SVEINN: Maður er alltaf á fullu. Það
er alltaf eitthvað að ske. Annars
verður maður sjálfur að vera já-
kvæður. Það þýðir ekkert að koma í
vinnuna með lafandi tungu og þung-
lyndi. (Jana hlær.)
LUXUS: Þú ert búinn að vera í þessu
í 12 ár og slærð ekkert af.
SVEINN: Færist heldur í aukana ef
eitthvað er.
JANA: Þetta er náttúrlega öðmvísi
núna. Þú ert ekki inni á bar eins og
þú varst.
SVEINN: Nei, þetta er svona - meiri
stjórnunarvinna.
LUXUS (við Jönu): Hvað gerðirðu
áður en þú fórst að vinna á Broad-
way?
JANA (stolt á svip): Ég var húsmóð-
ir.
SVEINN: Hún var búin að vera heima
í 4 ár með strákinn. Við eigum 6 ára
strák.
JANA: Og svo var ég mikið í módel-
vinnu.
LUXUS: En hvernig fékkstu þetta
starf?
JANA: fÉg va; á fimmtudagskvöldi
uppi r Broadway. Þar var einhver
tískusýning og þá gekk Ólafur
(Laufdal) á mig og spurði hvort mig
vantaði ekki vinnu og ég hló bara.
Ég sagði: Hvað meinarðu? Þá
sagð’ann: Mig vantar einhverja
hressa og líflega til að vera móttöku-
stjóri. Ég hélt að hann væri að
grínast. Svo sagði ég að það væri
svosem allt í lagi að prófa það, sagð-
ist þurfa að tala við Svenna og að ég
skyldi tala við hann eftir viku. Svo
athugaði ég málið, fór aftur að tala
við hann og þá vildi hann endilega
fá mig og ég til í það. Nú, ég prófaði
og leist svo vel á þetta að ég er búin
að vera þar síðan og hef haft gaman
af.
LUXUS: Svona starfi fylgir líklega
heldur meira en að vera á saðnum
rétt á meðan hann er opinn.
SVEINN: Stundum kemst maður
ekki hjá því að taka starfið með sér
heim.
JANA: Og ekki bara heim. Maður
þarf ekki annað en að vera í bíói eða
úti að borða, þá finnur maður fyrir
því.
SVEINN: Maður talar um þessa staði
í öllum sínum frístundum, því að
það er alltaf það fyrsta sem minnst
er á: Hvernig var í Broadway? Hvern-
ig var í Hollywood? og . . .
BÆÐI: mikið að gera? (Hlæja.)
LUXUS: Og svo fýlgir þessu einhver
undirbúningur.
JANA (tekur andköf): Já, elskan
mín. Margra daga undirbúningur.
Ég tók t.d. að mér keppnimar
Ungfrú ísland og Ungfrú Hollywood
i fýrra. Það var stanslaust í 3 mán-
uði - nákvæmlega. Þá var ég að
vinna allar helgar, svo vom æfingar
þegar ekki var opið í Broadway, síð-
an var allan daginn verið að redda
sundbolum og fleira.
SVEINN: Hvað skoðaðirðu margar
stelpur?
JANA: Ég skoðaði 70 stelpur.
SVEINN: Á sundbol . . . (hlær með
sjálfum sér). Já sko, svo vom 10
pikkaðar út.
JANA: Veistu, það var bara sú
skemmtilegasta reynsla sem ég hef
lent í - að sjá um þessar keppnir.
Ég var titlaður framkvæmdastjóri.
Og að kynnast þessum 10 í íslands-
keppninni og 6 fyrir Hollywood -
það vom yndislegar stelpur allt
saman. Þrælgóðar, eins og maður
segir. Ég hitti þær oft og mér finnst
þær vera eins og gamlar vinkonur.
SVEINN: Svo fékk Geiri, strákurinn
okkar, að vera með henni í þessu.
JANA: Hann þekkir þær allar.
SVEINN: Hann sagði: „Ég vil hafa
þessa - eða hina - fyrir Ungfrú
LUXUS 39