Luxus - 01.12.1984, Page 90

Luxus - 01.12.1984, Page 90
90 LUXUS Dögg Hringsdóttir, Aðalsafn Borgarbókasafns Eg les mest erlendar bækur, næstum því eina bók á dag, þannig að það er eiginlega ekkert að marka mig - en ég man eftir tveim mjög skemmtilegum bókum sem ég las í sumar. Ónnur heitir Fanny eftir Erica Young og hin er eftir Ben Weider og heitir The Murder of Napoleon, gefm út af Congdon and Lattés í New York 1982. Báðar bækum- ar eru til hér á safninu. Seinni bókin fjallar um meint moið á Nafxíleon keis- ara. - Er það skáldsaga eða.. ? - Neinei. Það er ffæðileg bók en mjög skemmtileg samt. Hún er eftir sænskan mann sem byijaði á þessu um 1950 held ég, eða 1960. Hann var mjög mikill áhugamaður um Napóleon, las allt sem hann náði í um hann. Hann var tann- læknir og hafði líka áhuga á eiturefna- ffæði og áhrifúm eiturefha. Og hann fær allt í einu þá hugmynd, þegar hann fer að lesa endurminningar herbergis- þjóns Napóleons, sem var með honum á Sankti Helenu þangað til hann dó, að „einkennin sem hann sýnir séu eins og langvarandi arsenik„eitrun." Sem sagt arsenik-eitrun í smáum skömmtum i langan tíma. Og hann fer að rannsaka og kemst að niðurstöðu með þvi að hann nær í lokk úr hári Napóleons - en það hafði verið rakað af honum þegar hann var krufinn og herbergisþjónninn minningar. Honum tókst að ná í þijá og þeir voru rannsakaðir með geisla- virkri tækni og arsenik-innihaldið í þeim stóðst. Þetta kom heim og saman við atburðarás sjúkdómsins; hvemig hann hafði gengið fyrir sig samkvæmt mörgum heimildum, þarrnig að likumar á að hann hafl verið drepinn með arsen- iki em talsvert miklar. Og það em líka leiddar getur að þvi hver hafi myrt hann . . . Þetta er mjög áhugaverð bók. — Fleiri bækur? Það er nú það. Ja, til dæmis .Elskaðu sjálfan þig' sem kom út héma fyrir jólin. Hún fjallar um að maður eigi að meta sjálfan sig meira en alltaf er mælt með í kristilegri siðífæði en þar á maður allfaf að hugsa um náungann á undan sjálfúm sér. - Einmitt. En það er kannski rétt að meta sjálfan sig áður en maðurjer að meta aðra til að geta metið þá að verðleikum. Manni verður sjálfum að þykja sá maturgóðursem maðurbýður gestum sínum. - Jájá. Maður verður að standa á eigin rétti, bera virðingu fyrir sjálfúm sér og ábyrgð á sjálfum sér. - Er þessi bók mikið lánuð út af safninu? — Hún hefur verið pöntuð stöðugt síðan hún kom út. - Hvaða bækur eru vinsælastar hjá ykkur? - Það er mikið af léttu lesefni; ástar- sögur, hasarsögu rog svoleiðis. Núna er t.d. mikið lánað út af Sidney Sheldon af þvi að nýiega var sýnd bíómynd eftir einni af sögum hans. Það er algengt að ef efni bókar tengist einhveiju sem verið er að sýna í bió, þá kemur alveg skriðan til okkar. Líka í sambandi við það sem lesið er í útvarpi eða sýnt í sjónvarpi. Svo em ævisögur alltaf mjög vinsælar hjá okkur - jafnvel biðlistar eftir sumum þeirra mánuðum saman. - Heldurðu að það séu ákveðnar tískusveiflur í sambandi við það efni sem Jólk les? Nú voru t.d. dulspekilegar bækur mikið lesnar um tíma. - Þær em alltaf mikið lesnar en útgáf- an á þeim hefúr farið svo mikið niður. Titlunum hefur fækkað en jaeir vom ógurlega margir á sjöunda áratugnum. - Og svo eru það Jerðasögumar á sjötta áratugnum. - Já. Þær vom alveg óskaplega vin- sælar en núna em þær eiginlega alveg hættar að koma út. Heimurinn er nátt- úrlega orðinn miklu minni en áður. Það em ævisögur, endurminningar og viðtöl sem einkenna íslenska bókaúfgáfu eins og stendur. Þeirra tími vírðist vera núna. Ólafur F. Hjartar, Landsbókasafni Það er varla orð á gerandi hvað ég les núna. Jú, ég var að lesa bókina „Víða liggja vegamót" eftir Nevil Shutte um daginn. Hún gerist í Malayalöndum og fjaflar um enskar konur sem Japanir taka til fanga í stríðinu en þar sem jreir eiga engar fangabúðir em konumar látnar þramma fram og aftur um allar jarðir. Inn í þetta spilar svo ástarsaga einnar konunnar og ástralsks hermanns. Bókin heitir A Town Like Alice á frummálinu. Eftir sama höfúnd er t.d. bókin ,Á ströndinni." Og svo er ég að lesa bók núna sem ég er eiginlega að gefast upp á, Ulysses eftir James Joyce. Hrin hefúr ekki komið út á íslensku en það er eiginlega ekki hægt að segja írá henni. Hún er of margslung- in til þess. En þessi bók er gefm út aftur og aftur og kom nýlega út í endurskoð- aðri útgáfu vegna jaess að handritið hafði verið mislesið á sínum tíma. En þetta er tímamótaverk. — Manstu ejttr öðmm bókum sem þú vilt minnast á? — Það sem virðist vera mest þýtt hér á landi em spennubækur. Annað virðist ekki ganga eins vel. En fyrir nokkrum ámm þýddi Jón Helgason ritstjóri fyrsta bindið af „Útflytjendunum" eftir Vilhelm Moberg. Þetta er þriggja binda verk en aðeins eitt kom út á íslensku þar sem salan var of draem. Ameríski höfundur- inn Howard Fast hefur svo skrifað bók með sama nafni en þar em efhístökin svolítið öðmvísi. Hún er um fjölskyldu sem fluttist vestur um haf. Heimilisfað- irinn verður ríkur en svo kemur kreppan og hann verður öreigi í Wall Street. Af yngri höfúndum má svo minnast á nóbelsverðlaunahöfúndinn Isaac Bashe- vish Singer, en Almenna Bókafélagið hefúr gefið út eftir hann bókina „Ovinir — Ástarsaga." Annars vil ég líka benda á ungu rithöfúnduna íslensku. Þetta er góð kyn- slóð og margt athyglisvert hefúr komið frá Jieim undanfarið. Ég vil nú ekki segja margt í svona stuttu spjalli - en svona til að slá einhveiju frá mér get ég t.d. bent á verðlaunabók Einars Más Guðmundssonar, .Hiddarar hringstig- ans", sem eftirtektarverða bók. Hanna Sigurbjömsdóttir, Sólheimasafni Það skiptir nú litlu máli hvað ég las í sumarleyflnu mínu því að það vom mest erlendar bækur, aðaflega danskar kvennabókmenntir - Bodelsen, Cronin og Ditlevsen til dæmis. - Engar íslenskar? - Ja, jú — mér flnnst gaman að fyigjast með þessum yngri höfundum og las t.d. Vindur, vindur vinur minn eftir hann Guðlaug um daginn. Það er ansi góð bók. - Fleiri bækur sem þú qetur mælt með? - Nei. Ég mæli ekki með neinni einni bók umfram aðrar í svona viðtali. Ég er ekki í aðstöðu til þess. Það er ekki eins og ég sé að aðstoða lánþega. - En hvað lestu þessa dagana? - Les!? Það er svo mikið að gera héma að maður les ekki neitt nema þá helst aftan á bókakilina. Héma er rekin umfangsmikil starfsemi við að senda bækur heim til fólks. Við tökum saman eina 14 kassa á viku með svona 13 bókum í hveijum kassa. Það er fúllt af fólki á lista hjá okkur sem vill nota þessa þjónustu. Við förum heim til þess til að meta þörfma; hvort það er sjúkt, á erfitt með að bregða sér fiá og þar ffarn eftir götunum. Þeir sem komast á listann hjá okkur fá síðan sendar bækur einu sinni í mánuði - allt upp í 13 bækur - sér að kostnaðarlausu. En þar sem bóka- kosturinn er lítill - aðeins eitt eintak af hverri bók og starfsfólk fátt, 7 manns og bara 5 af jreim i heilli stöðu - þá er jretta mjög erfltt. Það tekur heilan dag að taka til bækur í kassana, tvær okkar em í heimsendingarvinnu á hveijum mánudegi og svo þarf að færa allt inn á spjaldskrá. Fólkið lætur okkur yflrleitt velja bækumar. Þegar jiað hefúr fengið svona 5-600 bækur lánaðar verður þietta tímafrek vinna og þung í vöfum, en við verðum að sjá tll jiess að enginn fái sömu bókina tvisvar og jiað er ekki alltaf hægt að taka til alveg jiað sem fólk langar til að lesa vegna eintakaskorts. Við þurfúm því að fylgjast vel með, þrátt fyrir ffumstæð vinnuskilyrði. Okk- ur vantar tölvu. Þetta er allt vélritað. Meiri fjárveiting - j)að er j»ð sem við þurfúm. Við borgum bara meiri skatta, væni minn, en samt er lítið meira gert fyrir fólkið. - Hvaða bækur er mest beðið um? — Allt mögulegt. Það er náttúrlega alltaf beðið um Ellefu líf — um ævi Biynhildar Bjömsson, bamabams Sveins Bjömssonar forseta, sem Stein- grimur Sigurðsson listmálari skráði. En Jjað er fjöldinn allur af öðrum bókum sem kemur til greina. Það væri kannski auðveldara að gera grein fyrir jiessu ef við hefðum fleiri eintök af hverri bók. Einar Öm Lámsson, Bústaðasafni Ég les aðallega Graham Greene - fæ aldrei nóg af honum - og er eiginlega nýbúinn að lesa tvær bækur eftir hann, LoserTakes All ogThe Honorary Consul. — Lastu þær á Jrummálinu? Hvaðskykhi bókaveiðir lesa sjálfir? TEXTI: ÞORSTEINN EGOERTSSON Á hveiju ári em gefnar út fleiri bækur, hlutfallslega, á Islandi en í öðmm löndum og þrátt fyrir mikla útlánastarfsemi myndbandabankanna virðist btið lát á lestraráráttu landsmanna. Það er næstum því ótrúlegt hvað mikið kemrn- út af bókum í nóvember, ný og ný tímarit em gefin út, sala á erlendum bókum er heilmikil og svo mætti lengi telja. En þótt bókaútgáfa hérlendis sé hvað blómlegust í skammdeginu þá em bækur að sjálfsögðu lesnar allt árið. Það er t.d. nokkuð algengt að fólk taki með sér álitlegan stafla af bókum í sumarleyfið, hvort sem það ferðast innanlands eða skreppur til útlanda. UJXUS hringdi í nokkra af bókavörðum höfuðborgar- innar um daginn og spurði þá meðal annars um hvað þeir hefðu lesið í sumarleyfinu. Það kom ýmislegt maikvert í ljós en svörin fara hér á eftir: gaf fjölda manns þessa hárlokka til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Luxus

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Luxus
https://timarit.is/publication/1644

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.