Morgunblaðið - 16.12.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021
Áslaug Hulda
Jónsdóttir, bæj-
arfulltrúi og for-
maður bæjarráðs
Garðabæjar, býð-
ur sig fram til
forystu fyrir
Sjálfstæðisflokk-
inn í Garðabæ í
prófkjöri sem
haldið verður
fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor. Gunnar
Einarsson, oddviti og bæjarstjóri,
hefur tilkynnt að hann láti af störf-
um í lok kjörtímabils.
Fram kemur í tilkynningu, að Ás-
laug Hulda hafi setið í bæjarstjórn
Garðabæjar frá árinu 2010 og skip-
að fyrsta sæti á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Garðabæ. Hún
hefur verið forseti bæjarstjórnar
og sinnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
,,Fjárhagsstaða sveitarfélagsins
er sterk og mikil uppbygging fram-
undan í ört vaxandi bæjarfélagi. Ég
hef sterka framtíðarsýn fyrir
Garðabæ og vil veita Sjálfstæð-
isflokknum í Garðabæ forystu til að
vinna af krafti að þeim verkefnum
sem fram undan eru. Ég bý yfir víð-
tækri reynslu og þekkingu á þeim
málaflokkum sem snúa að sveitar-
félaginu og hef þar að auki sinnt
fjölbreyttum störfum í atvinnulíf-
inu,“ er haft eftir Áslaugu Huldu í
tilkynningu.
Áslaug Hulda hefur verið í eig-
endahópi plastendurvinnslufyrir-
tækisins Pure North Recycling og
setið í stjórn Gildis, lífeyrissjóðs.
Áður var hún framkvæmdastjóri
Hjallastefnunnar og aðstoðar-
maður mennta- og menningar-
málaráðherra. Hún er grunnskóla-
kennari að mennt með fram-
haldsmenntun í stjórnun frá IESE
Business School í Barcelona.
Áslaug Hulda sæk-
ist eftir oddvita-
sætinu í Garðabæ
Áslaug Hulda
Jónsdóttir
Kiwanisklúbburinn Helgafell veitti
nýverið lögreglunni í Vestmanna-
eyjum styrk upp á aðra milljón
króna til kaupa á fíkniefnaleitar-
hundi. Var hundurinn, er nefnist
Móa, formlega afhentur í vikunni á
lögreglustöðinni í Eyjum en þetta
er fjórði hundurinn sem Kiwanis-
menn gefa embættinu.
Móa var flutt inn frá Englandi og
er enskur Springer Spaniel. Form-
leg þjálfun á Móu er nýlega hafin,
undir dyggri leiðsögn Heiðars Hin-
rikssonar lögreglumanns.
Móa mun leita að
fíkniefnum í Eyjum
Leitarhundur Móa er komin í þjálfun
í Eyjum við leit að fíkniefnum.
Ásmundur Einar
Daðason,
mennta- og
barnamálaráð-
herra, hefur
skipað Ólöfu
Ástu Farestveit í
embætti for-
stjóra nýrrar
Barna- og fjöl-
skyldustofu. Sú
stofnun mun
taka við verkefnum Barnaverndar-
stofu en jafnframt gegna lykilhlut-
verki við samþættingu þjónustu í
þágu farsældar barna. Ólöf Ásta
hefur verið settur forstjóri Barna-
verndarstofu frá 1. september sl.
Hún var sérfræðingur í Barnahúsi
frá árinu 2001 og forstöðumaður
Barnahúss frá 2007-2021.
Ólöf Ásta yfir Barna-
og fjölskyldustofu
Ólöf Ásta
Farestveit
Skipholti 29b • S. 551 4422
LAXDAL er í leiðinni laxdal.is
Ítalskar
hágæða
ullarkápu
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
Skyrtur kr. 6.990
Kjólar kr. 10.900
Str. S-XXL
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
20%
afsláttur af
völdum vörum
Tilboðið gildir
allan daginn
Jólakvöld Skeifunnar – Opið til kl. 22
Ull og kasmír
14.980
12.980
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Frábært úrval af fallegum
peysum á góðu verði!
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Ull og kasmír
17.980
14.980
Söfnum í jólasjóðinn hjá
Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt
okkur lið er bent á
bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Jólasöfnun
Guð blessi ykkur öll
Atvinna
SMARTLAND