Bændablaðið - 23.09.2021, Side 1

Bændablaðið - 23.09.2021, Side 1
Hampurinn óx hratt í hitabylgjunni 30–31 34–35 18. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 23. september ▯ Blað nr. 595 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Smalað var í Þórkötlustaðarétt sunnudaginn 19. september. Hér er verið að reka safnið ofan við Hraunsvík í átt að Þórkötlustaðahverfi á Þórkötlustaðanesi austan Grindavíkur, en flestir þekkja það í dag sem Hópsnes. Í baksýn er hið tignarlega Festarfjall. Mynd / Hörður Kristjánsson Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýralæknir, vill skjót viðbrögð við riðuveiki fyrir norðan: Leggur til niðurskurð á öllum bæjum sem verið hafa með fé í Húna- og Skagahólfi – Bændur í Skagafirði og héraðsdýralæknir vilja að meiri áhersla verði lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir Halldór Runólfsson, fyrr verandi yfirdýralæknir og skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytinu, leggur til í grein sem hann ritar í Bændablaðinu í dag, að ráð- ist verði í víðtækari niðurskurð á sauðfé á öllum bæjum sem eru með sauðfé í Húna- og Skagahólfi. Greint var frá því 10. september síðastliðinn að riðuveiki hafi komið upp á bænum Syðra-Skörðugili í Skagafirði, sem er í Húna- og Skagahólfi, en í því hólfi greindist síðast riða á einum bæ árið 2020. Skorið verður niður um 1.500 fjár á Syðra-Skörðugili, en síðast var skor- ið þar niður fyrir 30 árum. Að sögn Elvars Einarssonar, bónda á bænum, hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvað verði gert þegar þeim verður aftur heimilt að byggja upp sauðfjárstofn. „Við erum bara að jafna okkur eftir þetta áfall og fara í gegnum þetta hefðbundna ferli gagnvart ráðuneytinu í samvinnu við MAST,“ segir Elvar Ásamt sauðfjárræktinni eru þau Fjóla Viktorsdóttir, kona hans, og þrjú börn þeirra með hrossarækt. Þau Elvar og Fjóla eru ósátt við reglu- gerðina frá 2001 sem unnin er við ákvörðun bóta, þær séu ósanngjarnar því fjárhagslegt tjón bænda sé gríðar- legt í tilfellum sem þessum. Þau eru einnig afar ósátt við að ekki skuli vera lagt meira fjármagn í rannsóknir á riðu, það hafi ekkert verið gert almennilega í tugi ára. Þau telja að kortleggja þurfi svæðin þar sem hefur verið riða á árum áður og að þau svæði verði hreinsuð betur. Jón Kolbeinn Jónsson, héraðs- dýralæknir á Norðurlandi vestra, hefur tekið undir orð Elvars. Telur hann að það þurfi að vinna betur úr þessum faraldsfræðilegu gögnum. Á síðasta ári þurfti að skera niður allt sauðfé á fimm bæjum í Skagafirði og geitur að auki á einum bæ. Samtals var skorið niður á annað þúsund fjár. Gunnar Sigurðsson, bóndi á Stóru-Ökrum í Skagafirði, þar sem skorið var niður á sjötta hundrað fjár í fyrra, kallaði þá eftir því að vísinda- og bændasamfélagið nýtti harmleik- inn í Skagafirði sem hvatningu til að viða að sér meiri þekkingu um þann óvin sem riða sé. 13 smittilvik komið upp í sama hólfi á 20 árum Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Matvælastofnunar hafa 13 tilfelli greinst á undanförnum 20 árum í þessu hólfi og mörg þeirra í ná- grenni Syðra-Skörðugils. Á síðasta ári greindist riða á nokkrum bæjum í Tröllaskagahólfi, sem eru rétt austan við varnarlínuna um Héraðsvötn og í nágrenni við nokkra bæi í Húna- og Skagahólfi, þar sem riða hefur greinst á undanförnum árum. Vill líka niðurskurð hjá bændum í áhættuhópi Halldór Runólfsson segir í grein sinni að það sé sín skoðun að nú verði að bregðast við þessum nýjustu riðuveikitilfellum, með mjög afgerandi hætti, annars mun halda áfram að greinast riða á einum og einum bæ á svæðinu, samkvæmt reynslu undanfarinna áratuga. „Skynsamlegast væri að fara í víðtækan og samræmdan niðurskurð á öllum bæjum í þessu hólfi sem eru með sauðfé og halda því fjárlausu í tvö ár, eins og fyrirskipað er. Það er mjög mikilvægt að góð samstaða náist með öllum sauðfjárbændum á svæðinu, að fara í þessar aðgerðir, líka bændum þar sem riða hefur ekki enn greinst hjá, en þeirra bú teljast þá til áhættubúa. Gagnger hreinsun er nauðsynleg á öllum þeim bæjum þar sem skorið er. Það er einnig mikilvægt að öll fjárhús og nánasta nágrenni þeirra séu hreinsuð ítarlega á þeim bæjum sem ekki ætla að halda áfram og einnig verði skoðað hvort hreinsa þurfi á bæjum sem hættu fjárbúskap eftir fyrri niðurskurði. Þessa skoðun mína byggi ég á tveimur mjög vel heppnuðum og sambærilegum aðgerðum á undanförnum 30 árum.“ Aðgerðir sem skiluðu árangri Aðgerðirnar fyrir 20 árum, sem Halldór nefnir, voru að farið var í niðurskurð á öllum bæjum í Héraðshólfi á miðjum áratug síðustu aldar, en þar hafði riða verið að greinast á einum bæ á eftir öðrum í nokkur ár. Það er talið hafa heppnast vel þó eitt riðuveikitilfelli hafi komið upp í hólfinu árið 1997. Þá var farið í mjög umfangsmikinn niðurskurð í Biskupstungum á árunum 2003– 2004 og gerðir yfir 70 samningar við bændur. Við lok fjárlausa tímabilsins var gert sérstakt átak í hreinsunaraðgerðum, t.d. á bæjum sem ætluðu ekki að halda áfram búskap. Ekkert tilfelli hefur greinst á þessu svæði síðan að sögn Halldórs. Hann nefnir einnig niðurskurð á nokkrum bæjum á afmörkuðu svæði í sunnanverðum Hrunamannahreppi, sem farið var í árið 2003 í kjölfar riðutilfellis á einum bæ. /HKr./smh – Sjá nánar bls. 2, 8, 14, 18 og 68 Halldór Runólfsson. Vel hestaður fagurkeri 32 Kynbætt rautt birkiyrki í útrás Samdráttur í kjöt- framleiðslu og -sölu Miðað við tölur í mælaborði land- búnaðarins í lok ágúst hefur kjöt- framleiðsla í heild dregist saman í landinu á tólf mánaða tíma bili um 0,4%. Mestur er samdrátturinn í framleiðslu á hrossa kjöti, eða 8,5%. Þrátt fyrir heildarsamdrátt í kjötframleiðslu jókst nautakjöts- framleiðslan um 4,5% á einu ári og á svínakjöti um 0,1%. Það eru líka einu greinarnar þar sem fram- leiðslan jókst eitthvað á milli ára. Fyrir utan umtalsverðan samdrátt í framleiðslu á hrossakjöti, þá dróst kindakjötsframleiðslan saman um 1,8% og framleiðslan á alifuglakjöti dróst saman um 1,1%. Sala á kjöti hefur dregist hlutfallslega meira saman en framleiðslan, eða um 2,5% í heildina. Þannig dróst salan á hrossakjöti saman um 10,2% á tólf mánaða tímabili. Næstmestur samdráttur var í sölu á kindakjöti, eða 9,1%. Þá dróst nautgripakjötssalan saman um 4,2%, alifuglakjötssalan um 2,1% en svínakjötssalan stóð nánast í stað og dróst aðeins saman um 0,2%. /HKr.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.