Bændablaðið - 23.09.2021, Side 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 2021 43
Umhverfisvernd
þolir enga
bið
Umhverfisvaktin við Hvalfjörð
UMHVERFISVAKTIN
HVALFJÖRÐVI
Ð
LÍF&STARF
Betri Bakkafjörður
– Fræðslu og umhverfismál í brennidepli
Íbúar Bakkafjarðar komu saman til fundar á dögunum og fóru yfir stöðu
verkefnisins „Betri Bakkafjörður“, sem staðið hefur yfir undanfarin misseri.
Fundurinn var vel heppnaður og fjölmennur.
Íbúar Bakkafjarðar komu
saman til fundar á dögunum og
ræddu málefni byggðarlagsins.
Fundarefni var staða verkefnisins
„Betri Bakkafjörður“, sem stað-
ið hefur yfir undanfarin misseri.
Fundurinn var vel heppnaður og
fjölmennur.
Gunnar Már Gunnarsson, verk-
efnisstjóri Betri Bakkafjarðar, fór
yfir málin, það sem þegar hefur
verið gert og þau verkefni sem eru
í höfn hjá verkefnisstjórn. Ýmis
verkefni eru í vinnslu, s.s. verkefni
sem ber heitið Tanginn og fleiri sem
hafa fengið styrki, en alls hafa 23
verkefni fengið styrki og er um að
ræða fjölbreytt verkefni sem styrkja
eiga byggð á Bakkafirði.
Þá kynnti Kristján Þ. Halldórsson
tilurð samfélagssáttmála sem lagð-
ur hefur verið fram á milli íbúa
við Bakkaflóa, Langanesbyggðar
og ríkisins vegna byggðar við
Bakkaflóa. Sáttmálinn er í samræmi
við skýrslu nefndar fulltrúa fimm
ráðherra um málefni Bakkaflóa,
sveitarstjórnar Langanesbyggðar
og ráðherra sveitarstjórnarmála.
Ekki urðað nema
út þennan áratug
Jónas Egilsson, sveitarstjóri í
Langanesbyggð, fór einnig yfir
sáttmálann en tillaga um hann kom
fram á árinu 2017 eftir gagnrýni
íbúa sem komið var á framfæri við
sveitarstjórn. Hún tók við verkefn-
inu og tengdi saman þá sem taka
þátt í því.
Nefndi Jónas sérstaklega tvö
mál í sáttmálanum, fræðslumál
og framtíð þeirra á Bakkafirði og
umhverfismál. Í þeim málaflokki
má nefna að gera má ráð fyrir að
urðun á Bakkafirði verði ekki haldið
úti nema út þennan áratug og ljóst
að grípa þarf til úrræða í tíma.
Ýmsar lausnir eru í skoðun, m.a.
meiri flokkun. Vinnu við sáttmál-
ann er ekki lokið, frekari umræður
við íbúa eru eftir og þeirra stofnana
sem koma að gerð hans. /MÞÞ
Veðrið hefur leikið við heimamenn í Norðurþingi í sumar.
Norðurþing:
Góð aðsókn í sundlaugar
Aðsókn hefur verið einkar góð í
sundlaugar Norðurþings í sumar.
Veðrið hefur leikið við heima-
menn og fjöldann allan af íslenskum
og erlendum ferðamönnum sem sótt
hafa svæðið, en þeir voru sérlega
duglegir að nýta sér sundlaugarnar
á góðviðrisdögum.
Þrjár sundlaugar er í Norðurþingi,
á Húsavík, Raufarhöfn og í Lundi.
Í Lund komu yfir 3.000 gestir og á
Húsavík komu 11.454 gestir, sem
er met frá upphafi talninga.
Í sundlauginni á Raufarhöfn var
gestafjöldi á pari við síðasta sumar.
/MÞÞ
Kemur næst út
7. október